Saga - 2013, Page 145
helgi skúli kjartansson
Fylgir bölvun barni?
Um skelfilega hjátrú í norskum fornlögum
Mér fór eins og fleirum, sem lásu vorhefti Sögu í fyrra, að eiga erfitt
með að slíta hugann frá grein Brynju Björnsdóttur um útburð van-
skapaðra barna á Íslandi og í Noregi.1 Rannsókn hennar varð mér
tilefni til þeirra athugana sem hér fara á eftir.
Mikilvægustu heimildir Brynju — og þær sem komu okkur
mörg um svo óþægilega á óvart — eru ákvæði í forn-norskum
kirkjurétti. Rannsóknarspurning hennar og ályktanir snúa þó
fremur að barnaútburði í heiðnum sið, sérstaklega á Íslandi, og eru
norsku heimildirnar þar notaðar til hliðsjónar. Þetta megin við fangs -
efni Brynju skrifa ég ekki um hér, reyni hvorki að leggja mat á rann-
sókn hennar2 né tefla fram eigin niðurstöðum. Það sem ég hef við
grein Brynju að bæta er einkum að birta meira orðrétt úr norsku
heimildunum3 og rýna nánar í textana og samhengi þeirra.
Saga LI:2 (2013), bls. 143–169.
v I Ð H O R F
1 „vansköpuð börn í norskum og íslenskum kristinrétti miðalda. Um
barnaútburð á elstu tíð“, Saga L:1 (2012), bls. 104–124. Hér eftir vísað til með
blað síðutali einu saman. Gunnari F. Guðmundssyni þakka ég yfirlestur, hvatn-
ingu og gagnlegar bendingar.
2 Ég þekki t.d. ekki röksemdir Bo Almquist sem skipta miklu máli fyrir túlkun
Brynju (bls. 108).
3 Allar tilvitnanir í lögin eru stranglega orðréttar en með stafsetningu og greinar-
merkjum nútímaíslensku. Orðmyndir reyni ég að samræma fremur en breyta,
en vissulega heldur í átt til íslenskunnar, a.m.k. hljóðvörp og
beygingarendingar. Þar sem handrit greinir á fylgi ég aðaltexta hverrar útgáfu.
Leshættir annarra handrita virðast á stöku stað eðlilegri en þá torséð hvort þeir
eru upprunalegir eða lagfæring afritara.
Sams konar úrval, og fyllra þó, hefur else Mundal tekið saman í ritgerð
sinni, Barneutbering. Norskrift 56 (Osló: Universitetet i Oslo. Institutt for nordisk
språk og litteratur 1987 — fjölrit. einnig á vef Bergen Open Research Archive,
slóð: hdl.handle.net/1956/793), bls. 70–74. eins og Brynja — sem vísar til rann-
sóknar hennar á nokkrum stöðum — leitast else einkum við að draga ályktanir
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 143