Úrval - 01.09.1981, Side 105

Úrval - 01.09.1981, Side 105
HVÍTUR ESKIMÓADRENGUR 103 spyrjandi á hana flýtti hún sér í burtu og drúpti höfði með sektarsvip. Eftir aðra vökunótt herti hún sig upp og spurði verkstjórann í flugskýl- inu. Einhvern rámaði í að hafa séð Jimmy í fyrrakvöld við vélina sem var að fara. Það var vel líklegt að hann hefði falið sig í flutningnum sem settur var um borð. Ef svo var hefðu yfirvöld í áfangastað flugvélarinnar átt að finna hann. Og einmitt þetta kvöld fékk lögreglumaðurinn boð um að Jimmy hefði fundist í Roberval, meira en þúsund kílómetrum sunnar, þar sem hann hafði vakið á sér athygli með sérstakri ákefð í spilavélar og tilraunir til að komast inn í hópa ungs fólks. Hann hafði meira að segja elt fólkið á götum úti. Elsa var komin út á flugvöll nokkrum klukkustundum áður en vélin sem fluttijimmy til baka átti að lenda. Svo kom Jimmy út úr flug- vélinni. Það var eins og hann hefði elst um tíu ár. Ennið var hrukkað, munnurinn samanbitinn og það leyndi sér ekki að honum þótti Elsa hafa svikið hann, það væri henni að kenna að hann var nú fluttur hingað aftur með valdi. Þá vissi hún að hann var henni glataður og það væri aðeins tímaspurning hvenær honum tækist til fulls að flýja. Næsta ár stóð hann sig betur. Hann hlýtur að hafa farið beint til stórrar borgar, kannski Montreal, þar sem hann blandaðist meira í fjöld- ann. Mánuðir liðu og ekkert spurðist til piltsins. Jimmy hafði látið kvisast að hann ætlaði sér að komast til Bandaríkjanna. Og Elsa ímyndaði sér að hann hefði loks náð til lands hermannanna úr setuliðinu og fundið jafningja sína — menn sem allir voru hávaxnir, sterkir og hamingjusamir. Seinna var hún handviss um að hann hefði gengið í herinn og orðið hermaður eins og pabbi hans. SMÁM SAMAN TÖK lífsmynstur Elsu að rakna í sundur. Hún hafði glatað tilganginum í lífi sínu, því sem gaf því þýðingu. Hún hafðist' ekkert að langtímum saman og dreymdi endalausa dagdrauma sem sennilega voru hennar upprunalega eðli þótt skefjalaus móðurástin hefði knúið hana til annars. Hún hætti næstum alveg að sauma. Eftir nokkra mánuði, þegar hún átti ekki lengur málungi matar, seldi hún saumavélina sína, síðan fínu ullarteppin og gluggatjöldin. Loks flutti hún úr húsinu. Hún fann í eskimóaþorpinu kofa sem staðið hafði auður í nokkur ár. Hún lappaði lítið eitt upp á hann og flutti inn. Hún þurfti ekki að taka tillit til annarra. Thaddeus var allur. Winnie var öll. Ian var horfinn án þess nokkur vissi hvort hann hefði komist til Baffinseyjar eða ekki. Archibald og Lawrence létu sjaldan til sín heyra. Það var aðeins þegar hún var alveg orðin uppiskroppa með mat að hún
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.