Úrval - 01.05.1971, Síða 73
71
\
irm reynzt hið bezta
læknisráð við vissum
geðrænum truflunum,
og jafnvel öðrum s.iúk-
dómum, t.d. andarteppu.
Svipuð tækni mun og
hafa verið notuð I
bandarískum sjúkra-
húsum um nokkurt
skeið, en vera á til-
raunastigi. Yfirleitt
virðast læknavisinda-
menn, nú hneigjast að
iþeirri skoðun, að not-
færa beri sér ,þá lækn-
ingamöguleika sem raf-
straumurinn býr yfir í
ríkara mæli en gert hef-
ur verið hingað til. „Við
erum að drukkna í lyfj-
um og allskonar auka-
verkunum i því sam-
bandi," • segir kunnur
bandariskur læknir, ,,en
vanrækjum ýmiss önn-
ur lækningaráð, sem
líkleg eru til að bera
mikinn árangur — og
án nokkurra aukaverk-
ana.“
• ALÞ.TÓÐLEG
ORÐMERKI
Að sama skapi og ná-
býlla gerist á hnetti
vorum og vegalengdir
allar styttast fyrir stöð-
ugt ihraðskreiðari flug-
vélar, veldur það sívax-
andi örðugleikum að
hinar ýmsu þióðir heims
skuli yfirleitt mæla sin
‘hvora tungu. Þessir
örðugleikar hafa meðal
annars orðið til þess að
nú er starfandi á vegum
UNESCO nefnd vísinda-
manna, sem vinnur að
því að athuga hvort
ekki muni auðið að
sem.ia kerfi alþjóðlegra
orðmerkja, þannig að
hvert einstakt merki
tákni orð samskonar
merkingar á hvaða
tungumáli sem er. Með
öðrum orðum, að taka
upp hina ævafornu orð-
merkjaskrift Kínverja,
að vísu ekki skrifmerk-
in sjálf, heldur aðferð-
ina, sem gerir öllum
..skriftlærðum" Kín-
verjum kleift að lesa
það, sem þannig er rit-
að, þótt mállýzkur
þeirra séu svo ólikar, að
í rauninni megi kaila
það ólikar þjóðtungur.
Þessi túikunaraðferð
hefur að vísu verið
reynd lítilsháttar. þar
sem eru hin alþjóðlegu
umferðarmerki, og gef-
ið þar góða raun. Enn
sem komið er snýst
starf nefndarinnar og
fyrst og fremst um að
athuga möguleikana á
því að koma í notkun
enn víðtækari leiðbein-
ingarmerkjakerfum, í
líkingu við umferðar-
merkin, sem notuð
verði í alþjóðlegum
samskiptum -— til dæm-
is að hver .hlutur í bíl,
fái sitt alþjóðlega merki
sem mundi auðvelda
mjög alla varahluta-
verzlun, svo dæmi sé
nefnt. Eins yrði svo um
ihvern einstakan hlut I
flugvélum, skipum, raf-
orkuverum og fleiri vél-
rænum heildum og ein-
stökum vélum. Þá
mætti og ef til vill taka
alþjóðleg orðmerki í
notkun í verzlunar-
bréfaskiptum að ein-
hverju leyti. En þótt
þetta kunni að eiga
langt í land, verður þess
þó eflaust enn lengra
að bíða að tekið verði
upp svo fullkomlð, al-
þiðlegt orðmerkjakerfi,
að það geti gert bók-
menntir sénhverrar
þjóðlegt orðmerkjakerfi
sameign — jafnvel þótt
ekki virðist þurfa svo
ýkjaflókið merkjakerfi
i því skyni. þegar um
bókmenntaleg afrek
sumra atómskálda er að
ræða.