Læknaneminn - 01.10.1995, Qupperneq 95
dna bóluefni
enn óbirtar. Er þar um að ræða inngjöf á DNA
sem ákvarðar það æxlisantigen sem með vissu er
þekkt í mönnum, þ.e. mótefnasameind á B-
frumuæxli. Enn er of snemmt að segja nokkuð
um árangur að öðru leyti en því, að það tókst að
vekja mótefnasvar (3 og Stevenson, munnl.
uppiýsingar).
Enn er að sjálfsögðu mörgum spurningum
ósvarað, en þær tilraunir sem hafa verið gerðar
sýna að DNA bóluefni geta vakið Thl og Th2
svörun, mótefnasvörun og T-drápsfrumur. Sumar
tilraunir hafa sýnt mun á hlutfalli Thl og Th2
svörunar við enduteknar gjafir og þarf greinilega
að rannsaka það betur. Einnig þarf að velta fyrir
sér öryggismálum, sérstaklega ef gefið er í vöðva
þar sem DNA virðist endast lengi (2). Er hætta á
illkynja umbreytingu? Hvaða áhrif hefur það að
hafa framandi antigen í líkamanum mjög lengi?
Er hætta á myndun sjálfsofnæmis? Notagildi
DNA bóluefna er lika mjög háð rækilegri
þekkingu á viðkomandi sýkli og því hvaða
antigen skipta máli í sjúkdómstilurð. Tíminn á
eftir að leiða í Ijós hvort DNA bóluefni geta
sameinað kosti dauöra og lifandi bóluefna,
hversu laus þau séu við gallana og, kannski ekki
sízt, hvort þau hafa aðra og verri galla, en
hugmyndin er allavega sniðug.
Heimildir
1. DONNELLY, JJ, ULMER, JB & LIU, MA. (1994) Immunization
with polynucleotides. A novel approach to vaccination. The
Immunologist, 2, 20-26.
2. ROBERTSON, JS. (1994) Safety considerations for nucleic acid
vaccines Vaccine, 12, 1526-1528.
3.STEVENSON, F & HAWK.INS, RE. (1994) Molecular vaccines
against cancer. The Immunologist, 2, 16-19.
4. TANG, D-c, DEVIT, M & JOHNSTON, SA. (1992) Genetic
immunization is a simple method for eliciting an immune
response. Nature, 356, 152-154.
5. ULMER, JB, DONNELLY, JJ, PARKER, SE, RHODES, GH,
FELGNER, PL, DWARKI, VJ, GROMKOWSKI, SH, DECK,
RR, DEWITT, CM, FRIEDMAN, A, HAWE, LA, LEANDER,
KR, M ARTINEZ, D, PERRY, HC, SHIVER, JW,
MONTGOMERY, DL & LIU, A. (1993) Heterologous
protection against influenza by injection of DNA encoding a
viral protein. Science, 259, 1745-1749.
Burl með vímuefnin
- burt með ofbeldið!
VESTURBÆJAR
APÓTEK
MELHAGA 20-22 (GEGNT SUNDLAUG VESTURBÆJAR)
SÍMI 552-2190
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.
85