Úrval - 01.09.1981, Side 33

Úrval - 01.09.1981, Side 33
PABBI TEKUR SÉR BRÚDI Pabbi sagði Nakamura að hann áfelldist ekki Matsu. Þegar á allt væri litið var það hann sem hafði yfirgefið hana. En þó hún væri ekki fáanleg iangaði pabba samt í brúði frá Kumamoto. Nakamura lofaði að koma honum í samband við aðila þar og pabbi borgaði honum 10 dollara. Tæpum þrem mánuðum síðar kom svo loks bréf með mynd af Kimi. Hún var grönn, næstum horuð, en geðþekk að sjá. Hún skrifaði: Heiðraði herra Kato. Krónublöð kirsuberjanna sem liggja eins og snjókorn á poili eru kramin af klossum barnanna sem eru á leið í skólann. Þar til ég fékk bónorð þitt hafa mín eigin krónublöð flotið ofan á óhrein- indunum. Mér finnst sem ill örlög hafi nú farið hjá. Foreldrum mínum fínnst þetta léttir og em samþykk. Þess vegna tek ég hjónabandstilboði þínu með þökkum. Virðingarfyllst, þín Uyeno KimL Pabbi var ánægður með Kimi og bað um að nafn hennar væri fært inn á sína ættarskrá. Það var sama og hjónaband. Pabbi sendi henni 100 dollara fyrir brúðarfatnaði og fari. Næsta bréf frá henni var afsakandi og fullt eftirsjár. I Yokohama hafði komið í ljós að hún hafði augn- sjúkdóm og hafði verið bannað að fara. Pabbi var leiður en sagði henni að hún mætti eiga peningana sem eftir væru. 31 Nakamura sneri sér samstundis að því að sjá um að nafn hennar væri tekið af ættarskránni. Skilnaðurinn og annar kostnaður var 10 dollarar. Svo borgaði hann Nakamura 10 dollara í viðbót fyrir að skrifa eftir annarri brúði. TOYO HEILLAÐI PABBA með glettnum bréfum. Persónuleiki skipti miklu máli en pabbi vildi fá Toyo fyrir eiginkonu en ekki pennavin. Hann sagði henni það í þriðja bréfi sínu og hún samþykkti að verða konan hans. Hennar nafn átti að vera það síðasta sem hann léti skrá á ættar- skrána og pabbi sendi henni 100 dollara fyrir nýjum fötum og ferðinni. Toyo skrifaði að faðir hennar hefði flengið slæmt gallblöðrutilfelli og sjúkrakostnaður hefði verið svo mikill að peningarnir, sem pabbi sendi, hrukku varla til. Pabbi sendi nýja 100 dollara um hæl. Toyo skrifaði að hún hlyti að vera fædd undir óheillastjörnu. Móðir hennar hefði verið gripin dularfullum sjúkdómi. Á þessu stigi ákvað pabbi að reyna hana með því að senda henni bara 20 dollara. , ,Ég þurfti að fara í botnlangaskurð vegna bráðrar botnlangabólgu,” skrifaði hún, ,,og þessir litlu pening- ar, sem þú sendir mér, dugðu bara fyrir lyfjum. Vertu svo vænn að senda mér 50 dollara fyrir lækniskostnaði og 100 dollara fyrir fötum og ferðinni. Pabbi dró andann djúpt og sendi henni 150
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.