Andvari - 01.01.2019, Page 44
ANDVARI SÉRA PÉTUR SIGURGEIRSSON 43
sóknarnefndarfólk, safnaðarfulltrúa, meðhjálpara og hringjara sem
skilgreina áttu þessi hlutverk nánar.172
Til að styrkja safnaðarstarfið og auka samvinnu vígðra og óvígðra
starfs- og trúnaðarmanna safnaðarins var bryddað upp á þeirri nýjung
haustið 1969 að tillögu beggja prestanna, Péturs og Birgis, að koma
á svokölluðu safnaðarráði við Akureyrarkirkju. Það var skipað prest-
um og öðru starfsfólki við kirkjuna, kjörnum trúnaðarmönnum þar
auk formanna þeirra félaga sem störfuðu í tengslum við kirkjuna. Var
ráðinu ætlað að efla safnaðarstarfið og vinna að aukinni kirkjusókn
í bænum. Starfaði ráðið fram í ársbyrjun 1975 og hafði þá beitt sér
fyrir ýmsum framfaramálum.173 Veturinn 1978 gekkst Pétur svo fyrir
stofnun Bræðrafélags Akureyrarkirkju. Var það ætlað karlmönnum 16
ára og eldri en kvenfélag hafði verið starfandi allt frá þeim tíma sem
kirkjan var í byggingu. Var félaginu ætlað að vinna að ýmsum sömu
verkefnum og safnaðarráðinu og hefur e.t.v. verið hugsað sem nokkurs
konar arftaki þess. Voru fyrirmyndir einkum sóttar til sams konar fé-
lags við Bústaðakirkju í Reykjavík.174
Safnaðarlífið á Akureyri í tíð Péturs Sigurgeirssonar varð mörgum
innblástur og hvatning til að helga sig enn frekar kirkjustarfi og þá
sem prestar, organistar eða á annan hátt. Þrátt fyrir að alltaf sé torvelt
að sýna fram á áhrifavalda á starfsval og framtíðarstefnu virðist mega
leiða líkum að því að hátt í tugur presta hafi hlotið fyrstu kirkjulegu
mótun sína undir handarjaðri Péturs.175
Ljóst er að Pétur Sigurgeirsson vakti athygli fyrir frumkvöðlastarf
sitt í kirkjunni og þá ekki síst æskulýðsstarfið. Hannes J. Magnússon
(1899–1972) skólastjóri á Akureyri og ritstjóri Heimilis og skóla, tíma-
rits Kennarafélags Eyjafjarðar um uppeldismál, lýsti starfi Péturs svo
á fyrstu árum hans í starfi:
Eitthvert þróttmesta æskulýðsstarf, sem nú mun unnið vera innan íslenzku
kirkjunnar, er starfsemi séra Péturs Sigurgeirssonar, prests á Akureyri. Þegar
hann gerðist sóknarprestur á Akureyri fyrir 5–6 árum hóf hann þegar þrótt-
mikið og fjölbreytt starf meðal barna og unglinga í söfnuðinum. Séra Pétur
er óvenjulegur maður sakir áhuga síns og fórnfýsi í starfi sínu og leggur á sig
óhemju mikið erfiði fyrir þessa starfsemi. Ég trúi ekki öðru en að hann upp-
skeri af því starfi í framtíðinni.176
Þegar Pétur varð sextugur 1979 og aðeins fá ár lifðu eftir af prestskap