Gátt - 2009, Page 40

Gátt - 2009, Page 40
40 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9 Á atvinnuleysistímabili síðasta ára- tugar tuttugustu aldar urðu fámennu byggðarlögin með sitt einhæfa atvinnulíf oft hart úti og atvinnuleysi var árvisst þegar fiskvinnslan brást. Fólk með stutta formlega skólagöngu stóð verr að vígi á vinnumarkaði en aðrir. Þá, eins og í atvinnuleysinu núna, var gripið til ýmissa úrræða til að styrkja stöðu atvinnuleitenda, m.a. með nám- skeiðum sem haldin voru í samvinnu Vinnumálastofnunar, stéttarfélaga og símenntunarmiðstöðva víða um land. Um ýmiss konar námskeið var að ræða og þjónuðu þau margvíslegum tilgangi. Þau juku þekkingu einstaklinga og höfðu auk þess félagslegt gildi og minnkuðu hættu á ein- angrun atvinnuleitenda. Námskeiðin voru hins vegar flest einskorðuð við 20 kennslustunda áfanga og efnisinntak og fjármagn til þeirra var takmarkað. Þannig voru t.d. tölvunám- skeið vinsæl og talsvert fjölbreytt, kenna mátti matreiðslu og bútasaum en hvorki matjurtarækt né garðyrkju. Uppbygging einstaklingsins var ekki markviss og litlar kröfur voru í raun gerðar til þess að hann tæki ábyrgð á eigin þroska og skoð- aði hlutverk sitt í samfélaginu. Þessi námskeið voru þau einu sem símenntunarmið- stöðvar gátu boðið og ekki var möguleiki á neins konar nýbreytni eða tilraunastarfi. Þegar úrval námskeiða, sem stóð Farskóla Norðurlands vestra til boða, var um það bil uppurið og atvinnuleysi enn við lýði var farið að skoða aðrar leiðir til uppbyggingarstarfs. Þá beindust sjónir að Evrópusamband- inu, nánar til tekið að Leonardo da Vinci-starfsmenntaáætl- uninni, en þangað gafst færi á að sækja um stuðning til allt að 75% kostnaðar við menntunar- og þjálfunarverkefni, frá einu til þriggja ára að lengd. Síðan þetta var hefur margt breyst í fræðslumálum og fjölmargar leiðir opnast fólki sem vill byggja sig upp og bæta þannig möguleika sína á vinnumarkaði. H O F S Ó S Hofsós var eitt þeirra fámennu byggðarlaga sem glímt hafði við árvisst og árstíðabundið atvinnuleysi en atvinnulífið þar einkenndist af útgerð smábáta, fiskvinnslu og þjónustu við landbúnað nærsveitanna. Og eins og í öðrum byggðarlögum við svipaðar aðstæður fækkaði íbúum jafnt og þétt. Hofsós „ V I Ð E R U M B E T R I E N Á Ð U R O G E I G U M B E T R I N Á G R A N N A “ H V A Ð G E T U R R E Y N S L A N A F „ B R E Y T U M B Y G G Ð “ K E N N T O K K U R ? ANNA KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR Anna Kristín Gunnarsdóttir Árið 2000 fékk Farskólinn, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, hæsta styrk sem komið hafði til menntunar- verkefnis á Íslandi úr Leonardo da Vinci-starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Styrkurinn var til þriggja ára verkefnis Breytum byggð, samstarfsaðilar voru átta og frá fimm löndum. Íbúum byggðarlaga, sem bjuggu við samdrátt í hefðbundnum atvinnugreinum, var boðin ókeypis kennsla í greinum sem talið var að myndu auðvelda innkomu eða breytingu á vinnumarkaði. Megináherslan var á að auka sjálfstraust og samheldni íbúanna en stjórnandi verkefnisins var þess fullviss að forsenda þess að fólk nýti hæfileika sína sér og samfélaginu til framdráttar sé að það trúi á getu sína til að menntast og til að takast á við ný verkefni. Markmiðið var þríþætt: 1. Að skapa námssamfélag með því að reyna að ná til sem flestra og ólíkra einstaklinga í samfélaginu. 2. Að efla færni og samkeppnishæfni einstaklinga með því að skapa jákvætt viðhorf til breytinga og nýrrar þekkingar. 3. Að auka gæði símenntunar og aðgengi að starfsþjálfun og símenntun. Þátttaka var mikil og andrúmsloft í byggðarlaginu breyttist smám saman. Sex árum eftir að verkefninu lauk er það mat íbúa á svæðinu að það hafi haft varanleg áhrif á samfélagið á Hofsósi, bæði félagslega og samfélagslega, og enn eru verkefni í gangi sem sprottið hafa upp úr þessari vinnu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.