Úrval - 01.09.1981, Page 86

Úrval - 01.09.1981, Page 86
84 URVAL henni líkaði betur eða verr. Þetta var gerður hlutur. Að það skyldi gerast fyrir brúðkaup þótti ekkert tiltökumál hér. „Svona fallegur strákur" Yfir veturinn lokaðist Kumachuk fjölskyldan inni í litla kofanum sín- um. Faðir Elsu, Archibald, hafði eytt löngum tíma í að taka sundur gamla og slitna mótorinn úr fiskibátnum sínum. Nú lagði hann mótorinn til hliðar og tók að bæta netin. Winnie, mamma hennar, hafði verið svo heppin að ná í stranga af marglitu bómullarefni og var að gera sér kjól til að skrýðast á skemmtunum vetrar- ins. Hún þóttist góð að búa í alvöru- húsi frekar en tjaldi eða snjóhúsi og litaðist um hvað eftir annað. Svo sló hún sér á lær með ánægjusvip. Lánið lék við hana. Litli bróðir Elsu, Lawrence, sat við kassa á hvolfí og lærði lexíurnar sínar, endurtók búta úr undarlegum fræðum sem kennd voru í skólanum. Thaddeus gamli afi sást aldrei öðruvísi en hann væri að tálga litlar eftirmyndir þess sem var í gamla daga í mjúkan stein, eins og hann yrði að bjarga minningunni um horfna tíð frá glötun. Stundum var hann lang- timum saman djúpt hugsi og sagði engum frá því sem hann hugsaði, og að þessu leyti tók Elsa nú að líkjast honum meir og meir. Hún sat hljóð, eins og lítið dýr í híði, og sýndist ekki hafa áhuga á nokkrum sköpuðum hlut. Þegar tími hennar kom gekk hún inn í þorpið og þar, á litla spítalanum sem Mademoiselle Bourgoin rak, fæddi hún án þess að gefa frá sér hljóð. Hún var með undarlegan svip á andlitinu og starði stöðugt upp í loftið. Svo, allt í einu, breyttist allt fyrir henni. ,,Sjáðu hann,” sagði Mademoi- selle Bourgoin og rak drenginn næst- um með valdi upp í fangið á henni. , ,Svona fallegur, lítill strákur! Elsa leit á hann. Svipurinn á henni minnti á himininn yfír heimkynni hennar þegar hann hefur lengi verið auður og enginn vindblær og svo, eins og þegar fyrstu maríutásurnar koma og andvarinn gerir vart við sig, komu fyrstu farfuglarnir úr suðri. Sálin, sem svo lengi hafði verið í burtu, skein nú aftur úr augunum — enn stærri, ást- ríkari og full af aðdáun. Um leið og hún sá þennan dreng, með ljósu augun og föla hárið sem hafði komið úr henni sjálfri, svona dökkri, fann hún hvernig ástin hvolfdist yfir hana. Og engin orð fá lýst aðdáun hennar þegar hann um sex mánaða aldur náði fullri fegurð sléttrar spékoppabernsku. Augun voru blá eins og himinninn sem stundum glittir í milli snjó- þrunginna aprílskýja. Hárið, silki- mjúkt og fíngert eins og dúnn á andarunga, var farið að síkka. Elsa undi tímum saman við þann unað að vefja það um fíngur sér eins og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.