Saga - 2013, Page 218
vettvangi. Höfuðáhersla er lögð á skáld og listamenn, en stjórnmála -
menn og trúarhetjur koma einnig við sögu. Ódáinsakri, þessu litla og
fallega verki, var afar vel tekið. Sást það til dæmis í fjölmennri „píla-
grímsgöngu“ í haust þegar höfundur leiddi um tvö hundruð manns
frá einni þjóðardýrlingsstyttu að annarri í miðbæ Reykjavíkur.
Í október 2013 kom út ritið Opinber tengsl Íslands við Sovétríkin/
Rússland 1943−2008. Skjöl. Sögufélag sá um útgáfuna fyrir hönd
utanríkisráðuneytisins. Í verkinu er að finna opinber skeyti, skjöl og
samninga sem varða samskipti Íslands við Sovétríkin og síðan
Rússland. Þessar heimildir veita nýja sýn á margt í þessum sam-
skiptum og utanríkissögu Íslands frá seinni heimsstyrjöld til sam-
tímans. Samstarf við utanríkisráðuneytið gekk vel og vonir standa
til frekari útgáfu af þessu tagi þótt of snemmt sé að fullyrða nokkuð
í þeim efnum.
Næst skal nefna Íslandslýsingu Johanns Andersons sem áður var
minnst á. ekki var út í bláinn að þeir Gunnar Þór Bjarnason og Már
Jónsson skyldu fengnir til að fjalla um þau skrif og skyld efni á und-
an aðalfundi Sögufélags. Þeir þýddu verk Andersons og sáu um
útgáfu þess. Ásamt þeim skrifum eru birt andmæli Jóns Þorkels -
sonar, rektors Skálholtsskóla, og líka alræmdar Íslandslýsingar
þeirra Göries Peerse og Dithmars Blefkens, að ógleymdum
ítarlegum inngangi. Ritið er hið fimmta í bókaflokknum Safn
Sögufélags. Stefnt er að því að næsta verk í röðinni verði gefið út
innan fárra ára. Af nægu efni er að taka. Síðar á þessu ári er svo
væntanleg hjá Sögufélagi saga Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis
í 77 ár. Árni
H. kristjánsson sagnfræðingur skrifar þá merku sögu, ritstjóri er
Sig urður Gylfi Magnússon sagnfræðingur. víst er að þetta verk, sem
unnið er samkvæmt samningi við SPRON-sjóðinn sjálfseignarstofn-
un, mun vekja umtal, jafnvel deilur.
Starfsmannamál. Ólöf Dagný Óskarsdóttir er framkvæmdastjóri
Sögufélags í hlutastarfi. Ólöf hefur sinnt störfum sínum af alúð og
nýtur langrar þekkingar og reynslu í útgáfuheiminum.
Húsnæðismál. vorið 2012 flutti Sögufélag aðsetur sitt úr
þáverandi húsi félagsins við Fischersund í Reykjavík í Skeifuna, þar
sem það deilir nú húsnæði með Hinu íslensku bókmenntafélagi.
Húsið var leigt bókaútgáfunni Sögum. Með þessari breytingu tókst
að lækka verulega rekstrarkostnað Sögufélags og tekjur fengust af
leigu hússins. Á hinn bóginn var ljóst að sú útleiga væri tæpast
arðsöm til lengdar, einkum með tilliti til viðhalds og nauðsynlegra
af aðalfundi sögufélags 2013216
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 216