Úrval - 01.09.1981, Side 85

Úrval - 01.09.1981, Side 85
HVÍTUR ESKIMÓADRENGUR 83 stutta kjóla úr rósóttum bómullar- efnum, og utan yfir voru þær í víðum peysum, sniðlausum eins og pokum. En engu að síður stafaði miklum þokka af þessum ungu, brosmildu stúlkum með ljómandi andlit, epla- kinnar og stuttar fléttur. Kofarnir í eskimóaþorpinu teygðust talsverðan spöl meðfram Koksoakánni. Á vissum stað hlutu leiðir þeirra að skilja og þrjár sneru til sinna heimkynna. Elsa hélt áfram með löngum, fjaðrandi skrefum. Þótt hún væri alltaf áfjáðust í að komast í bíó, sem hún unni eins og ljúfum draumi, var hún líka alltaf mjög áfram um að komast aftur heim til raunveruleika eskimóabyggðarinnar, kofanna sem stóðu á víð og dreif, stígsins sem lá meðfram ánni og sér- staklega árinnar sem gjálfraði stöðugt á leið sinni og var eilífur hluti af um- hverfínu. Ungur, amerískur hermaður lá í leyni í runna litilla og grannra trjáa sem uxu í dálítilli laut landmegin við stíginn. Hann beið og bölvaði hitan- um og moskítóflugunum — og kannski, án þess að vita það, óþoli æskunnar sem lék hann jafngrátt og það leikur allt líf stutta sumarið á þessum norðlægu slóðum. Hann heyrði raddir stallkvenna Elsu fjarlægjast. Svo, þegar hún kom nær, rétti hann út höndina til að stöðva hana. „Hæ, beibí!” ,,Hæ, hermaður,” sagði hún vingjarnlega. En hann var þegar farinn að tosa henni inn í runnana og þrýsta munni sínum á hennar. Hann var með stór sólgleraugu og derhúfu sem náði alveg niður að þeim svo hún vissi raunar aldrei annað um hann en hann var ungur og að hjarta hans barðist eins og í villidýri í gildru. Að því frátöldu var allt annað eins og í bíó — einkennilegt, framandi, ótrú- legt. Og nú ýtti hann henni til jarðar og féll sjálfur ofan á hana. Hann var hvorki harðhentur né hrottafenginn, bara mikið að flýta sér, og umhverfis þau var moskítósveimurinn eins og þykkur reykjarbólstur. Og á eftir lá honum jafnvel enn meira á að komast í burtu. Þegar hann var að flýta sér úr runnunum tautaði hann eitthvað líkt og ,,takk”. Eða var það „bless”? Svo þrýsti hann nokkrum dollaraseðlum í lófa hennar og tók ti! fótanna niður eftir árbakkanum. Hann stansaði rétt áður en hann beygði upp í kampinn, grannur skuggi móti dökkrauðum kvöldhimn- inum, og hreyfði höndina aðeins í áttina til Elsu. Það leit út eins og vinsamleg kveðja. Líklega hefði lítið lifað eftir þetta skammvinna atvik á bökkum Koksoakárinnar annað en óljósar myndir, eins og eftir bíó, hefði líkami Elsu ekki farið að taka breytingum. Nokkrum mánuðum seinna voru þessar breytingar orðnar augljósar. Það varð ekki séð hvort
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.