Læknaneminn - 01.10.1995, Síða 21
RIMARIX
i i
móklóbemíð
Rimarix er áhrifaríkt íslenskt
geðdeyfðarlyf af flokki RIMA-lyfja
(reversible inhibitors of
monoamine oxidase-A).
Ánægjulegir kostir:
• Islensk framleiðsla.
• Þrír styrkleikar, m.a. 300 mg töflur.
• Fylgiseðill á íslensku með hverri pakkningu.
• Heimilt að ávísa allt að 100 daga skammti.
'Sð'n sem al«'
^famleiðandi: Lyfjaverslun íslands hf., Borgartúni, 105 Reykiavík
Nafn sérlyfs: Rimarix
TOFLUR: N 06 A G 02
Hver tafla inniheldur: Moclobemidum INN 100 mg, 150 mg eða 300 mg.
Eiginleikar: Móklóbemíð er geðdeyfðarlyf af flokki nýrra MAO-blokkara (RIMA,
revers/b/e inhibitor of monoamine oxidase-A) sem blokka mónóamínoxidasa A (MAO-A),
serhæft og afturkræft. Lyfið veldur því að styrkur noradrenalíns, dópamíns og
serótóníns eykst, þar sem umbrot þessara efna minnkar. Þar sem móklóbemíð blokkar
MAO-A afturkræft eru ekki taldar líkur á blóðþrýstingshækkun vegna milliverkana við
týramín. Aðgengi lyfsins við langtímanotkun er allt að 90%. Blóðþéttni nær hámarki um
klst. eftir inntöku, dreifingarrúmmál er nálægt 1,2 l/kg og próteinbinding í plasma er
urn 50%. Helmingunartími í blóði er 1-2 klst. og lengist lítillega með vaxandi
skömmtum. Umbrot er háð skömmtum og lyfið oxast nær algjörlega í óvirk
Þmbrotsefni, sem skiljast út í nýrum.
Abendingar: Geðdeyfð, aðallega innlæg geðdeyfð. Erfið eða langvarandi útlæg
geðdeyfð.
i J^rábendingar: Bráð ruglun (confusio mentis).
£ Meðganga og brjóstagjöf. Ofstarfsemi skjaldkirtils. Pheochromocytoma. Samtímis
£ ^otkun selegilíns. Ofnæmi fýrir innihaldsefnum lyfsins.
Aukaverkanir: Algengar (>l%): Svimi, höfuðverkur, ógleði, niðurgangur og
svefntruflanir. Sjaldgæfar(< 1%): Slappleiki, blóðþrýstingslækkun, bjúgur, breytingar á
bra§ðskyni, lystarleysi, meltingartruflanir, munnþurrkur, rugl og óróleiki.
Milliverkanir: Milliverkun við týramín hefur ekki klíníska þýðingu, en þó er mælt með
því að lyfið sé tekið inn eftir mat. Címetidín hægir verulega á umbroti móklóbemíðs og
því getur þurft að minnka móklóbemíð skammta við samtímis gjöf þessara lyfja.
Móklóbemíð eykur áhrif íbúprófens og morfínlíkra lyfja og getur aukið áhrif
adrenvirkra lyfja. Hefja má meðferð með öðrum geðdeyfðarlyfjum (m.a. þríhringlaga
lyfjum) strax og notkun móklóbemíðs hefur verið hætt og öfugt.
Varúð: Minnka þarf skammta hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi.
Sjálfsmorðshneigð getur aukist í upphafi meðferðar.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur byrjunarskammtur er 300 mg á
dag, venjulega gefið í 2-3 skömmtum. Ef þörf þykir má auka skammtinn í 600 mg á dag,
en þó ekki fyrr en sjúklingurinn hefur tekið lyfið í I viku, þar sem aðgengi lyfsins eykst
á fyrstu dögum meðferðar. Venjuleg lengd meðferðar er 3-6 mánuðir. Þegar árangur
kemur í Ijós má minnka skammtinn. Taka skal lyfið inn eftir máltíð. Sjúklingum með
skerta lifrarstarfsemi skal gefa minni skammta.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Pakkningar og verð 1.7.’95: lOOmgtöflur: 30 stk. 2.116 kr. / 100 stk. 5.916 kr.
150 mg töflur: 30 stk. 2.678 kr. / 100 stk. 7.997 kr.
300 mg töflur: 30 stk. 4.523 kr. / 100 stk. 13.412 kr.
Afgreiðslutilhögun: R
Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga: B