Saga - 2013, Page 114
sinnar eða viðskiptatengsla, góðvildar, skemmtunar, ásóknar
í áfengi eða áhuga á breskri menningu og tungu.56
Jóhanna knudsen, samstarfsmenn hennar og Agnar kofoed-
Hansen litu á skipti þessa fólks við „hernámsmenn“ sem svik við
íslensku þjóðina, sjálfstæði hennar og hlutleysi. Þetta var allalgengt
sjónarmið 1940–1941 og leiddi beint af málflutningi ýmissa áhrifa-
manna, þar á meðal forsætis- og dómsmálaráðherra, væru orð hans
tekin bókstaflega. Í augum Jóhönnu breytti það engu þó að þjóð -
stjórnin og Alþingi fælu Bandaríkjaher varnir Íslands og legðu
blessun sína yfir tímabundna dvöl breska hersins í landinu með
opinberum samningum sumarið 1941. Landið var eftir sem áður
„hernumið“ í hennar huga.
Skráin um hermannavini virðist þó einkum hafa sprottið af
grunsemdum Jóhönnu um að í þessum hópi leyndust karlar og kon-
ur sem útveguðu hermönnum kvenfólk. Auk þess væri hér að finna
giftar og fráskildar konur sem héldu við hermenn eða seldu þeim
blíðu sína, með eða án samþykkis eiginmanna sinna. Þau Agnar og
samstarfsmenn þeirra töldu næsta sjálfgefið að íslenskir eiginmenn
væru kokkálaðir af hermönnum, ef þeir kæmust á annað borð inn á
heimili manna. Fátt þótti þeim raunar varhugaverðara en að konur
ynnu sér inn skilding með því að þvo hermannaspjarir (Breta -
þvottur inn) eða ynnu á hermannasjoppum og veitingahúsum, sem
sprottið höfðu upp víða um bæinn.57 Rannsókn á kynlífi, áfengis-
nautn og öðrum löstum hermannavina var því talin nauðsynlegur
þáttur í könnun á siðferðisástandinu. Þess var jafnan getið ef börn
voru á heimilum sem af fór „vont orð“ fyrir tíðar hermannaheim-
sóknir, enda áttu þær að einkennast af drykkjuskap og ólifnaði.
eftirfarandi vitnisburður um hermannavini í Austurbænum er
dæmi gerður fyrir þessar grunsemdir: „Maðurinn drykkfelldur.
konan grunsamleg“.58 Þau Jóhanna og Agnar voru sammála um að
ein lausn væri á þessum vanda: „enginn hermaður inn á íslenskt
heimili.“59
þór whitehead112
57 „Agnar kofoed Hansen“, Lögreglublaðið Iv:1 (maí 1969), bls. 10; Jóhannes Helgi,
Lögreglustjóri á stríðsárunum, bls. 148 og 196–197; ÞÍ. Ue. B1/1. Jóhanna
knudsen til Agnars kofoed-Hansens 17. maí 1941 og B/1-9. Jóhanna knudsen
til einars Arnórssonar, dómsmálaráðherra 9. febrúar 1943.
58 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 59.
59 ÞÍ. Ue. B/1-9. Jóhanna knudsen til einars Arnórssonar 9. febrúar 1943.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 112