Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1995, Side 149

Læknaneminn - 01.10.1995, Side 149
ÁRSSKÝRSLA Félagsaðstaða við Suðurgötu Eitt sinn höfðu læknanemar félagsaðstöði í húsi einu litlu og nöturlegu við Suðurgötu. Sú aðstaða var þó betri en núverandi. Stjórn F.L. afrekaði það síðasta vor að ijarlægja þaðan dót í eigu félagsins. Beiðni um þetta hafði borist frá íslenskunemum árið ‘91. I þessu dóti leyndist ýmislegt sem ekki má glatast s.s. fyrstu lög F.L. handskrifuð frá 1935 af fyrsta formanni F.L. Bjarna Jónssyni. Einnig fundum við þar söng-bók F.L. sem heitir því viðkunnanlega nafni Pestin. Söngbók þessa gæti verið gaman að endurútgefa. ÚTGÁFUSTARFSEMI Læknaneminn Læknaneminn kom út tvisvar á yfirstandandi ári. Er blaðið í stöðugri sókn bæði að innihaldi og útliti. Akveðinn stöðugleiki hefur nú verið í fjármálum blaðsins, auk þess sem afar vel skipulögð og samhent ritstjórn stýrði útgáfu blaðsins. Er Læknaneminn, blað F.L. orðinn eitt helsta stolt félagsins. Meinvörp Meinvörp komu út með reglulegu millibili í breyttri og bættri útgáfu. Uppsetning og umbrot var færð í nútímalegra horf auk þess sem stjórnin var í meiri tengslum við útgáfuna en verið hefur. Meinvörp eru þrátt fyrir allt fréttabréf stjórnar F.L. Ritstjórn Meinvarpa er hér með færðar þakkir fyrir vel unnið starf. Symphysis, Symphysis, símaskrá og handbók kom út i fílofax-broti, og hlaðið handhægum upplýsingum strax snemma hausts. Ritari félagsins á heiðurinn að útgáfunni sem skilaði félaginu hagnaði. Symphysis inniheldur sífellt meira af gagnlegum upplýsingum sem mikilvægt er að ný stjórn auki við. TÆKJAKAUP Ljósritunarvélin F.L. var farið að bera gífurlegan kostnað af ljósritunarvélinni í Læknagarði. Leigusamningur sem gerður hafði verið um rekstur hennar var bæði óhagstæður og heimskulegur. Kostnaður F.L. af rekstri vélarinnar var farinn að nema um 200.000 kr. á ári hverju. Eitthvað varð því að gera í málinu og stjórn F.L. festi kaup á nýrri ljósritunarvél sem og kortakerfi. Sú vél verður búin að borga sig upp innan árs. Faxtæki Stjórn F.L. gekkst fyrir því í samvinnu við Læknanemann að fjárfest yrði í faxtæki fyrir F.L. Það reyndist happadrjúg ráðstöfun því tæki þetta hefur bæði komið stjórn F.L. sem og hinum ýmsu nefndum F.L. í góðar þarfir, sérstaklega Stúdentaskiptanefnd. Tækið er staðsett í félagsherbergi F.L. og ef hinn almenni félags- maður þarf að koma boðum áleiðis til útlanda, t.d. vegna rannsóknarverkefnis, stendur honurn þessi möguleiki til boða. Kennsluverðlaun Félag læknanema, fyrst deildarfélaga bryddaði í vetur uppá þeirri nýjung að veita Kennsluverðlaun F.L. Fyrstur til að hljóta þessi verðlaun var prófessor í Lífeðlisfræði Stefán B. Sigurðsson, og var hann vel að þeim kominn. Voru verðlaun þessi veitt við hátíðlega athöfn á árshátíð F.L. Verðlaunin voru gefin af lyfja- fyrirtækinu Delta og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Verðlaunaveiting sem þessi mæltist ákaflega vel fyrir meðal kennara deildarinnar og er það von okkar í stjórn F.L. að þakklætisvottur sem þessi megi efla metnað kennara deildarinnar á þessu mikilvæga sviði. Það er því eindregið mælst til þess að hér eftir verði veiting kennsluverðlauna F.L. árviss viðburður. Nemendaráðgjöf Stjórn F.L. í samvinnu við Kennslumála- og fræðslunefnd hleyptu af stokkunum Nemendaráðgjöf. Nemendaráðgjöf annast kennslumála- og fræðslunefnd og efur fulltrúi 3. árs yfirumsjón með henni. Nemendaráðgjöfinni er ætlað að sinna ráðgjafahlutverki í öllu því sem náminu viðkemur og að auki annast milligöngu í hagsmuna- og kvörtunarmálum og vísa nemendumtil réttra aðila. Nemendaráðgjöfin hefur þegar verið kynnt nemendum á fyrsta ári sérstaklega. Vísindaferð að hætti hinna deildarfélaganna Stjórn F.l. í samvinnu við fulltrúaráð gekkst fyrir einnar kvöldstundarvísindaferð. Héldu 4.,5.,6. árs nemar til læknastöðvarinnar Domus Medica, en l.,2.,3. heimsóttu Össur h.f. Hlutu læknanemar höfðinglegar móttökur og áhugaverðar kynningar á starfsemi þessara fyrirtækja. Að því loknu var haldið á vit hjúkrunarfræðinema. ERLEND SAMSKIPTl Kennslumálaráðstefna IFMSA í Maastricht. Formaður kennslumála- og fræðslunefndar ásamt fulltrúa 4. árs nema kennslumálaráðstefnu í Hollandi haustið '94. Þema ráðstefnunnar var PBL (problem based learning). Þetta var í fyrsta sinn sem læknanemar sækja ráðstefnu af þessum toga. Af niðurstöðum hennar má ráða að hin fjársvelta læknadeild okkar stendur heldur aftarlega mt.t. nútimalegra kennsluhátta og aðbúnaðar. Fundur norrænu læknanemafélaganna. Fyrsti samráðsfundur norrænu læknanemafélaganna var haldinn í Kaupmannahöfn þ.2.-3. september 1995. Fundinn sóttu formaður og ritari F.L. Var hann um margt nytsamlegur og lagt á ráðin um margvíslegt samstarf, s.s. sumarstörf við afleysingar á læknafáum sjúkrahúsum Danaveldis svo e-r dæmi séu nefnd. Grein um niðurstöður þessa fundar verður birt innan tíðar í Læknanemanum. Nordisk Federation för Medicinsk Undervisning NFMU er sameiginleg samtök norrænu læknaskólanna þar sem fjallað er um hin ýmsu kennslu- sem og önnur hagmunamál þessara skóla. Fundað er 2-3x á ári. F.L. hefur nú eignast fastafulltrúa í stjórn í átta manna stjórn þessara samtaka. Formaður F.L. og formaður kennslumála- og fræðslunefndar skipta með sér hlut- verkinu. Fastafulltrúa-hlutverk þetta á eftir að reynast félaginu uppspretta nýrra hugmynda sem og bættari hagsmunagæslu í þágu læknanema. LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg. 139
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.