Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
55
Það var fámennt og góðmennt á fundinum. Morgunblaðið/Am6r
Borgarafundur í Garðinum:
Tekjuafgangur til framkvæmda
á þessu ári 3—4 milljónir kr.
Hefur lækkað um helming 1 krónutölu á tveimur árum
Garði.
Kolbrún Björnsdóttir, Austurgötu
16. Orgel og kórstjóri Örn Falkner.
Sr. Einar Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10. Rúmhelga daga lág-
messa kl 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Barna-
samkoma í Stóru-Vogaskóla kl. 11
í dag, laugardag. Stjórnandi Hall-
dóra Ásgeirsdóttir, sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fermingar-
messur kl. 10.30 og kl. 14. Organ-
isti Siguróli Geirsson. Sóknar-
prestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Síðasta samvera
barnanna á þessu starfsári. Eftir
fermingar veröa messur kl. 11 á
sunnudögum. Eru börnin hvött til
að sækja messur með foreldrum
sínum yfir sumartímann. Messa
kl. 14. Unglingamót þessa helgi
er hópför barna og unglinga á
kristilegt mót í Borgarfirði á vegum
Ungs fólks með hlutverk. Nk.
þriöjudagskvöld kl. 20.30. Bæna-
námskeið. Fjóröi og síðasti hluti
Sr. Örn Bárður Jónsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Sunnudaga-
skólinn verður kl. 14 í umsjá
Málfríðar Jóhannsdóttur. Um
þessa helgi fara fermingarbörn í
ferðalag með sóknarprestinum sr.
Hirti Magna Jóhannssyni.
HVALNESKIRKJA: Sunnudagskól-
inn verður í grunnskólanum í Sand-
gerði kl. 11 í umsjá Málfríðar Jó-
hannsdóttur. Um þessa helgi fara
fermingarbörnin í ferðalag með
sóknarpresti. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli
yngstu barnanna í safnaðarheimil-
inu í dag, laugardag kl. 11. Páska-
fundur. Stjórnandi Axel Gústafs-
son. Barnasamkoma í kirkjunni
sunnudag kl. 11. Messa kl. 14
Organisti Jón Þ. Björnsson í Borg-
arnesi. Aðalsafnaðarfundur eftir
messu. Sr. Björn Jónsson.
Hið íslenska
náttúrufræðifélag:
Um upp-
runa og
þróun gena
GUÐMUNDUR Eggertsson
erfðafræðingur segir frá nýj-
um kenningum um uppruna og
þróun gena mánudagskvöldið
28. mars.
Rannsóknir á jarðlögum benda
til þess að lífverur líkar bakteríum
að útliti hafí lifað á jörðinni fyrir
um 3.500 milljónum ára. Gen
hljóta að eiga sér enn lengri sögu.
Þess er ekki að vænta að jarðlög
geymi nein merki um erfðaefni
fomra lífvera, en rannsóknir sam-
eindalíffræðinga á nútímafrumum
hafa hins vegar gefíð ýmsar
vísbendingar um eðli fyrstu gen-
anna. í fyrirlestrinum fjallar Guð-
mundur um tilgátur um eðli fyrstu
genanna og um þróun gena eftir
að DNA festist í sessi sem erfða-
efni, sérstaklega um þann mun
sem orðið hefur á genum dreif-
kjömunga og heilkjömunga.
Fyrirlesturinn, sem er öllum
opinn, verður í stofu 101 í Odda,
Hugvísindahúsi Háskólans, og
hefst kl. 20.30.
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
ÞAÐ getur oft verið svekkjandi
að starfa í hreþpsnefnd, kosinn í
eldheitum kosningum á fjögurra
ára fresti, og sitja svo uppi með
það að boða til borgarafundar um
fjárhagsáætlun og fá innan við
1% fbúanna á fundinn. Þetta gerð-
ist sl. þriðjudag er telja mátti
fundargesti á fingrum beggja
handa sem hlýddu á Finnboga
Björnsson oddvita Gerðahrepps
fara yfir heildartölur í fjárhagsá-
ætlun fyrir árið 1988.
Reyndar verður fréttaritarinn að
viðurkenna það hér að hann var í
hópi 99% sem ekki sátu fundinn og
brást þar með skyldu sinni. Hins
vegar geta hreppsnefndarmenn í
báðum flokkum ígrundað það hver
ástæðan fyrir þessari dræmu aðsókn
er.
Tekjuhlið áætlunarinnar er að
stærstum hluta byggð á útvarpstekj-
um upp á 38,5 milljónir, aðstöðu-
gjaldi 6,5 milljónir, fasteignaskatti
upp á 4,8 milljónir og framlagi jöfn-
unarsjóðs upp á 4,8 milljónir.
Gjaldahlið fjárhagsáætlunarinnar
líkist einna helzt svörtu skýrslu físki-
fræðinganna hér um árið. Þá er átt
við hinar háu fjárhæðir sem eru
fastir gjaldaliðir hreppsins. Þar má
nefna sýslusamlag upp á tæpar 6
milljónir, leikskólinn þarf 3,2 millj-
ónir. Slökkvilið og sjúkraflutningar
2 milljónir, grunnskóli, framhalds-
skóli og tónlistarskóli ásamt ferða-
kostnaði nemenda upp á tæpar 8,5
milljónir og þegar upp er staðið er
3—4 milljónir í framkvæmdir hjá
hreppnum en á kosningaárinu var
þessi upphæð 6—7 milljónir.
Þessar tölur sýna eflaust í hnot-
skum þau vandræði sem minni sveit-
arfélögin í landinu eiga við að glíma
og hreint með ólíkindum að hið háa
Alþingi skuli stinga slíku stórmáli
undir stól.
Af skiljanlegum ástæðum urðu
litlar umræður á fundinum sem stóð
aðeins í rúman klukkutíma. Fundar-
stjóri var Ellert Eiríksson sveitar-
stjóri og alþingismaður.
Arnór
Við minnum á tískusýninguna fyrir framan Rammagerðina
í KRIIMGLUNIMI í dag kl. 14.00.
wmmmssm
■
Arblik hf.