Læknaneminn - 01.10.1995, Page 56
BÓLGUHNÚÐAR
Mynd 2 Sýni úr lifur með tveimur bólguhnúðum (ör) (x!60).
Mynd 3 Bólguhnúður í lifur, hœrri stækkun (milli örva) (x400).
Mynd 4 Sýni frá lifur með íferð froðukenndra átfruma á portal
svœði (breið ör), gallgangur (mjó ör) (x400).
(tafla3). Hvaða sjúkdómar eru al-gengustu
orsakavaldar bólguhnúða í lifur fer eftir
staðsetningu í heiminum. Samantektir í
Bandaríkjunum sýna að sarcoidosis og berklar
eru algengustu sjúkdómarnir eða um 25%
tilfella hvor.
Skynsamlegt væri fyrir uppvinnslu okkar að
athuga hvaða bólguhnúðasjúkdómar hafa ekki
greinst hér á Islandi og nota þá aðferð til að
fækka mismunagreiningum, þar sem ólíklegt er
að sjúklingur okkar hafi hlotið þá (tafla 3).
Einnig getum við með nokkurri vissu útilokað
orsakir af völdum lytja, þar sem sjúklingur
hefur ekki tekið þessi lyf, þó hugsanlega hafi
hann verið útsettur fyrir þeim í starfi sínu.
Væntanlega þekkir þú vel þessa sjúkdóma en
til að gera umfjöllunina fyllri munum við taka
hvern og einn fyrir með sérstöku tilliti til sjúkra-
sögu sjúkratilfellis okkar.
Berklar er fornfrægur sjúkdómur sem ennþá
er til staðar sem sýkingarvaldur hér á landi.
Þrátt fyrir ítarlegar berklavarnir og meðhöndlun
allra berklatilfella, greinast á íslandi um 10-15
manns með berkla á hverju ári. Orsök berkla er
bakterían Mycobacterium tuberculosis sem er
sýrufastur stafur og smitast milli manna með
öndunarfæra smiti. Við frumsmit eru sjúklingar
venjulegast einkennalausir, eitlastækkanir við
lungnarætur og pneumonitis sjást þó iðulega á
lungnamynd. Einkenni berkla koma síðan fram
innan 3 ára frá smiti þegar endurvakning (re-
activation) á bakteríunni á sér stað. Einkenni eru
þá helst hiti, megrun, máttleysi, þreyta og
nætursviti Eru það jafnvel einu einkennin þó
sjúklingur hafi lungnaberkla, en langvinn-
ur hósti er algengasta einkennið frá öndunar-
færum.
Nýrnaberklar greinast oftast í upphafi sem
smásæ rauð- og hvítblóðkornamiga ásamt
neikvæðri almennri bakteríuræktun. í lengra
gengnum sjúkdóm verður holumyndun
(cavitatio) í nýra. Mikilvægasti greiningar-
þátturinn er að sjá eða rækta berklabakteríuna
sjálfa úr þvag- eða nýrnasýnum.
46
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.