Saga - 2013, Síða 175
þessari fyrstu evrópsku byggð í Nýja heiminum. Það kom og
snemma í ljós að kólumbus var lítt hæfur stjórnandi á þurru landi.
Staða hans varð brátt harla erfið og í ljósi þess ber að skoða bréf
hans til konungshjónanna á Spáni, þar sem hann reynir að verja
gjörðir sínar og upphefja sjálfan sig með lýsingum á hæfni sinni og
afrekum. Bréfið, sem er ekki heilt, er varðveitt í Landsbókasafninu
í Madrid í afskrift Las Casas.9 Tilvísunin til Tile hljóðar svo í þýð -
ingu minni:
La española, janúar 1495.
Ég sigldi í febrúarmánuði árið 1477 eitt hundrað rastir framhjá (út
fyrir) Tile-eyju, en suðurhluti hennar liggur 73 gráður frá miðbaug, en
ekki 63 eins og sumir segja, og hún er ekki innan þeirra marka sem
vestrið spannar að mati Ptolemeiosar, heldur miklu vestar. Til eyjar
þessarar, sem er jafnstór og england, sigla enskir með verslunarvarn-
ing, einkum Bristolarmenn, og á þeim tíma er ég fór til eyjarinnar var
sjór ekki frosinn, en þar var munur flóðs og fjöru gríðarlegur, svo
mikill að í sumum stöðum hækkaði sjór tvisvar á dag um 25 faðma og
lækkaði jafnmikið.10
Hér ber fyrst að hafa í huga að ekki eru allir sammála um að Tile eða
Thule sé Ísland og að Ísland er vissulega talsvert minna en england,
þó taka verði tillit til þess að ekki var auðvelt að áætla flatarmál
landa á þessum tíma. Að færa landið norður um nálega 10 breiddar -
gráður vekur auk þess efasemdir; landið er þá komið á svipaða
breidd og Svalbarði eða Franz Jósepsfjörður á Norðaustur-Græn -
landi. Þá dregur það verulega úr sannleiksgildi frásagnarinnar að
nokkur orð um kristófer kólumbus … 173
hrynja niður vegna sjúkdóma og næringarskorts, auk þess sem margir stungu
af í leit að gulli. Af þeim 1700 Spánverjum sem hófu ferðina 1493 voru einungis
um 300 á lífi þremur árum seinna. Byggðin í Isabela lagðist síðan af 1498 er
bærinn Santo Domingo var stofnaður á suðurströnd eyjarinnar. Las Casas,
Historia de las Indias II (Cap. 88), bls. 865–868; Hernando Colón, Historia del
Almirante (Cap. LI–LIII), bls. 174–182; kathleen Deagan, La Isabela í Christopher
Columbus and the age of Exploration (New york: Da Capo Press 1998), bls. 608–610.
9 Biblioteca Nacional Ms. Res. 21, f. 7 y ss.
10 Consuelo varela, Cristóbal Colón, Textos y Documentos Completos, bls. 167. Bréfið
er einnig að finna í Indíasögu Las Casas, Historia de las Indias I, bls. 363, og í
Hernando Colón, Historia del Almirante, bls. 56–57. eini munurinn á bréfinu í
bókum Las Casas og Hernandos er sá að Hernando talar um 26 faðma flóðhæð
en Las Casas og konungsbréfið nefna 25 faðma. Í síðari útgáfum af ævisögu
Hernandos hefur flóðhæðinni verið breytt í 25 faðma í samræmi við konungs-
bréfið.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 173