Saga - 2013, Síða 101
2 „vandræðakonur“ sem lögreglan taldi sig hafa sannanir fyrir
að stunduðu vændi eða álíka ólifnað og ættu margar við
drykkju vanda að etja.
3 Giftar eða fráskildar konur á „athugunarverðum heimilum“.
4 Stúlkur undir sjálfræðisaldri, þ.e. yngri en 16 ára.
Nú var það hlutverk lögreglunnar að fást við siðferðisbrot og í 2.–4.
flokki ofangreindra kvenna var að finna bæði gerendur og þolendur
í þeim efnum. Með því að beina rannsókn sinni að 1. flokki kvenna,
hinum fjölmennasta, fór Jóhanna hins vegar út fyrir verksvið lög-
reglunnar. Þetta átti sinn aðdraganda. Á fyrstu dögum hernámsins
höfðu stuðningsblöð þjóðstjórnarinnar og Jónas Jónsson frá Hriflu,
formaður Framsóknarflokksins, kvartað um ásókn kvenfólks og
barna í hermenn. Lögreglustjóri hafði brugðist við með því að skipa
lögregluþjónum að bægja þeim frá herliðinu.16 Um sumarið hafði
Agnar kofoed-Hansen hins vegar lýst því yfir að lögreglan teldi það
ekki „innan síns verkahrings að skipta sér af fulltíða
kvenmönnum“.17 ef til vill vildi hann ekki lengur gangast við þess-
um afskiptum vegna þess að þau höfðu mælst illa fyrir, eins og hann
sagði Jóhönnu knudsen. val hennar á markhópum við rannsóknina
1941 er hins vegar til marks um að lögreglustjóri hafði fullan hug á
því að skipta sér af þessum hópi kvenna, jafnvel þó að þær hefðu
ekkert brotið af sér og væru komnar af unglingsaldri. Hugsanlega
hélt lögreglan líka uppteknum hætti frá því um vorið. Um haustið
deildu sósíalistar að minnsta kosti á lögregluna fyrir að „skrifa upp“
stúlkur og flytja þær sumar í lögreglustöðina fyrir það eitt að tala
við hermenn á almannafæri.18 Um aldur þessara stúlkna er þó ekki
vitað.
Fleira orkaði tvímælis um rannsókn Jóhönnu knudsen en val
hennar á fjölmennasta markhópnum. Starfsmenn sakadómara
synjuðu Jóhönnu um upplýsingar, þar á meðal Sigurður Magnússon
kennari, sem sinnti afbrotamálum ungmenna fyrir rannsóknarlög-
ástandið og yfirvöldin 99
16 Jónas Jónsson, „Hið breytta viðhorf“, Tíminn 16. maí 1940, bls. 207–208; „Fyrsti
sólarhringur breska landgönguliðsins á Íslandi“, Alþýðublaðið 11. maí 1940, bls.
4; „Úr daglega lífinu“, Morgunblaðið 12. maí 1940, bls. 6; Borgarskjalasafn
Reykjavíkur. Dagbók lögreglunnar í Reykjavík, 14. maí og 7. júní 1940.
17 „Frásögn lögreglustjóra. Öryggismál bæjarbúa í sambandi við hernámið“,
Morgunblaðið 31. júlí 1940, bls. 6.
18 „Íslensku stúlkurnar og breski herinn“, Þjóðviljinn 16. október 1940, bls. 2.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 99