Læknaneminn - 01.10.1995, Page 153

Læknaneminn - 01.10.1995, Page 153
ÁRSSKÝRSLA viðskiptafræði- og lögfræðinema, og í fyrsta skipti tóku Iyfja- fræðinemar þátt með einn skiptinema. Farið var í fjölmargar ferðir um alit land og voru erlendu nemarnir mjög ánægðir með skipulagið. Enn og aftur óskum við eftir meiri þátttöku íslenskra læknanema í þessar ferðir. Þær eru öllum opnar, verðinu haldið í lágmarki og iðulega mikið fjör. Eftir fjögur ár í nefndinni kveðjum við og óskum nýrri nefnd velfarnaðar í starfi auk þess sem við hvetjum alla læknanema til að nýta sér liana til hins ýtrasta. Bókhald IMSIC Inn Ut Staða um árainót 106.121 Egyptaland 189.032 Stúdentasjóður 81.400 Félagsgjöld 34.860 Heilbrigðisráðuneyti 200.000 Styrkir fyrirtækja 75.000 Islenskir nemar 120.000 Endurgreiðsla 45.000 Leiga 236.395 Erlendir nemar 67.322 Barcelona 163.830 Sumarstarf 29.711 Súdan 34.251 Póstburöargjöld 649.843 738.453 = -88.610 Davíð Jónsson, stúdentaskiptasjóri. Lilja Björnscióttir, rannsóknaverkefnisstjóri. SKÝRSLA RÁÐNINGASTJÓRA Vinna Mjög gott framboð var á stöðum í ráðningakerfinu s.l. ár. Ef litið er á framboð á stöðum frá 1986 kemur í ljós að aðeins einu sinni hefur framboð á stöðum verið meira en nú, það var veturinn 1989-1990. Undanfarin 3 ár hefur verið aukning milli ára. Vinnudagar í boði á s.l. ári voru 5553 sem er 23,8% aukning frá síðasta ári. Nýtingin hefur hinsvegar heldur versnað, nýttir voru 5210 dagar eða 93,8%. 4. árs nemar fengu þó færri stöður í sinn hlut en í fyrra, skýringin á því er líklega sú að 5. árs nemar voru óvenju margir og afar vinnufúsir svo lítið var afgangs. Fundir Ráðningafundirnir voru haldnir í lok hvers mánaðar og sumarráðningaröðin dregin út á fundinum í lok janúar eins og venja er. Aðalráðningafundurinn fyrir sumarið var í lok maí, í ár var ekki haldinn fundur um reikningsskil í héraði, undirritaðri skilst að takmarkaður áhugi hafi verið undanfarin ár og telur að þetta hafi ekki komið að sök. Reglugerðin Sú grein reglugerðarinnar sem hvað mestum deilum olli er g) liður 9. greinar, þ.e. 48 tíma reglan. Veturinn 1993-1994 voru gerðar nokkrar undantekningar frá þessari reglu á slysadciid BSP, það var rökstutt þannig að vaktir þar væru styttri en á almennum deildum og ómögulegt að setja fólk inn í fyrir 8 tíma vakt o.s.frv. Undirrituð ákvað að reyna að taka á þessu og bjóða stakar vaktir fyrst þeim sem hefði unnið þar áður en síðan öðrum sem hefðu lokið 4. árs 2 vikna kúrsi þar og þá skv. ráðningaröð. Þetta gekk ekki upp og iæknarnir kvörtuðu um ósveigjanleika, þannig að reynt var að skipta þeim vöktum sem buðust milli þeirra ca. 10 sem höfðu unnið þar áður. Þetta gekk sæmilega en þó var mikil óánægja meðal þeirra nema sem ekki fengu að taka þarna vaktir og fengu aðeins að taka 1 vakt í mánuði á þeim deildum sein þeir höfðu unnið áður. 21 sinni var veitt undanþága frá 48 tíma reglunni á slysadeild BSP á þessum 12 mánuðum, þannig að að meðaltali hafa 2 af þessum 10 nemum tekið 2 vaktir i mánuði á slysadeildinni. 10 sinnum var veitt undanþága frá 48 tíma reglunni á öðrum deildum. 48 tíma reglan var notuð 51 sinni, þannig að með 31 undantekningu frá reglunni var í heild farið 82 sinnum framhjá ráðningaröð en 77 sinnum i fyrra þannig að það er heldur aukning. Ávallt veróur að tilkynna ráðningastjóra þegar vakt er tekin framhjá ráðningaröð annars verður ekkert eftirlit með þessum stöðum. Breytingatillaga verður lögð fyrir aðalfund sem fellst í því að rýmka 48 tíma regluna, hún breytist þá þannig að í stað þess að 48 tímarnir verði að vera samfelldir má taka samtals 48 tíma í mánuði framhjá röðinni (þ.e. 2 stakar vaktir á almennum deildum, hingað til hafa 2 vaktir þurft að vera samliggjandi) Þá erum við vonandi komin með réttlátari reglur þannig að sumir séu ekki jafnari en aðrir. Ráðningagjöldin Þeir sem útskrifuðust s.l. vor hafa nú greitt ráðningagjöld. Nemar sem hafa unnið á vegum félagsins eiga að vera komnir með gíróseðla í hendur og ætlast er til að allir hafi greitt ráðningagjöld fyrir 7. nóvember n.k.. Þeir sem hafa ekki greitt ráðningagjöld fyrir þann tíma verða ekki drcgnir út í næstu ráðningaröð né þeir sem ekki hafa greitt félagsgjöld F.L. Undanfarin ár hafa ráðningagjöld verið óbreytt og nægja vel fyrir kostnaði vegna ráðningakerfisins. Deiluntál Ýmis deilumál komu upp og er ekki hægt að rekja þau öll hér. Talsvert þref var í kringum 48 tíma regluna og því æskilegt skv. reynslu undanfarinna ára að breyta henni og gera hana sveigjanlegri. Á s.l. ári þurftu ráðningastjórar 3 sinnum að beita sektum og áminna viðkomandi nema um að halda reglur félagsins. I öllum tilfellum hafói nema verið veitt staða á ráðningafundi að eigin ósk en síðan ekki tekið stöðuna. Sektir voru misháar 5-20 þúsund vegna misalvarlegra brota. Eitt brotið þótti það alvarlegt að ákveðið var að áminna viðkomandi sérstaklega og verður sú áminnig birt í næsta Læknanema. Undirrituð lýtur svo á (og rak sig á ) að ef ekki er tekið hart á þessum málum sé mikil hætta á að kerfið hrynji. Mikinn félagsþroska þarf af okkar allra hálfu svo að svona kerfi standist. Hver og einn verður að hugsa sem svo „hvað ef allir breyttu eins og ég“ en sleppa ekki einni stöðu og redda sér annarri án þess að hugsa um afleyðingar þess fyrir heildina. Hlutverk þessa merkilega jöfnunarkerfis er að koma í veg fyrir baráttu okkar á milli, við þurfum að standa saman og veita hvert öðru aðhald. Heiðarleiki þarf að vera í fyrirrúmi svo allir geti treyst því að farið sé eftir reglunum, flest okkar hafa staðið sig vel og kerfið stendur enn. Ég þakka læknanemum fyrir gott samstarf, sérstaklega vil ég þakka Arnari Geirssyni sem bar hitann og þungann af starfinu yfir sumarmánuðina og Vilborgu Sigurðardóttur sem hljóp í skarðið fyrir okkur þegar hvorugt okkar gat haldið ráðningafund í lok ágúst. Að lokum vil ég óska næstu ráðningastjórum góðs gengis. LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg. 143
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.