Saga - 2013, Qupperneq 111
sem sumir gripu til vopna. Lögregluþjónar urðu að leggja líf sitt og
limi í hættu af þessum sökum og hlutu af áverka og eymsli en upp-
skáru lítið þakklæti frá konunum, sem sumar voru fastagestir í lög-
reglustöðinni.51
Rannsókn Jóhönnu knudsen á „athugunarverðum heimilum“
lýsir hörmulegum aðstæðum hjá fjölda fjölskyldna í Reykjavík eftir
kreppuna miklu, en Jóhanna studdist meðal annars við skýrslur
barnaverndarnefndar. verst sýndist Jóhönnu komið fyrir þeim heim-
ilum sem fallið hefðu í hendur hermanna, eins og hún orðaði það:
• Heimili í Austurbæ alræmt fyrir ólifnað, maður talinn Alfons
(melludólgur), óhemju Bretaheimsóknir, óþrifnaður með afbrigð -
um, börn trassaleg og sóðaleg, mikil lús, lögregluþjónar séð þar
verstu skækjur bæjarins.
• Heimili í Norðurbæ, gjörsamlega óhæft, framúrskarandi að
óreglu, illu orðbragði, næturvökum og útvist barna og sóðaskap,
„í höndum Breta“, móðir selur þeim kaffi.
• Heimili í Austurbæ, pútnahús að mati lögregluþjóns, 16 ára dóttir
talin lokka hermenn af götunni og lélegum veitingahúsum til
móður, ómerkilegrar í alla staði. Bretar á heimilinu dag og nótt.
• Heimili í vesturbæ, sóðalegt, konan mikill svarri, átt börn sitt með
hverj um manninum, sníkjulíf, eiginmaður ómenni og drykkfelldur.
• Heimili í Austurbæ, ómegð, á bænum, atvinnulaus maðurinn sit-
ur að tafli, konan ferleg í útliti og framkomu, útslitin, sinnulaus,
heilsuveil, skapmikil og óhreinlát. Fátækt og basl einkum sökum
ómennsku manns ins. Börn vanhirt, dóttir með hermanni, sjóliði
sást sitja þar á fleti.52
Lýsingar Jóhönnu knudsen og heimildarmanna hennar á skiptum
þessa fólks við hermenn virðast í heild ekki allskostar trúverðugar,
þó að eflaust hafi gengið þar á ýmsu. Frásagnir frá stríðsárunum
sýna að allmörg heimili við misjöfn efni opnuðu dyr sínar fyrir her-
mönnum, án þess að kynlíf kæmi þar við sögu. Íslendingum þótti
lítill hermennskubragur á óbreyttum breskum hermönnum, sem
flestir voru úr verkalýðsstétt Mið- og Norður-englands. Þeir gátu
sér hins vegar fljótt orð fyrir vinalega framkomu og slæmur aðbún -
aður þeirra vakti vorkunn margra. Þessir menn sóttust eftir tilbreyt-
ástandið og yfirvöldin 109
51 Jóhannes Helgi, Lögreglustjóri á stríðsárunum, bls. 233–264, 290 og 311–334.
52 ÞÍ. Ue. A/1-1. Nr. S 483 (bls. 14), S 21 og S 247 (bls. 8), S 332 (bls. 15), S 550 (bls.
19), S 540 (bls. 21).
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 109