Andvari - 01.01.2019, Qupperneq 168
ANDVARI AÐ SÁ Í AKUR ÓVINAR SÍNS 167
að Halldór hafi þekkt þetta verk sem kemur út þegar hann er unglingur og
var áreiðanlega rætt talsvert manna á meðal hérlendis.10 Gera má því ráð
fyrir að í orðalaginu í útlendum bókum sé fólgin tvenns konar vísun, það er
annars vegar í Biblíuna en hins vegar jafnframt í skáldsögu Johans Bojers.
Til þess að ljúka þessari stuttu umfjöllun er rétt að birta hér í lokin brot
úr bréfinu sem Pétur ritar vini sínum.11 Glögglega má greina hversu Bojer er
mikið í mun að leita að æðri tilgangi í lífi nútímamannsins, eins og raunar
mörgum öðrum á skelfingartímum fyrri heimsstyrjaldarinnar:
― Maðurinn verður að hefja sig hátt og vera betri en þau hin blindu örlög, er ráða
leiðum hans. Hann verður að sjá um það, hvaða ólán sem honum ber að höndum,
að guðseðlið líði ekki undir lok. Það var eilífðarneistinn í mjer, sem aftur blossaði
upp og bauð: „Verði ljós!“
TILVÍSANIR
1 Hallberg, Peter: 1987. „Listin að ljúka sögu. Minnisgreinar um skáldskap Halldórs
Laxness [Fyrri hluti].“ Tímarit Máls og menningar. 48. árg. 1987. 1. hefti, bls. 84–102.
2 Halldór Kiljan Laxness: 1952. Sjálfstætt fólk. Önnur útgáfa, Reykavík, bls. 467.
3 Halldór Kiljan Laxness: 1952. Sjálfstætt fólk. Önnur útgáfa, Reykjavík, bls. 468.
4 Sjá t.d. Halldór Guðmundsson: 1996. „Glíman við Hamsun. Sjálfstætt fólk og Gróður
jarðar.“ Tímarit Máls og menningar 1996, 57. árg., 3. hefti: bls. 74 (og rit sem þar er vitnað
til).
5 Halldór Kiljan Laxness: 1952. „Það haust [1932] fór ég til Ráðstjórnarríkjanna að kynn-
ast stöðu bænda í þjóðfélagsskipuninni þar, en einmitt á þeim misserum var samyrkju-
hreyfingin að ryðja sér til rúms í landi þessu.“ Eftirmáli við Sjálfstætt fólk. Önnur útgáfa,
1952: bls. 471.
6 Sjá t.d. Vésteinn Ólason: 1977. „Að éta óvin sinn – Marxisminn og Sjálfstætt fólk.“ Sjötíu
ritgerðir helgaðar Jakobi Benediktssyni. Síðari hluti. Stofnun Árna Magnússonar, 1977.
Reykjavík, bls. 779–789.
7 Biblían 1981. Matteus 13. 24–30.
8 Hannes Hólmsteinn Gissurarson: 2004. Kiljan. 1932–1948. Ævisaga Halldórs Kiljans
Laxness. 2. bindi. Bókafélagið, Reykjavík, 2004: bls. 112.
9 Bojer, Jóhann: 1918. Insta þráin. Þýtt hefur Björg Þ. Blöndal. Kaupmannahöfn, prentað
hjá H.H. Thiele, 1918: bls. v.
10 Meðal annars er umsögn í Ritsjá Iðunnar 4. árg. Janúar 1919. Bls. 239–240. Einnig í 19.
júní 2. árg. 4. tölublað: bls. 26–27.
11 Bojer, Johann: 1918. Insta þráin. Þýtt hefir Björg Þ. Blöndal. Kaupmannahöfn, 1918, bls.
247.