Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐUR MEÐ FERÐABLAÐI
STOFNAÐ 1913
72. tbl. 76. árg.
LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Forsetakosning-
arnar í Frakklandi:
Mitterr-
and hefur
mest fylgi
París, Reuter.
FRANCOIS Mitterrand, forseti
Frakklands, nýtur mesta fylgis
frambjóðenda í forsetakosning-
um sem fram fara þann 24.
apríl. Þetta kemur fram í skoð-
anakönnun sem Louis Harris-
stofnunin gerði í vikunni.
38% aðspurðra sögðu ætla að
kjósa hinn 71 árs gamla forseta í
fyrstu umferð. Jacques Chirac for-
sætisráðherra nýtur fylgis 21,5%
kjósenda. Fylgi Raymonds Barres,
fyrrum forsætisráðherra, hefur
verið á hraðri niðurleið og var hon-
um spáð 18% fylgi í skoðanakönn-
uninni. Áður voru menn sammála
um að Barre væri líklegur til að
velta Mitterrand úr sessi. Stjóm-
málaskýrendur segja að Barre hafi
orðið að lúta í lægra haldi fyrir
líflegri kosningabaráttu Chiracs og
hæfíleikum Mitterrands til að
höfða til miðjumanna meðal kjós-
enda. Sumir ganga svo langt að
segja að Chirac og Mitterrand séu
famir að „beijast yfír jarðneskum
leifum Barres".
Öllum skoðanakönnunum ber
saman um að Mitterand muni
leggja hvom hinna sem er í ann-
arri umferð kosninganna sem fram
fer þann 8. maí ef enginn fær yfír
50% atkvæða í fyrri umferðinni.
Stuðningsmenn Mitterrands beij-
ast nú undir kjörorðinu „Kjósum
forsetann til forseta".
Þrátt fyrir aldurinn segist Mitt-
errand vera við hestaheilsu. í við-
tali í gær sagðist hann þó vera
fylgjandi því að kjörtímabilið yrði
stytt úr sjö ámm í fímm.
Sjá grein um frönsku forseta-
kosningarnar á miðopnu.
Tékkóslóvakía:
Fjölmenn mót-
mæli kaþólikka
Rratisla vn Rputer
Bratislava, Reuter.
Óeirðalögregla í borginni Brat-
islava í Tékkóslóvakíu leysti í gær
upp friðsamleg mótmæli kaþó-
likka. Mörg þúsund manns kröfð-
ust aukins trúfrelsis og voru þetta
fjölmennustu mótmæli í landinu í
áraraðir.
Yfírvöld höfðu bannað mótmælin
en skipuleggjendur þeirra virtu orð
stjómvalda að vettugi. Eftir að
margir höfðu kveikt á kertum og
hafíð sálmasöng fyrir framan Þjóð-
leikhús Bratislava beitti lögregla
vatnsslöngum gegn fólkinu. Þegar
ljóst var að það hefði ekki áhrif var
sprautað úr kraftmiklum vatns-
dælum á mannfjöldann og vopnuð
lögregla ruddi torgið fyrir framan
leikhúsið með hjálp sérþjálfaðra
hunda. Að sögn vitna voru nokkrir
handteknir.
Fyrr um daginn hafði útvarpsstöð
ríkisins útvarpað áskorun til almenn-
ings um að taka ekki þátt í mótmæl-
unum og var hún sögð vera komin
frá kaþólsku kirkjunni. Talsmenn
kirkjunnar neita því að hafa gefíð
út slíka áskorun.
Kaþólska kirkjan í Tékkóslóvakíu
hefur í vaxandi mæli krafist aukins
trúfrelsis í landinu. Frantisek Tom-
asek kardináli hefur hvatt lands-
menn til að skrifa undir áskorun til
stjómvalda um aukna trúarlega
menntun í skólum landsins og um
rétt til þess að gagnrýna marx-
lenínismann.' Að sögn kirkjunnar
manna hafa a.m.k. 300.000 manns
skrifað undir áskomnina.
Reuter
Palestínumaður slöngvar steinvölu í átt til ísraelskra hermanna í
bænum Hebron á vesturbakka Jórdanár. Tveir Palestínumenn féllu
í átökum við ísraelsher i gær.
+
Israel:
Blóðug átök á her-
numdu svæðunum
Ramallah á vesturbakkanum, Washington,
ÍSRAELSKIR hermenn felldu
tvo Palestínumenn, særðu 26
og handtóku 80 manns í hörð-
um átökum nærri bænum
Hebron á vesturbakka Jórdan-
ár í gær. Hinir látnu, sem voru
um tvítugt, féllu þegar her-
menn skutu á hundruð Pal-
estínumanna sem vörpuðu
Noregur:
Algert hrun í þorsk-
veiðunum við Lófót
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara
HEITA má, að þorskveiðarnar
við Lófót hafi brugðist algjör-
lega og er það alvarlegt áfall
fyrir norska bátaflotann.
Fram að þessu hafa aðeins
veiðst 4.500 tonn en í fyrra var
aflinn 18.000 tonn.
Enn lifa að vísu fimm vikur
af vertíðinni í Lófót en Asbjörn
Rasch, ráðuneytisstjóri í sjávar-
útvegsráðuneytinu, segir, að
ástandið sé „mjög alvarlegt" og
í Lófót er almennt talað um al-
gert hrun í veiðunum. Til þessa
hefur þorskveiðin við Lófót aldrei
verið minni en 1986. Þá var hún
14.000 tonn en augljóst er, að
aflinn verður miklu minni nú.
í blaðinu Dagens Næringsliv
sagði, að til að bæta gráu ofan
Morgunblaðsins.
á svart fengist nú helmingi minna
fyrir fiskinn en í fyrra. Þá var
heildarverðmæti vertíðaraflans í
Lófót 276 milljónir nkr., rúmlega
1,7 milljarðar ísl. kr., en fram
að þessu hafa aðeins fengist fyr-
ir hann 40 millj. nkr., 247 millj.
ísl.
Hlutur sjómannanna 2.200 er
heldur rýr eða aðeins 20.000
nkr., 124.000 ísl., til jafnaðar
það, sem af er vertíðinni. Var
mörg útgerðin, einkum í Norður-
Noregi, illa stödd fyrir en nú tek-
ur steininn úr. Sem dæmi um
ástandið má nefna, að í Statens
Fiskarbank nema aðeins vextir
af skuldum, sem gjaldféllu í
fyrra, 140 millj, nkr., 864 milljón-
um ísl. kr.
Reuter.
steinum að þeim. Að minnsta
kosti 107 manns hafa iátist í
óeirðunum síðan þær hófust
þann 9. desember. Samkvæmt
skoðanakönnun dagblaðs í
Israel sem gerð var fyrr í vik-
unni eru 72% ísraela fylgjandi
harðari aðgerðum gegn upp-
þotum Palestínumanna á her-
numdu svæðunum. Einungis
6% aðspurðra fannst viðbrögð
hersins of harkaleg og afgang-
urinn var sáttur við núverandi
stefnu.
í sömu skoðanakönnun kemur
fram að meirihluti ísraela styður
friðaráætlun Bandaríkjamanna
um hvemig koma megi á friði í
Mið-Austurlöndum. í dag hittir
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tvo Bandaríkja-
menn að máli, sem eru að sögn
utanríkisráðuneytisins nátengdir
palestínskum stjómmálaöflum.
Israelar líta á mennina, sem heita
Edward Said og Ibrahim Abu
Lughod, sem félaga í Þjóðarráði
Palestínu, „útlagaþingi“ Pal-
estínumanna, sem er nátengt
Frelsissamtökum Palestínu, PLO.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, sagðist í gær hafa þungar
áhyggjur af fundi Shultz með
mönnunum tveimur. Hann vísaði
til þess að Bandaríkjastjóm hét
því árið 1975 að ræða ekki við
fulltrúa PLO nema samtökin við-
urkenndu Ísraelsríki, skrifuðu
undir ályktanir Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna númer 242 og
338 og létu af hryðjuverkum.
í gær lauk fímm daga ráðstefnu
ríkja múhameðstrúarmanna í
Amman í Jórdaníu. Niðurstaðan
var einróma stuðningur við mót-
mæli Palestínumanna á hemumdu
svæðunum. í lokaályktun fundar-
ins er heitið stuðningi við „upp-
reisn palestínsku þjóðarinnar uns
óvinurinn, ísrael, er farinn frá
landi Palestínumanna".
Stjórnar-
kreppa í
Færeyjum
Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins í Færeyj-
um.
KOSNINGAR eru á næsta leití
í Færeyjum, eftir að upp úr
samstarfi flokkanna, sem
myndað hafa landstjómina,
slitnaði í fyrrinótt. Það var
ágreiningur um frumvörp til
jafnréttislaga og um staðfest-
ingu greinar um kynþáttamis-
munun i dönsku hegningarlög-
unum sem leiddi til stjórnar-
slita af hálfu Kristilega þjóð-
arflokksins.
Atli Dam, lögmaður, sagði í
gær að ekki væri búið að ákveða
kjördag en þó yrði örugglega
kosið fyrir 8. nóvember, en þá
líkur yfírstandandi kjörtímabili
lögþingsins.
Á fundi landstjómarinnar í
fyrrakvöld höfnuðu hinir stjóm-
arflokkamir kröfu Kristilega
þjóðarflokksins um að frumvörp-
in tvö, sem lögð höfðu verið fram
í lögþinginu, yrðu dregin til baka.
Eftir fundinn rituðu leiðtogar
flokksins bréf til Atla Dams og
sögðust ekki lengur bundnir af
stjómarsáttmálanum.
Lestrekstá skólabíl
Reuter
Lest ók á skólabíl í Katalóníu á Spáni í gær með þeim afleiðing-
um að 15 létu lífið þar af 12 ung börn. Orsök slyssins var að
hlið við brautarteina stóð á sér og lokaði ekki veginum yfir þá
eins og venjulega þegar lest fer hjá. Börnin voru úr barnaskóla
í nágrenninu og voru á leið í skoðunarferð er slysið varð.