Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2019, Side 113

Andvari - 01.01.2019, Side 113
112 SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR OG ÞÓRA SIGRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR ANDVARI Hvað get ég gert fyrir yður, frú Eilífs? Borgað mér, svaraði konan í blíðum rómi, næstum því ísmeygilegum. Ég er komin til að rukka yður. Rukka mig? Valþór rak auðheyrilega í rogastanz; Um hvað, kæra frú, um hvað? Ég er að rukka fyrir manninn minn, sagði konan. Það hefur gleymzt að borga honum öll kvæðin hans, þessa líka litlu dobíu sem þér hafið látið prenta í blaðinu yðar [...] Svo á hann líka eftir að fá allar ritgerðirnar sínar borgaðar og þær eru þrjá- tíu og fjórar [...] það eru þá sex þúsund og tvö hundruð krónur sem maðurinn minn á að fá, en auðvitað ætti hann skilið að fá miklu meira fyrir svona gommu. [...]. Var maðurinn yðar samþykkur því að þér færuð til mín þeirra erinda að krefja mig um sex þúsund og tvö hundruð króna ritlaun? Hvað eigið þér við? Spurði konan og brýndi röddina lítið eitt. Haldið þér kannski að ég sé að fara á bak við manninn minn? Nei, kæra frú, vitaskuld hvarflar það ekki að mér. En – af hverju kom hann ekki sjálfur? Af því að hann á að hafa næði til að yrkja! Svaraði konan um hæl. Hann á ekki að þurfa að standa í svona rukkiríi, þjóðfrægt skáldið og kominn á fínustu greinina á þessum hérna fjárlögum!“ (Seiður og hélog, 193–194.) Þegar Valþór neitar að borga er brosið á bak og burt, varir konunnar strengjast, augun skjóta gneistum: „Þú skalt ekki halda, að þér getið kjaftað mig upp, sagði hún hásum rómi. Ég ætla bara að láta yður vita að ég er enginn bjáni!“ (Seiður og hélog, 195). Frú Hanna strigsar öskureið út úr skrifstofu Valþórs: „Þú skalt fá að borga, karl minn! Þú skalt fá að borga!“ (Seiður og hélog, 196). Þegar náðst hefur niðurstaða í málið og Páll er sendur til skáldsins með greiðslu stendur frú Hanna í vegi fyrir honum og vill ekki að hann afhendi skáldinu peningana: „Maðurinn minn er að yrkja,“ segir hún og hnykkir til höfðinu „og mér dettur ekki í huga að láta ónáða hann, eins og allt er í pott- inn búið“ (Seiður og hélog, 202). Páll fær þó að hitta Aron um síðir, eftir að hafa beðið hans um stund í stofunni og virt undrandi fyrir sér vel valin mál- verk sem prýddu veggina. Þegar Páll hittir Aron í Hljómskálagarðinum kvartar skáldið undan fjár- hagnum og segir við Pál: Konan – ja hún gæti kannski séð um sig að nokkru leyti, sagði hann, hefði víst ofboðlítið upp úr þessum púðum, sem hún væri einlægt að sauma og seldi jafn- óðum. Og fleira kæmi vissulega til. Í hittiðfyrra hefði það allt í einu orðið deginum ljósara, að hún væri gædd dulrænum gáfum, óvenjumiklum miðilshæfileikum og að frumkvæði fyrrverandi menningarstjóra ríkisins hefðu þau hjónin verið að undanförnu á fundum hingað og þangað, þar sem hann kvaðst hafa lesið eftir sig ljóð og laust mál áður en konan féll í trans, hóf skyggnilýsingar sínar og svaraði spurningum samkomugesta. Auðvitað hryti þó nokkuð af henni svo sem verðugt væri fyrir annað eins álag og trans.“ (Drekar og smáfuglar, 340.)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.