Úrval - 01.05.1971, Blaðsíða 128
126
ur tveggjastjörnu flugliðsforingi
(Benjamín O. Davis major frá
Washington). Auk þess var aðstoð-
arblaðafulltrúi Kennedys forseta
svartur, Andrew Hatcher að nafni
og sömuleiðis James C. Evans, að-
stoðarmaður varnarmálaráðherrans.
Hundruð svartra karla og kvenna
hafa öðlazt doktorsnafnbót í heim-
speki og enn fleiri tekið meistara-
og kandidatspróf. í þjónustu lút-
hersku og kaþólsku kirkjunnar
starfa fjölmargir svartir prestar og
biskupar og negrar gegna störfum
sem kennarar, óperusöngvarar,
blaðamenn, sérfræðingar á sjúkra-
húsum, dómarar, málaflutnings-
menn, lögreglumenn og fulltrúar í
erlendum sendiráðum.
ÚRVAL
Ég vildi að afi minn gæti séð allt
þetta. Sjálfur kunni hann bæði að
lesa og skrifa og var kennari í mörg
ár. Ég heimsótti hann oft og áleit
hann einn vitrasta og bezta mann,
sem nokkru sinni hefði verið uppi.
Dag einn, skömmu áður en hann
dó, sagði hann við mig: „Sonur,
það þurfti yfirlýsingu Lincolns for-
seta til að veita mér frelsi. Ég vona
að þú fáir aldrei að vita hvernig
það er að lifa án þess.“
Þetta sagði hann við mig — en
ég er þess fullviss, að það var einn-
ig von hans, að enginn maður í öll-
um heiminum þyrfti nokkru sinni
að lifa í ánauð, ófrjáls og frelsi
sviptur.
☆
Miðaldra maður segir við .kunningja sinn: „Sko, þegar ég var ungur,
hataði maður ekki -herinn, fyrr en maður vai’ kominn í hann.“
Ræðukona á kvenfélagsfundi: „Kannske er bað ekki rökrétt, en mér
finnst ég vera frjálslynd kona með afturhaldsskoðanir.“
Viðskiptavinur segir við afgreiðslustúlkuna í megrunardeildinni:
„Hingað til hef ég grennzt lum tiu pund. En þegar tekið er tillit til
vaxtarlags míns, þá er það svipað og að fá 50 dollara afslátt á Cadillac-
bíl.“
Kona segir við vinkonu sína: „Maðurinn minn segist ætla að setjast í
helgan stein og láta ríkisstjórnina fara að sjá fyrir sjálfri sér.“
Gærdagurinn er reynsla. Morgundagurinn er von. Dagurinn í dag er
það að komast frá gærdeginum til morgundagsins eftir beztu getu.
Geimferðir eru jafnvel enn hættulegri en þær virðast vera. Með nú-
verandi fólksfjölgun yrði kannski búið að taka staðinn manns, þegar
maður kæmi aftur til jarðarinnar.