Andvari - 01.01.2019, Blaðsíða 157
156 GERÐUR STEINÞÓRSDÓTTIR ANDVARI
Hún er brún af elli
Ég hef látið þau orð falla að Uppsala-Edda sé brún af elli. Hún er sjö hundr-
uð ára gömul skinnbók. Í henni eru 56 blöð og þau eru 20 cm á hæð og 14,5
cm á breidd. Við gerð hennar hefur þurft fjórtán kálfsskinn. Fræðimenn hafa
aldursgreint handritið og telja það vera frá fyrri hluta 14. aldar.
Saga hennar er myrkri hulin í þrjú hundruð ár en þá eignaðist Brynjólfur
biskup Sveinsson hana. Fremst í handritinu stendur að bókin heiti Edda og
hana hafi saman sett Snorri Sturluson. Brynjólfur gaf dönskum vini sínum,
Stephanus Johannis Stephanius, handritið. Hann var prófessor í Sórey, kon-
unglegur sagnaritari og handritasafnari. Eftir lát hans seldi ekkjan bókasafn
hans Magnus Gabriel De la Gardie. Hann var ríkiskanslari Svía og mikill
handritasafnari. De la Gardie gaf Háskólanum í Uppsölum mörg handrit árið
1669. Meðal þeirra var Edda sem fékk safnnúmerið DG 11 4to og nefnd
Codex Upsaliensis.
Snorra-Edda er kennslubók í skáldskaparfræðum þar sem notað er sam-
talsform sem algengt var á miðöldum. Lærisveinninn spyr og meistarinn
svarar. Skáldskaparmálið varð til á tímum heiðni og því var mikilvægt að
þekkja þær goðsagnir sem skáldamálið byggði á. En Snorra var mikill vandi
á höndum. Þjóðin var kristin og strangar reglur giltu um trúariðkun. Mesta
snilld Snorra felst í þeirri aðferð að gera frásögnina að sjónhverfingu þegar
hann lýsir heimsmynd goðanna, sköpun heimsins og ragnarökum.
Gylfaginning hefur fyrirsögn: „Hér hefst Gylfaginning frá því Gylfi sótti
heim alföður í Ásgarð með fjölkyngi og frá villu ása og frá spurningum Gylfa.“
Teikningin myndar ramma frásagnarinnar. Hún sýnir Gylfa í gervi
Ganglera kominn í Ásgarð. Hann stendur vinstra megin á myndfletinum,
hallast fram á förumannsstaf og mænir upp á Þriðja. Fyrir ofan höfuð hans
stendur skrifað, „Gangleri spyr“. Hægra megin á myndfletinum eru þrjú há-
sæti hvert upp af öðru og þrír konungar með kórónu. Efst til vinstri stendur:
„Hér er Hár, Jafnhár og Þriðji sem segir í Gylfaginning.“ Á síðunni er fleira
en talið fullvíst að það sé síðari tíma viðbót. Hér er átt við minni útgáfu af
Ganglera að baki hinum upprunalega, tvo hausa af honum neðst á blaðinu
svo og kringlótt andlit með kórónu á höfði hægra megin við Þriðja. Það and-
lit átti eftir að breytast í sólartákn í endurgerðum sænsku fræðimannanna.
Hverning samræmist teikningin frásögn Snorra? Í frásögninni segir: „Sá
er í neðsta sæti situr er konungur og heitir Hár, og þar næst Jafnhár. En sá er
efstur er heitir Þriðji.“ Gangleri spyr hvort nokkur fróður maður sé þar inni.
Hár segir að hann komi eigi heill út, nema hann sé fróðari. Og segir: „Stattu
fram meðan þú fregn. Sitja skal sá er segir.“ Fyrsta spurning Ganglera er:
„Hver er æðstur eða elstur með goðum?“ Og það er Hár sem svarar fyrst, en
annars svara þeir þrír á víxl.