Úrval - 01.09.1981, Side 41
ÞEGAR GÍSLARNIR KOMUHEIM
,,Allir gíslar frjálsir í Frankfurt í
dag,” var ein fyrirsögn í dagblaði í
Frankfurt. „Nóttin mikla á Rhine-
Main”, varönnur.
,,Okkur finnst þetta kannski ekk-
ert stórmál,” sagði þulur í þýsku
sjónvarpi hrærður þegar hann horfði
á fyrrverandi gísla faðma samlanda
sína. ,,Ef þið aðeins gætuð séð hvað
þessir 52 menn skipta Bandaríkin
miklu máli ...” Rðdd hans dó út.
—AP
SKÖMMU EFTIR að gíslarnir lentu
í Vestur-Þýskalandi byrjuðu þeir að
hringja heim. Flest samtölin voru
stutt en sum stóðu í marga tíma. Ást-
arorð voru mælt og mikið grátið.
Sumir sögðu frá lífl sínu sem gíslar.
Það var spurt hvernig hefði gengið
heima. En aðalatriðið var að heyra
hvert til annars.
Kathryn Koob, önnur kvengísl-
anna tveggja, sagðist hafa „horast”
mikið í fangavistinni. Systir hennar,
Vivian Homeyer, sagði stríðnislega að
nú yrði hún öfundsjúk.
Þegar Michael Moeller liðþjálfi í
sjóhernum hringdi heim til Quantico
í Virginiu talaði hann við syfjaða
fimm ára dóttur sína, Celeste: ,,Þetta
er pabbi þinn. Geturðu sagt pabbi ? ’ ’
,,Nei,” svaraði hún ogskelltiá.
Sennilegast var lengsta símtalið
það sem Duane Gillette, 24 ára, átti
við fjölskyldu sína í Columbia í
Pennsylvaniu. Það stóð í fimm
klukkustundir. „Síminn var réttur á
39
milli eins og matarfat,” sagði tals-
maður fjölskyldunnar.
,,Við stilltum úrin okkar þegar við
fórum út úr flugvélinni,” sagði
Rodney V. Sickmann, liðþjálfi í sjó-
hernum, við fjölskyldu sína í Kracow,
Mo. ,,Við flýttum þeim um 2000
ár.”
—Joseph B. Treaster
í New York Times
I DAGLEGU happdrætti New
York fylkis veðjuðu svo margir á töl-
una 444 að það varð að banna öll veð-
mál á þetta númer í heila viku.
—Ron Claiborne
í New York Daily News
GÍSLARNIR flugu frá Þýskalandi
með herflugvél af gerðinni VC-137
sem skírð var Frelsi eitt. Fyrsta röddin
sem þeir heyrðu þegar þeir komu inn
í lofthelgi Bandaríkjanna, 84 mílur
norðaustur af Bangor, Maine, kom
frá flugstjórninni í Nashua í New
Hampshire.
,,Þið eruð komin til Bandaríkja
Norður-Ameríku, ’ ’ sagði röddin.
,,Fyrir hönd flugstjórnarinnar í
Boston og flugmálastjórnar Banda-
ríkjanna bjóðum við ykkur velkomin
heim og þökkum ykkur fyrir vel unn-
ið starf. ’ ’
Klukkustund seinna, kl. 2:55 síð-
• degis, lenti Frelsi eitt á Steward flug-
vellinum, 30 kílómetra frá bandaríska
herskólanum West Point.
„Velkomin Frelsi eitt,” sagði flug-