Úrval - 01.09.1981, Side 46

Úrval - 01.09.1981, Side 46
44 ÚRVAL Bob Harvey hafði stöðugt fylgst með hitabeltislægðinni sem var að mynd- ast út af Afríku. Eftir síðustu veður- fréttirnar vissi hann að skútan yrði að komast að norðausturströnd Jamaíku áður en veðrið skylli á, annars myndu þeir lenda í miðjum fellibylnum. Innan skamms komu sveipar kast- vinds yfir hafið og öldurnar breyttust úr bláu yfirí fílabeinslit. Áhöfnin dró niður öll seglin nema eina fokku. Mennirnir hættu að ræðast við þegar nær dró strönd Jamaíku enda ekki hægt um vik því að allt tal drukknaði í vindgnauðinu og ölduniðinum. „Ertu orðinn hræddur?" Þegar mennirnir sáu fyrst grýtta strönd Jamaíku voru öldurnar orðnar 20 til 25 feta háar og þilfarið á Princess minnti á stökknet. Gittel- man setti sjónaukann fyrir augun og leit á innsiglinguna í höfnina Port Antonio en þar var eina hugsanlega skipalægið á norðurströndinni. Gegnum rigningarúðann og brim- löðrið sá hann hvíta hringiðu fyrir innan þar sem risaöldurnar brotnuðu á skerjum og klettarifum. „Öhugsandi,” sagði hann við vini sína. „Skútan brotnar í spón ef við reynum að fara þangað inn. Við verðum að þreyja það af úti á sjó. ” Þrem klukkustundum síðar, þegar þeir lentu í útjaðri fellibylsins, höfðu þeir komist 20 sjómílur frá lífshæt i- legri ströndinni. Vindhviða skall á bátnum og reif litla seglið í smátætl- ur. Vindhraðinn jókst upp í 130 km á klukkustund, svo 150, svo yfir 170. Gittelman barðist við að stýra. Öld- urnar gnæfðu yfir stefnið, féllu inn í brúna og gegnbleyttu Harvey og Munroe sem voru að binda líflínur og festa allt lauslegt á þilfari. Það var eins og að vera í óðum rússíbana þegar skútan komst í hæð á við þriggja hæða hús til þess eins að hendast strax ofan í öldudal. Svo upp aftur — hærra nú — og niður. Tré- bátur sem bundinn var á þilfari losn- aði og hentist út í bláinn. Um miðnætti var vindhraðinn 250 km á klukkustund og hann reif topp- inn af risaöldunum og breytti vatns- fjöllunum í furðulega hásléttu. Princ- ess reis upp á risaöldu og fellibylurinn kom á síðu hennar með öllum sínum krafti. Á augabragði lagðist 30 tonna snekkjan á hliðina í ólgandi hafið. Mennirnir fjórir héldu dauðahaldi í líflínurnar meðan tíminn leið. Loks brást Princess við járnkjölfestunni og rétti sig við eins og uppgefinn hnefa- leikamaður sem rís upp af gólfinu. Mike Munroe tók um handlegginn á Gittelman. ,,Ertu orðinn hræddur, Barry?” hrópaði hann. Skipstjórinn brosti veiklulega. ,,Nei! Ekki enn!” ,,Láttu mig vita þegar þú verður hræddur!” Átti hann að kalla upp og biðja um hjálp? spurði Gittelman sjálfan sig. Nei. Það var vonlaust. Ekkert skip gat komist til þeirra og engin flugvél flogiðfyrr en sjó og vindlægði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.