Úrval - 01.06.1966, Side 81
79
Orð og orðasambönd
Hér fara á eftir 20 orð og orðasambönd með réttri og rangri merkingu. Prófaðu
kunnáttu þína i íslenzkri tungu og auk þú við orðaforða þinn með því að finna
rétta merkingu. Gæt þess, að stundum getur verið um fleiri en eina merkingu
að ræða. Til gamans getur lesandi gefið sjálfum sér einkunn og metið þannig
getu sína, þ.e. 0.5 fyrir hvert rétt svar og tilsvarandi lægri einkunn fyrir svar-
ið, ef um er að ræða fleiri en eina rétta merkingu og hann hefur aðeins tekið
fram aðra eða eina þeirra.
1. að urna: verma, sóa, slita upp til agna, gruna, tína saman, tauta, dreifa.
2. þiður: fugl, ögn, spendýr, hvinur, hlýr, blíður, vakur, vinveittur, fiskur,
fjöður.
3. að afsast: slóra, fiækjast, æða, dragast áfram, hamast, skammast, sýna
yfirgang, híma, tefjast.
4. sluprugur: lyginn, illkvittinn, illmáll, klæminn, kámugur, hirðulaus,
slefugur, svikull, hálffullur, gráðugur.
5. hauður: klöpp, dys, jörð, gras, haf, land, flæðarmál, skær, auðn, óbyggðir,
himinn, brim.
6. gróm: óhreinindi, gróður, káf, dútl, korgur, fræ, innyfli úr fiski, fjaðrir,
mont, málmur, lag.
7. groms: káf, korgur, óhreinindi, kynstur, innyfli úr fiski, drasl, vitleysa,
ómeti, sull.
8. flæsa: froða, fljótfærni, stelpugála, smáþerrir, í hársverði, skordýr, kjafta-
kind, lauslætisdrós, rigningarskúr, él.
9. hlein: heysáta, klöpp, áhald, dlát, teinn, grind, hleri, veiðarfæri, skinn.
10. flum: gamanmál, ögn, gaspur, ósannindi, óðagot, rógur, háðkveðskapur,
dylgjur, skeina, meiðsl, hávaði.
11. að flúkrast: hafa ógeð á, skammast, slæpast, flækjast um, fljúgast á, káfa,
læðast.
12. pöróttur: mistækur, brögðóttur, gamansamur, gleyminn, hrekkjóttur, á-
gengur, kvensamur, blettóttur, harður af sér.
13. að glutra e-u: eyða e-u, gleyma e-u, missa e-ð úr höndum sér, leggja e-ð
frá sér, leyna e-u, kjafta frá e-u.
14. purkunarsamur: ósvífinn, nærgætinn, tillitslaus, sparsamur, eyðslusamur,
blygðunarsamur, undirförull, yfirgangssamur, úrræðagóður, ráðalaus, í-
bygginn.
15. glyðra: fiskur, fugl, klessa, léttúðardrós, kjaftakind, hlussa, heyþurrkur,
rigningarskúr, ögn, birta, fljótfær kona.
16. að glundra: þvæla, rugla, kjafta, gerr hávaða, bleyta, flækjast, svolgra,
hæða.
17. pus: ágjöf, þrældómur, slór, iðni, ígerð, hlé, nöldur, skammir, róður, hrind-
ingar, áflog.
18. að stimpast við: haltra, reka sig á, leitast við, veita mótspyrnu, ráðast á,
rífast, amast við e-u.
19. að maula: muldra, syngja lágt, tyggja, laga, geyma, kyngja, japla, þvæla,
sötra.
20. fnykur: fýla, rykögn, reykur, vindur, brestur, þytur, hávaði, vatnaskrimsli,
hestur. Svör á bls. 99.