Andvari - 01.01.2019, Page 69
68 HJALTI HUGASON ANDVARI
Pétur hefði komið með teikninguna frá Ameríku. Bjó Pétur þar með
fjölskyldu sinni frá sumrinu 1950 uns þau hjónin fluttust í biskupsgarð
í Reykjavík eða í rúm 30 ár.272
Kristín, tengdamóðir Péturs, var dóttir Matthíasar Eggertssonar
(1865–1955) er þjónaði Grímsey sem prestur frá 1895 til 1937 er hann
fékk lausn frá embætti rúmlega sjötugur að aldri. Mörkuðu hann og kona
hans, (Mundína) Guðný Guðmundsdóttir (1869–1956), ýmis þáttaskil
í eyjunni.273 Er þau hurfu á brott var skammt í að Miðgarðaprestakall
yrði lagt af. Síðastur sat þar Róbert Jack sem fyrr er nefndur frá 1947
til 1953.274 Eftir það annaðist Pétur persónulega prestsþjónustu við
Grímseyinga um langt skeið meðfram störfum sínum á Akureyri. Má
því líta svo á að hann hafi þar með orðið eftirmaður Matthíasar, afa
Sólveigar. Tók hann miklu ástfóstri við eyjuna og skrifaði m.a. bók um
hana, staðhætti, mannlíf og menningu auk starfa sinna þar.275 Virðist
þjónustan í Grímsey hafa verið Pétri mikils virði og lífgað upp á starf
hans þótt oft hefði hún ýmiss konar erfiðleika í för með sér og væri
stundum harðsótt vegna tíðarfars og skorts á reglubundnum samgöng-
um. Vel má vera að þar hafi skipt miklu að faðir hans fól honum þjón-
ustuna persónulega er hann vísiteraði í Grímsey 1953. Vegna þjónustu
sinnar þar kallaði Pétur sig stundum „þjón hafkirkjunnar“ og sóknar-
fólkið „sjávarsöfnuðinn“.276 Kostaði Pétur kapps um að komast út í
eyjuna a.m.k. ársfjórðungslega og tóku ferðirnar oftast þrjá daga. Alls
mun hann hafa farið í 116 embættisferðir í eyjuna. Þar beitti hann eftir
því sem kostur var sömu aðferðum og á Akureyri og stofnaði t.d. æsku-
lýðsfélag í Grímsey 1964. Framan af ferðaðist hann jafnan sjóleiðis
og gat farkosturinn verið allt frá varðskipi til fiskibáts. Eitt sinni fór
hann jafnvel með freigátu úr flota hennar hátignar Bretadrottningar
en þá fyrir hálfgerð mistök. Atvikið sýnir þó hlið á Pétri sem göml-
um Akureyringi er ekki alveg ókunn. Hann hafði veitt því athygli að
við Oddeyrartanga lá skip er honum virtist frá Landhelgisgæslunni og
hugðist að venju fá að fljóta með út í eyjuna. Þegar á hafnarbakkann
kom sá hann hvers kyns var. Það lét hann þó ekki slá sig út af laginu
heldur bar upp bónina við kafteininn borðalagðan í bak og fyrir þótt
hún virtist fjarstæðukennd. Flotaforinginn varð þó við bón prestsins.
Síðar tóku flugsamgöngur við þótt ekki væru þær endilega tryggari
vegna erfiðra veður- og lendingarskilyrða.277
Pétur Sigurgeirsson var kjörinn vígslubiskup og vígður til þess emb-
ættis á Hólum 24. ágúst 1969.278 Á þessum tíma giltu upphafleg lög