Úrval - 01.09.1981, Blaðsíða 78
76
ÚRVAL
Ofangreind markmið em vissulega
háleit og það ætti að vera sðmi hvers
stjórnmálamanns að fylkja sér um
þau. Ætli menn sér hins vegar að fara
aðra slóð myndi það ekki aðeins þýða
eymd og þjáningar fyrir hörundslit-
aða innflytjendur heldur líka fyrir
hina hvítu. Og Bretland yrði bert að
því að geta ekki leyst vandamál, með
lausnirnar allar í sjónmáli, og að því
leyti myndi álit þess bíða hnekki. Ef
því á hinn bóginn tækist að leysa kyn-
þáttavandamálin þá væri það vissu-
lega glæsilegur sigur. Og sá sigur
myndi verða öðmm þjóðum lýsandi
fordæmi um það hvernig ólíkir kyn-
þættir geta lifað og starfað saman í
sátt og samlyndi og lært hverir af
öðmm. Þetta yrði sigur á alda-
gömium fordómum.
Þegar Morgan Rowe var að jafna sig á spítala eftir dráttarvélarslys, þar
sem hann hafði misst annan handlegginn alveg og skemmt hinn
vemlega, heyrði hann foreldra sína hafa áhyggjur af því hvernig þeir
ættu að fara að því að borga læknishjálp og spítaladvöl hans. ,,Ekki
hafa áhyggjur, ég skal hjálpa tii,” sagði Morgan.
Hann var raunar aðeins sex ára þegar þetta var en hann stóð við orð
sín. Þrem mánuðum eftir að hann var brautskráður af spítalanum
gekk hann löngum stundum um nágrennið í Valdosta í Georgia í ieit
að flöskum sem selja mátti aftur, svo og áidósum sem einnig var hægt
að koma í verð. Fyrst borgaði hann megnið af reikningnum fyrir
sjúkrabílinn, sem var upp á 455 dollara, síðan 2500 dollara upp í
spítalareikninginn.
Þar kom að dósaframieiðandinn Reynolds Aluminium, sem ein-
mitt framleiðir nýjar dósir úr gömlum, frétti af Morgan. Reynolds
hlutaðist til um að koma Morgan í samband við Bear Archery í Gain-
esville í Flórída sem framleiðir boga og örvar. Bear Archery hefur
síðan sent Morgan allar álafklippur sem falla til þegar örvaroddarnir
em gerðir. Ekki leið á löngu þangað til fleiri fóru að þessu fordæmi.
A síðasta ári, fimm árum eftir slysið, afiienti Morgan spítalanum í
Valdosta 17.713 dollara — lokagreiðsluna af reikningi sínum sem alls
hljóðaði upp á 30 þúsund dollara! Og nú, þegar þessi reikningur er
að fullu greiddur, hefur Morgan á prjónunum áform um að afla fjár
tii að reisa nýja álmu við Scottish Rite Hospital í Atlanta í Georgiu
þar sem hann naut einnig hjálpar og meðferðar meðan verið var að
græða hann.
Úr Family Circle