Úrval - 01.09.1981, Síða 89

Úrval - 01.09.1981, Síða 89
HVÍTUR ESKIMÓADRENGUR skipti sem mamma hans lyfti honum til að láta hann í grindina — sem raunar var einmitt það sem með þurfti til þess að alls ekki væri lengur hægt að komast um litla kofann. Thaddeus leit undan og lét í ljósi vanþóknun sína með fýlulegri þögn. En Winnie sá ekkert athugavert við að hvetja drenginn hástöfum til að láta sér þetta ekki lynda. Einu sinni fékk Elsa að „skjótast” heim óvænt á öðmm tíma en vant var. Hún kom að grindinni saman- brotinni úti þar sem mslið var. Jimmy var að leika sér, kátur og ánægður, með hvolpunum yfir diski af þefjandi fiski, andlitið útatað og kámugt. Winnie — andlitið hrukkótt og skorið eins og klettarnir fornu á túndmnni — sat úti undir kofa- vegg og reykti í makindum, starandi út yflr Koksoakána. Thaddeus sat uppi við stafla af tómum olíu- tunnum og vermdi sig í sólinni. Litli bróðir Elsu var að kasta steinum upp í loftið. Hún gat ekki lengur afneitað sannleikanum: Þau vom öll miklu ánægðari þegar hún var hvergi nærri. Fram að þessu hafði Elsa aldrei sést gráta. Nú leystist veröld hennar upp í támm. Enginn vissi hvað nú var til ráða. Thaddeus leit kurteislega undan og starði út í fjarskann eins og hann væri að spyrja gömlu, veðmðu fjöllin hvað hann ætti að halda um svona skefjalausa sorg sem enginn vissi af hverju stafaði. Sem betur fór komu sunnudagar. 87 Þeir dugðu alltaf til að gefa Elsu nýjan þrótt. Snemma á morgnana lagði hún af stað, fersk og hrein í bleikum bómullarkjól, með skart- klæddan drenginn í fanginu. (Hún bar hann aldrei á bakinu að hætti eskimóa, kannski svo að hann gæti betur séð fram á veginn.) Eftir messu fór hún með hann út á afskekkta hluta árbakkans, fram hjá síðasta eskimóakofanum. Þar fór hún úr góðu skónum sínum og hengdi þá um hálsinn á reimunum. Þegar Jimmy var kominn burtu frá þysnum, ertninni og dekrinu í eskimóaþorpinu varð hann annar drengur, blíðari og draumlyndari. Oft þegar hann hafði hlaupið með bakkanum og virt fyrir sér vatn og himin kom hann aftur til mömmu sinnar og brosti til hennar eins og hann vildi segja henni að honum þætti gott að vera þarna með henni. Hún var ánægð en þó óánægð með að enginn nema hún skyldi þekkja þessa hlið á honum. Þegar Jimmy hafði ríslað sér nóg og var orðinn svangur gripu þau í nestið sitt. Þau settust og borðuðu eins hreinlátlega og kostur var, stmku oft af fíngrunum með hreinum sandi. Elsa batt smekk á Jimmy til að hlífa bláu sunnudagafömnum hans, eins bláum og augun í honum. Allt hennar líf beindist að því að kaupa jafndýr og fín föt og leikföng og Beaulieubörnin áttu. En hér, þar sem hún var ein með honum, leið henni vel eins og hún vissi sig hafa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.