Saga - 2013, Page 112
ingu frá leiðindum herbúðalífsins og komu oft á íslensk heimili fær-
andi hendi, þar á meðal með áfengi. Þeir sem á annað borð voru
veikir fyrir víni virðast því öðrum fremur hafa sóst eftir félagsskap
við hermenn. Í skrá Jóhönnu knudsen sýnist hins vegar gengið
leynt eða ljóst út frá því að drjúgur hluti mæðra og dætra á „athug-
unarverðum heimilum“ væri hernuminn kynferðislega. Á þessum
heimilum væri einnig að finna helstu uppeldisstöðvar fyrir vændis-
eða lauslætiskonur á leið í ástandið. Nú voru þess sannarlega dæmi
að giftar konur ættu vingott við hermenn og til skilnaðar kæmi af
þeim sökum, en í frásögnum hermanna hefur þó enn ekki fundist
nein staðfesting á því stórfellda framhjáhaldi sem Jóhanna, heimild-
armenn hennar og lögreglustjóri voru sannfærð um að þrifist innan
veggja íslenskra heimila.
Stúlkur undir sjálfræðisaldri, 16 ára
Í rannsókn sinni 1941 skráði Jóhanna knudsen nöfn 110 telpna á aldr-
inum 12–16 ára sem taldar voru hafa „mjög náin afskipti af setu -
liðinu“ og 31 stúlku á aldrinum 12–17 ára sem væri á „mjög lágu
sið ferðisstigi“ (sjá nánar á bls. 123). Þessar tölur áttu barna verndar -
yfir völd eftir að vefengja og greindi þau mjög á við Jóhönnu um
fjölda stúlkubarna á kynferðislegum glapstigum allt til styrjaldarloka.
Þó að lögreglan reyndi að bægja börnum og unglingum frá
Bretum dugði það skammt, enda fengu hermennirnir orð fyrir að
vera bæði barngóðir og gjafmildir. Þannig bættu þeir sér upp
afskiptaleysið, sem meirihluti fullorðinna virðist hafa sýnt þeim að
hvatningu stjórnvalda. Þegar lögreglan reyndi að ganga eftir því að
telpur undir lögaldri héldu sig frá hermönnum, tóku Bretar það
ó stinnt upp og mótmæltu því jafnvel við stjórnvöld. Hermönnunum
gengi ekkert annað til en að sýna ungviðinu vinsemd.53 Sú var líka
oftast raunin, eins og sjá má af ótal vitnisburðum fólks sem var á
barns- og unglingsaldri á stríðsárunum. en hafa ber í huga það sem
lítt eða ekki kemur fram í frásögnum um ástandið, þ.e. að hluti her-
manna var á unglingsaldri því að herskylda miðaðist við 18 ára ald-
ur. Það var því viðbúið að þeir, svo að ekki sé talað um eldri her-
menn, litu stúlkur á svipuðu reki hýru auga. Það orð fór líka af
íslenskum unglingsstelpum að þær litu margar út fyrir að vera eldri
þór whitehead110
53 ÞÍ. UR (Utanríkisráðuneytið). I/168. Howard Smith til Sveins Björnssonar 25.
júní 1940; Jóhannes Helgi, Lögreglustjóri á stríðsárunum, bls. 331–332.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 110