Saga - 2013, Síða 104
Jóhanna lagði sérstaka rækt við að skrá nöfn feðra úr röðum
kunnustu borgara bæjarins, en dætur þeirra sumra voru sagðar
stunda drykkjuskap og óbeislað kynlíf. Jóhanna skráði jafnvel lýs -
ingu á því hvernig aðstoðarmaður hennar elti uppi eina þeirra, gifta
konu, ásamt þýskum sjóliðsforingja tveimur árum fyrir stríð og
fylgdist með konunni inn um glugga á heimili hennar.27 ekki virðist
hafa hvarflað að Jóhönnu að slíkar gluggagægjur, sem aðstoðar -
maður inn stundaði hjá fullveðja konum, kynnu að varða við lög.
Annars þurftu dætur kunnra borgara lítið að hafa fyrir því að
komast á skrá. Heimildarmenn vottuðu til dæmis að hafa séð tvær
þeirra í „bíó“ með Bretum, önnur þeirra hefði líka dansað við liðs -
foringja á Hótel Borg. Þessar stúlkur voru á þrítugsaldri, máttu ekki
vamm sitt vita og giftust báðar Íslendingum.28
Meðal fastra liða í skrá Jóhönnu voru vitnisburðir um klæða -
burð, útlit, vaxtarlag og andlitsfarða kvenna. Stundum fylgdi með
dómur um gáfnafar þeirra eða skapgerð. ein stúlka var til dæmis
þokkalega klædd, ljóshærð, ljós í andliti, stillileg og meðalstór.
Önnur var fráskilin, vel klædd, rauðbirkin, vel meðalhá og sam-
svaraði sér. Þriðja (unglingur) var lítil vexti, skolhærð í rauðri kápu,
en gekk um berhöfðuð.29 Sú fjórða var hávaxin, grönn, ljóshærð,
afar fríð og vel vaxin, skarpgreind og dugleg við háskólanám.30 Sú
fimmta var vitgrönn og luraleg í klæðaburði og vexti.31 Flestar kon-
urnar, nema þær sem voru á jaðri samfélagsins, töldust reyndar
þokkalegar til fara, þó að Jóhanna efaðist um siðferðiskennd þeirra
og greind.
Með þessari könnun á klæðaburði „ástandskvenna“ reyndi Jó -
hanna að meta heimilishagi þeirra og menningarstig á borgaralegan
mælikvarða. Þá leitaði hún vísbendinga um vændi og ólifnað í
klæðaburði, andlitsfarða og útliti.
yfirgripsmiklar lýsingar á áfengisdrykkju, klæðaburði og and-
litsfarða kvenna má einnig skýra sem tilraun Jóhönnu til að bæta sér
upp skort á sönnunargögnum um vændi og ólifnað. Öllu erfiðara er
að greina tilgang hennar með því að skrá upplýsingar um útlit þeirra
og vaxtarlag. ef til vill taldi hún gagnlegt að hafa upplýsingar um
þór whitehead102
27 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 11.
28 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 78 og 118.
29 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 72, 106 og 93.
30 ÞÍ. Ue . A/1-3. Nr. 90.
31 ÞÍ. Ue. A/1-4. Nr. 73.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 102