Saga - 2013, Síða 110
saka siðferði þeirra. Margar þessara kvenna áttu við áfengisvanda
og geðræna sjúkdóma að etja og lifðu við bágar aðstæður. Sumar
sýkt ust af kynsjúkdómum og lentu iðulega í höndum lögreglunnar.48
Samfélagið hafði fá eða alls engin úrræði að bjóða þessum hópi
kvenna (ekki fremur en unglingum á glapstigum), þótt drykkja og
ólifnaður hefði ágerst með örum vexti Reykjavíkur úr þorpi í hafn-
arbæ. Þessi samfélagsvandi hafði verið til umræðu fyrir stríð, en
helsta hugmyndin um lausn hans var frumvarp Jónasar frá Hriflu
1939 um að loka höfninni fyrir næturferðum kvenna til að draga úr
sukki og útbreiðslu kynsjúkdóma. Þessi vandi hafði að einhverju
leyti magnast við komu hersins og allt frá hernámsdeginum höfðu
verið uppi kröfur um að refsa „lauslætisdrósunum“ og loka þær inni
á afviknum stað upp í sveit.49 „Siðferðisvandinn“, sem menn höfðu
lítt sinnt fram að þessu, virtist skyndilega orðinn að þjóð ernis vanda -
máli sem samfélagið, sérstaklega karlar, sýndu mun meiri áhuga.
Lýsingar á vandræðakonum í skrám Jóhönnu knudsen eru hver
annarri lík, svo sem sjá má af þessum endursögnum:
• Drykkfelld, sótti í skip á fyrri tíð, getur ekki talist eins og fólk er
flest, vinnur í hermannakaffihúsi.
• Handtekin í pólsku skipi fyrir stríð ásamt fleiri konum. Fyrst
handtekin sextán ára, kærð fyrir kynsjúkdómasmit, þá ófrísk,
skækja, aumingi.
• Skækja, drykkfelld, óviðránleg eftir ígerð í höfði í æsku, alræmd
skækja.
• er með hverjum sem er, sést með Bretum í skúmaskotum, ýmist
fín í pels eða drusla, oft tekin úr skipum, alræmd skækja.50
Hvergi vottar fyrir samúð með þessum ógæfukonum, sem Jóhanna
og heimildarmenn hennar vísuðu jafnan til með ófögrum og klám-
kenndum viðurnefnum ef þess var kostur. Þetta lýsir tíðarandanum
í bænum, en ómagar og utangarðsmenn höfðu reyndar löngum átt
erfitt uppdráttar í sveitasamfélaginu. ekki hefur það heldur bætt
hlut þessara kvenna í augum lögregluþjóna að þeir þurftu iðulega
að sækja þær í fang róstusamra hermanna og er lendra sjómanna,
þór whitehead108
48 ÞÍ. Ue. A/1-4.
49 Bjarni Guðmarsson og Hrafn Jökulsson, Ástandið, bls. 41–42; „Afstaða almenn-
ings“, Alþýðublaðið 11. maí 1940, bls. 4; „Úr daglega lífinu“, Morgunblaðið 12.
maí 1940, bls. 6.
50 ÞÍ. Ue. A/1-4. Nr. 136, 74, 79 og 15.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 108