Úrval - 01.09.1981, Blaðsíða 50
48
ÚRVAL
setti eitt ljósið, sem minnti á vindil, í
byssuna og skaut upp til himins. Það
heyrðist lág sprenging en skömmu
seinna sáust rauðir glampar um næt-
urhimininn.
Skipið hélt sinni stefnu og sigldi í
sömu stefnu og þá rak í en í alltof
mikilli fjarlægð. St. Clair skaut öllum
merkj askotunum.
Loks sagði Harvey. ,,Ég held . . .
það hægir á sér . . . Skipið er að
snúa við!”
Tuttugu mínútum seinna kom
geisli leitarljóssins og féll á fjóra þrek-
aða menn í litlum báti. Þeir sáu nafn
skipsins í bjarma ljóssins: Jastella.
Norskt olíuskip sem hafði hrakið af
leið sinni í fellibylnum flutti menn-
ina fjóra á sjúkrahús á bresku eyjunni
Cayman Brac. Doc St. Clair var með
tvö brotin rif, Mike Munroe með
blæðandi magasár og allir fjórir
þurftu að hvíla sig og borða vel.
Þeir komust að því, áður en þeir
fóru af spítalanum, að fellibylurinn
Allen var annar sterkasti fellibylur,
sem nokkru sinni hefur mælst á
Atlantshafi. Hann olli meira en 300
milljóna dala skaða í Karabíska haf-
inu og Mexíkóflóa og 236 menn létu
lífið. En einhvern veginn tókst
fjórum mönnum í smábát að lifa af
eyðileggingarmátt náttúruaflanna.
★
Þegar Vladimir Horowitz hélt konsert í maí 1965, eftir 12 ára hlé,
bannaði hann að nokkur talaði við hann, hvorki rétt fyrir konsertinn
né strax eftir hann. Þessi ákvörðun átti rætur að rekja til þess tíma er
hann fyrst kom fram í Ameríku, þá 24 ára gamall.
,,Það lá mikil spenna í loftinu og ég var hræddur,’ ’ segir hann. ,,En
konsertinn virtist ganga vel. Áheyrendur vom mjög hlýir og ég varð
að hneigja mig aftur og aftur og taka aukalög. Að lokum komst ég í
herbergið mitt og lokaði að mér.
Framkvæmdastjórinn minn kom þá og sagði að starfsbræður mínir
biðu eftir að sjá mig — Hoffmann, Rachmaninoff, Lhevinne,
Roshenthal — en það besta væri að þar væri gamall maður frá heima-
héraði mínu í Rússlandi sem greinilega hefði hrifist mjög af leik
mínum. Ég lét leiða hann inn.
Með tárin í augunum sagði gamli maðurinn: ,,Þú verður að halda
áfram að leika eins og í dag. Allir þeir stóru eru hérna fyrir framan og
vilja hitt þig! Hoffmann — vegna þess að honum féll ekki hvemig þú
lékst Chopin og Rachmaninoff hatar g-moll Prelódíuna og
Roshenthal var óánægður með Brahms. En þú mátt ekki breyta
neinu. Haltu áfram að leika eins og þú gerir! ” — s. S.