Saga - 2013, Síða 116
hann sat í stjórn. Heimildarmaður hafði séð manninn, harðgiftan, í
fylgd tveggja annarra kvenna á dansleiknum.65 Ungur Bretavinur
úr hópi samvinnumanna, stakur reglumaður sem stundað hafði
nám í Lundúnum, var skráður fyrir bíóferðir með hermönnum —
eiginkonan hafði verið með í för.66 Gestrisin og greiðasöm ekkja á
sextugsaldri var skráð vegna augljóss gruns um vændi.
Unglingspiltur hefði gefið sig á tal við hermenn við hús hennar í
austurbænum og þeir vanið komur sínar til konunnar. Dylgjur um
vændislifnað þessarar ráðsettu ekkju voru fráleitar. Hún og eigin-
maður hennar heitinn (þekktur bindindismaður) höfðu starfað í
Alþýðuflokknum og verkalýðshreyfingunni. konan var því í hópi
þeirra bæjarbúa sem eindregnast studdu Breta í stríðinu, og ekki
ólíklegt að henni, eins og ýmsum nábúum hennar, hafi runnið til
rifja illur aðbúnaður hermanna í nágrenninu. Hún átti reyndar eftir
að giftast aftur Íslendingi á stríðsárunum og dóttir hennar, sem var
sögð hafa sótt braggaball með leyfi móður sinnar, fann sér einnig
íslenskan eiginmann.67
Nöfn þriggja manna sem höfðu orð á sér fyrir samkynhneigð
rötuðu á svartan lista Jóhönnu. einn þeirra, vínhneigður og veraldar-
vanur listamaður, var sagður umgangast hermenn daglega, annar,
iðnaðarmaður, sækti dansleiki þeirra og hinn þriðji, kennari, sæti
tíðum að sumbli með þeim — ásamt konum.68 kynhneigð þeirra var
ekki nefnd, enda sýndi Jóhanna knudsen lítinn sem engan áhuga á
því hvort íslenskir karlmenn, þar á meðal drengir undir lögaldri,
ættu mök við hermenn. Rannsókn hennar á siðferðisástandinu, og
síðar eftirliti með ungmennum, var ætlað að forða konum frá sam-
neyti við hermenn. Þó leyndi það sér ekki að samkynhneigðir karlar
væru einnig komnir í ástandið.69
Upplýsingaöflun Jóhönnu Knudsen og heimildarmenn
Gögn Jóhönnu knudsen leiða í ljós að mikill hluti upplýsinga
þór whitehead114
66 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 16.
67 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 39.
68 ÞÍ. Ue. A/1-3. Nr. 3, 6 og 12.
69 Viðtal. Magnús Sveinn Helgason (fyrir höfund) við Jón Múla Árnason 23. júní
1999; „Sá alsætasti á Gay Pride“, Fréttatíminn 5.–7. ágúst 2011, bls. 20 og 22.
70 Viðtal. Höfundur við Agnar kofoed-Hansen 24. ágúst 1973. Þorkell G. Hjálm -
arsson var 25 ára að aldri 1941, fæddur í Bolungarvík 1916. Hann fluttist
snemma til Reykjavíkur með foreldrum sínum, varð búfræðingur 1935 og bjó
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 114