Saga - 2013, Page 133
væru að leiða yfir þjóðina, hefðu komið flatt upp á þorra breskra og
bandaríska hermanna, ef þeir hefðu getað fylgst með umræðum
landsmanna. Í mörgum þeirra sauð megn reiði og andúð í garð
Íslendinga, sem þeir töldu flesta vinveitta Þjóðverjum og sýna sér
kulda, óvinsemd, græðgi og vanþakklæti. viðkvæði flestra her-
manna var að konur þýddust þá alls ekki.128 Það má hafa hér til
marks að tæplega 400 íslenskar konur eru taldar hafa gifst hermönn-
um, en ætla má að alls hafi rösklega 100.000 karlmenn gegnt
herþjónustu í landinu á stríðsárunum, auk þess sem tugþúsundir
sjóliða, sjómanna og flugmanna höfðu hér einhverja viðdvöl.129
Niðurstöður og eftirmáli
Gögn Jóhönnu knudsen sýna að aldrei var full samstaða í þjóð -
stjórninni um svonefnd ástandsmál, þótt svo ætti að heita að
stjórnin markaði þá stefnu 1940 að þjóðin skyldi forðast samskipti
við hermenn. Í ljós hefur komið að Hermann Jónasson, forsætis- og
dómsmálaráðherra, og Agnar kofoed-Hansen lögreglustjóri fólu
Jóhönnu knudsen yfirhjúkrunarkonu að rannsaka siðferðisástandið
í Reykja vík 1941 til að efla andstöðu almennings við samskipti
kvenna við hermenn. Þrýsta átti á þjóðstjórnina og alþingi að hindra
þessi samskipti með lagasetningu.
Siðferðisrannsókn lögreglustjóra leiddi til víðtækustu njósna um
einkalíf manna sem vitað er til að lögreglan hafi staðið fyrir hér á
landi. Rannsóknin mótaðist af óvönduðum vinnubrögðum Jóhönnu
knudsen, öfgakenndum siðgæðishugmyndum hennar, ákafri þjóð -
ernis hyggju og hneigð til að sjá mestöll samskipti við hermenn í
kynferðislegu ljósi. Allt leiddi þetta til ýkjukenndra niðurstaðna um
fjölda og framkomu ástandskvenna og þann lífsháska sem þær
kölluðu yfir þjóðina og sjálfar sig.
Með embættisbréfi landlæknis og skýrslu ástandsnefndarinnar í
ágúst 1941 var niðurstöðum Jóhönnu um rösklega 500 meintar
ástandskonur komið á framfæri við almenning. Gögn hennar sýna
hins vegar að engar haldbærar sannanir voru fyrir þeim þungu
ásökunum um ólifnað sem hún og lögreglustjóri höfðu uppi í garð
þorra þessara kvenna og þúsunda annarra. Samfélagið átti hins
vegar tvímælalaust við vanda að stríða vegna hóps vanræktra
ástandið og yfirvöldin 131
129 Þór Whitehead, Ísland í hers höndum, bls. 39 og 113; Friðþór eydal, tölvubréf
til höfundar 22. október 2013.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 131