Andvari - 01.01.2019, Page 72
ANDVARI SÉRA PÉTUR SIGURGEIRSSON 71
sem hann ritaði kominn fast að áttræðu lagði hann þó af sér „biskups-
skrúðann“ og kom fram af þeirri fölskvalausu einlægni og lítillæti sem
þeim er til þekktu blandaðist ekki hugur um að var honum í blóð borið.
En þar greindi hann á hispurslausan hátt frá þeirri þungu raun sem þau
hjónin áttu að mæta á biskupsárunum er Guðrún dóttir þeirra sem átti
við erfiðan sjúkdóm að stríða sá, þrátt fyrir einlæga trú, ekki annað
úrræði en að „[…] flýta fyrir dauða sínum […]“ eins og Pétur komst
að orði.286 Þarna rauf reyndur prestur og sálgætir þagnarmúr sem var
þykkur á þessum tíma og deildi eigin harmi með lesendum sínum sem
hljóta að dást að þreki hins aldna biskups. Má fullvíst telja að hann hafi
með þessu sýnt þeim ótalmörgu okkar á meðal sem eiga við svipaðar
aðstæður að etja ómetanlega samstöðu, samhug og hvatningu.
Pétur Sigurgeirsson lést 4. júní 2010 á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í
Reykjavík þar sem hann dvaldi síðustu mánuðina. Hafði þá sykursýki
sem hann hafði átt við að stríða síðan í upphafi áttunda áratugar lið-
innar aldar tekið sinn toll en hún hafði á tímabilum háð honum mikið í
starfi og utan þess.287 Útför hans fór fram frá Hallgrímskirkju 11. s.m.
Karl Sigurbjörnsson biskup jarðsöng en Kristján Valur Ingólfsson,
síðar vígslubiskup í Skálholti, mælti yfir moldum hans. Um biskupinn
Pétur Sigurgeirsson fórust honum m.a. svo orð:
Pétur stýrði biskupsembættinu af sömu ljúfmennsku og einkenndi öll hans
störf. Hann var mjög vel vakandi fyrir nauðsyn góðra samskipta milli kirkj-
unnar og allra þeirra sem komu að velferðarmálum í landinu, og hélt vel við
traustum tengslum við Alþingi og ráðamenn þjóðarinnar og ekki síður allan
almenning í landinu. Hann vildi efla samstarf allra þeirra sem játuðu kristna
trú og unnu kristnum sið. Hann hafði breiðan faðm sem var opinn öllum.288
Dr. Gunnar Kristjánsson, þá prófastur á Reynivöllum í Kjós, var einn
þeirra fjölmörgu sem rituðu í minningu Péturs á útfarardaginn. Þar
greindi hann stöðu Péturs á líkan hátt og hér hefur verið gert. Hann
ritaði m.a.:
Séra Pétur mótaðist sem guðfræðingur á stríðstímum og á uppbyggingarár-
unum í kjölfar þeirra. Hann var fulltrúi framsækinnar kirkjustefnu sem þekkti
mótlæti stríðsins en fann að starf hennar átti hljómgrunn og boðskapur hennar
féll í góða jörð á tímum þegar spurt var um nýja von í hrundum heimi. Í því
efni ávaxtaði hann arf hinnar breiðu, samfélagslega sinnuðu, frjálslyndu þjóð-
kirkjuhefðar með áherslu á aðkomu að málefnum líðandi stundar, hvort sem
var á vettvangi hinnar pólitísku umræðu, á sviði menntunar og menningar eða