Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
29
- ennþá ekki vandamál að taka við sorpi
UM 100 bílhræjum er kastað á sorphauga Reykvíkinga í Gufunesi
vikulega. Sorp hefur aukist mikið undanfarin ár, einkum einnota
umbúðir, allt frá litlum fernum upp í blikktunnur. Stærsti hluti sorps-
ins nú er þó timburúrgangur, að sögn Péturs Hannessonar deildar-
stjóra hjá borgarverkfræðingi. Hann sagði að sorphaugarnir í Gufu-
nesi myndu endast til ársins 1990, eftir það verður að fara annað
með sorp úr höfuðborginni.
„Það hefur engin sorpsprenging
orðið enn,“ sagði Pétur Hannesson
í samtali við Morgunblaðið. Tilefnið
var frétt frá Suðumesjum af gífur-
legri aukningu sorps, m.a. vegna
breyttra neysluvenja. „Hins vegar
hefur orðið mikil aukning á sorpi,
við hljótum að hafa það svona gott
úr því að við hendum svona miklu,“
sagði Pétur. „Enn sem komið er,
er ekkert vandamál að taka við.“
Hann sagði aukninguna aðallega
vera einnota umbúðir, nú væri öllu
m
ONUSTA
VIB
Skipuleg Jjármál, ekkert umstang,
örugg umönnun.
Reynsla okkar af því að veita þjónustu við ávöxtun
peninga í verðbréfum hefur kennt okkur hvað fólk vill
helst og spyr oftast um. Verðbréfareikningur VIB var
fyrsta skref okkar til að verða við óskum viðskiptavina
okkar. Eftirlaunareikningur VIB — fyrir þá sem viija
leggja reglulega fyrir- var það næsta. Jafnframt bjóðum
við Sjóðsbréf VIB og allar algengar gerðir verðbréfa:
Spariskírteini ríkissjóðs, bankabréf, skuldabréf traustra
fyrirtækja, hlutabréf og verðbréf verðbréfasjóða. Starfs-
fólk VIB veitir allar nánari upplýsingar. Síminn
er 91-68 15 30 og afgreiðslan er að Ármúla 7.
Með bestu kveðju,
,rg.
Sigurður B. Stefánsson
'i.X
pakkað inn í plast eða bréf, sem
áður hefði verið ópakkað. Ennfrem-
ur kemur mikið á haugana nú, sem
áður fór til Sindrastáls, svo sem
bílhræ, tunnur og þess háttar. Þá
hafa Suðumesjamenn þurft að
koma til Reykjavíkur að losa sig
við sorp, sem Sorpeyðingarstöð
Suðumesja getur ekki tekið við.
Þrátt fyrir mikla aukningu einnota
umbúða og bílhræa á haugunum,
er þó timburúrgangur enn fyrir-
ferðamestur í sorpinu.
Pétur sagði aukninguna ekki
munu raska áætlunum um nýtingu
hauganna í Gufunesi. Þeir munu
endast næstu tvö árin, til 1990.
Eftir það verður að nota annan stað
til sorplosunar. „Það er vitað um
tvo til þijá staði sem koma til greina
með tilliti til mengunar og um-
hverfís, annað mál er hvort sam-
þykki fæst fyrir þeim,“ sagði Pét-
ur. Hann sagði það stöðugt vera í
athugun, hvemig best væri að losna
við sorpið. Ennþá væri hagkvæmast
að urða það og ekkert sem á þess-
ari stundu benti til breytinga þar
á. Eftir að haugamir í Gufunesi
hafa verið aflagðir, verður hægt að
nýta svæðið til útivistar, t.d. sem
golfvöll, að sögn Péturs, en varla
verður hægt að nýta það undir
mannvirki fyrst um sinn. Þó væri
e.t.v. hægt að reisa þar léttar bygg-
ingar eftir um 20 ár. Pétur benti
á, að þegar hefði verið byggt, þar
sem áður voru sorphaugar í
Reykjavík, t.d. við Eiðsgranda og á
svæði Háskólans.
V' .*.*• ..v
v*:
tV
Félag áhugamanna
um bókmenntir:
Svava Jakobs-
dóttir og
Dagný Krist-
jánsdóttir
NÆSTI fundur Félags áhuga-
manna um bókmenntir er hald-
inn í samvinnu við Forlagið. Þá
verður annað bókmenntapar fé-
lagsins kynnt.
Fyrsta bókmenntaparið var Thor
Vilhjálmsson og Ástráður Eysteins-
son og þótti það skemmtileg nýjung
að hafa saman rithöfund og bók-
menntafræðing.
Laugardaginn 26. mars verður
bókmenntaparið Svava Jakobsdótt-
ir og Dagný Kristjánsdóttir. Forlag-
ið, sem gaf Gunnlaðar sögu út,
kostar ferð Dagnýjar til landsins
og hleypur þannig undir bagga með
félaginu því hún kemur hingað fyrst
og fremst í þeim tilgangi að halda
fyrirlestur á vegum félagsins um
Gunnlaðar sögu. Svava ætlar að
tala um tilurð og heimildaöflun
Gunnlaðar sögu og néfnist erindi
hennar Goðsagan um Gunnlöðu.
Fundurinn hefst kl. 14 laugar-
daginn 26. mars í Tjamarbíói við
Tjamargötu. Fundasókn hefur verið
það góð undanfarið að vandi hefur
verið að fínna sal af heppilegri
stærð en Tjamarbíó tekur mun
fleiri í sæti en salurinn í Odda, sem
oftast hefur verið þétt setinn og
rúmlega það. (Fréttatilkynning)
Gríndavík:
Loðnuhrogn
söltuð fyrir
ABBA í Svíþjóð
Grindavfk.
HJÁ Fiskanesi hf. í Grindavík var
verið að salta loðnuhrogn sl. laugar-
dag fyrir sænska matvælafyrirtækið
ABBA en slík verkun hefur aldrei
áður verið framkvæmd í Grindavík.
Að sögn Dagbjarts Einarssonar fram-
kvæmdastjóra Fiskaness hf. hefur ABBA
látið salta fyrir sig loðnuhrogn undanfar-
in tvö ár í Vestmannaeyjum en vegna
launadeilna og verkfalls þar var Fiska-
nes hf. beðið um að salta ef þess væri
nokkur kostur.
„Söltun loðnuhrogna kemur ekki í
staðinn fyrir söltuð þorskhrogn vegna
minni þorskgengdar ár eftir ár eins og
ég hélt fyrst," sagði Dagbjartur. „Hér
er um annan neyslumarkað að ræða í
Svíþjóð og Danmörku og allt aðrar um-
búðir. Hér er hins vegar um frekari nýt-
ingu á loðnuhrognunum að ræða sem
kemur sér vel, sérstaklega þegar fryst-
ingin dregst saman,“ bætti hann við.
- Kr.Ben.
Morgunblaðið/Kristinn
Unnið við söltun loðnuhrogna í Fiskanesi í Grindavík.
Sorphaugar Reykjavíkur:
Um 100 bíl-
hræáhaugana
í viku hverri