Læknaneminn - 01.10.1995, Síða 12
Léttir af
þungu fargi
Framleiðandi: Lyfjaverslun íslands hf.,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Nafn sérlyfs: Fluoxin. HYLKI; N 06 A B 03
Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð,
samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg eða 20 mg.
Eiginleikar: Flúoxetín er geödeyfðarlyf, sem er taliö
blokka endurupptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda í heila.
Flúoxetín minnkar matarlyst. Lyfið hefur lítil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boöefni í heila.
Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetíns í blóði er 2-3 dagar.
Aðalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-
9 dagar. Próteinbinding í plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út í þvagi, að mestu
sem umbrotsefni. Vegna þess hve helmingunartími lyfsins er langur koma breytingar á skammtastærðum
ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábendingar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt,
langvarandi þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Matgræðgiköst (bulimia nervosa). Þráhyggjusýki (obsessive-
compulsive disorder). Frábendingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúöar ber að gæta við
flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Aukaverkanir: Ógleði,
óróleiki, minnkaður svefn, höfuðverkur, skjálfti, kvíði, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi með
útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfiö má ekki nota með MAO-hemjandi lyfjum og þar sem lyfið og
umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir að töku þess er hætt, er ekki óhætt að nota
MAO-hemjandi lyf fyrr en liöið hafa a.m.k. 5 vikur frá því að töku flúoxetíns er hætt. Ekki ætti að nota tryptófan með
þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtímis gjöf af flúoxetíni og þarf að fylgjast vel meö litíummagni í
blóöi. Athugiö: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist í byrjun meöferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera
undir mjög góöu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Skammtastærðir handa fullorönum: Venjulegur
upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki
fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Við matgræðgiköstum: Skammtar
eru oftast 40 - 60 mg á dag. Viö þráhyggjusýki: Upphafsskammtur er 20 mg á dag. Ef ekki næst viðunandi árangur, má auka
skammtinn eftir 3-4 vikur. Hærri skammta en 20 mg á að gefa í tveimur skömmtum á dag. Hámarksskammtur er 80 mg
daglega. Við mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og hjá öldruðum getur þurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Útlit: 10 mg hylki: Eru græn og Ijósblá og innihalda litarefnin kínólíngult (E 104), indigótín (E 132) og títantvíoxíð (E 171).
20 mg hylki: Eru vínrauð og græn og innihalda litarefnin kínólíngult (E 104), indigótín (E 132), títantvíoxíð (E 171) og
erýtrósín (E 127). Pakkningar: Hylki 10 mg: 30 stk./100 stk. Hylki 20 mg: 30 stk./100 stk.
Geðdeyföarlyf
meö eiginleika
frumlyfs á verði
samheitalyfs
:luoxin
flúoxetín