Læknaneminn - 01.10.1995, Qupperneq 145
ABSTRAKTAR
sem hægt er nota til að mynda frumulínur. Til þess að genið sé tjáð í
sem flestum vefjum er það haft undir stjórn CMV genahvatans sem er
mjög öflugur og tjáður í öllum veQum.
Efniviður og aðferðir: Byrjað var með 2,7kb Bgll-Hpal SV40
stóra T-æxIisvækisins, sem hafði bæði tsA58(hitanæmni) og U19(super
immirtalizing) stökkbreytingarnar. Því hafði verið komið fyrir við MLV
LTR genahvatann í pZIP-NEOSV(X) 1 genaferjunni. E. coli DH(
bakteríur voru svo notaðar til að margfalda genaferjuna.
SV40U19tsA58 T-Ag var svo klippt út með BamHI skerðiensími og
flutt yfir í pcDNA3 genaferjuna sem inniheldur CMV-genahvatann.
Eftir að hafa ræktaó það upp í DH( bakteríum var genið raðgreint með
Sanger DNA-raðgreiningaraðferðinni til að finna stofn þar sem genið
hafði rétta stefnu. Til að kanna tjáningu á því undir stjórn CMV
genahvatans voru CV-I frumur sýktar með pcDNA3, eða pZip
genaferjunni til samanburðar. Til að koma geninu fyrir í frumunum var
borinn saman árangur lípófektamín-aðferðarinnar og CaP04 útfellingar.
Til að meta árangur genaflutningsins var genaferju sem tjáði 13-gal.
einnig komið fyrir í CV-1 frumum og þær svo litaðar. Frumurnar voru
svo ræktaðar í þrjá daga við annað hvort 33°C eða 39,5°C. Þær voru
því næst merktar með SV40-mótefnum. Þaó var svo litað meó
flúoroskínandi mótefni og það skoðað í smásjá. Einnig var gerð tilraun
með að koma geninu inn í lifrarfrumur úr rottum meó genaflutningi og
þær ræktaóar við 33°C og 39°C.
Niöurstöður: Með því að lita frumurnar, sem höfðu verið sýktar
með B-gal., kom í ljós að mun betri árangur fékkst meö því að nota
lípófektamín en CaP04 eða um 70-80% árangur á móti u.m.þ.b. 30%.
Lítið sást hins vegar við mótefnalitun gegn SV40TAg geninu. -^rlítió
greindist í sumum frumum og þá bæði í kjarna og umfrymi en
SV40TAg er kjarnaprótein og ætti einkum að vera bundið við kjarnann.
Ekki vannst tími til að fylgja lifrarfrumunum eftir til að athuga hvort
einhverjar þeirra næðu að mynda stofna.
Efnisskil: Haldió verður áfram með genaflutning in í CV-1 frumur
og tjáning og virkni gensins könnuð. Það að geta myndaó frumulínur,
sem hægt er að láta sýna þroskaða myndgerð úr nánast hvaða vef sem er
úr músun, er geysilega heillandi og á án vafa eftir að nýtast við margs
konar rannsóknir.
Afrit:
Stjórn F.L.
Læknaneminn.
Bryndís Sigurðardóttir.
ÁMINNING VEGNA BROTS
Á REGLUGERÐ FÉLAGS LÆKNANEMA UM RÁÐNINGAR
STÖÐUVEITINGAR Á VEGUM F.L. ERU BINDANDI:
Bryndís Sigurðardóttir
í lok maí 1995 var haldinn ráðningafundur fyrir sumarið eins og undanfarin ár. Á þessum fundi voru þér
veittar 2 aðstoðarlæknisstöður, að eigin ósk, samkvæmt ráðningaröð sem dregin var út í janúar 1995. Önnur
staðan var á handlæknisdeild Landsspítalans frá 1/6 til 30/6 og hin var á Kvennadeild Landspítalans frá 1/7 til
31/8.
Þegar þú ætlaðir að tilkynna þig til vinnu á handlæknisdeildinni kom í ljós að staðan féll niður. Samkvæmt
8.gr. reglu-gerðar F.L. um ráðningar fer viðkomandi fremst í ráðningaröð ut mánuðinn ef staða fellur niður.
Þessi grein átti hér við svo þér var tjáð að þú færir fremst í ráðningaröð út mánuðinn eða þangað til þú fengir
aðra stöðu í júní.
Fljótlega kom í ljós að aðstoðarlækni vantaði á lyflæknisdeild Landsspítalans í júní, júlí og ágúst. Þar sem þú
varst búin að ráða þig í júlí og ágúst á kvennadeildina gast þú augljóslega ekki tekið þessa stöðu óbreytta. Þér
var boðið, vegna þess að þín staða hafði fallið niður, að þessari stöðu á lyflæknisdeildinni yrði skipt. Þar sem þú
varst fremst í ráðningaröð út mánuðinn gast þú tekið júní en staðan í júlí og ágúst yrði boðin út samkvæmt
ráðningaröð fyrir júlí og þú stæðir við að taka kvennadeildarstöðuna.
Þú ákvaðst að taka stöðuna á lyflæknis-deildinni í júní, júlí og ágúst og hætta við stöðuna á Kvennadeildinni
í júlí og ágúst.
Þar með gerðist þú brotleg við 8. grein FL um ráðningar en þar segir m.a.:
..Stöðuveitingar á vegum F.L, eru bindandi.“ Samkvæmt 17. grein reglugerðar F.L. um ráðningar skal refsa
þeim sem gerast brotlegir við reglugerðina.
Ráðningastjórar ákváðu því í samráði við stjórn F.L. að þú myndir greiða sekt til félagsins að upphæð kr
20.000.- í samræmi við ákvörðun á síðasta aðalfundi F.L.. Jafnframt yrði þér veitt áminning um að halda reglur
félagsins, þannig að brot endurtaki sig ekki og mun sú áminning birtast i Læknanemanum. Hins vegar var
ákveðið að þú myndir ekki mæta afgangi við úthlutun á launuðum stöðum á vegum félagsins.
Virðingarfyllst,
Steingerður Anna Gunnarsdóttir, ráðningastjóri F.L.
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.
135