Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 .
17
Fimm samtök verslunarinnar:
Atbeina ríkissljórn-
ar óskað vegna skatt-
lagningar á verslun
FULLTRÚAR finun samtaka
verslunarinnar rituðu forsœtis-
ráðherra bréf síðastliðinn mánu-
dag, 21. mars, varðandi skatt-
lagningu á verslun. í bréfinu er
skorað á ríkisstjórnina að hún
beiti sér fyrir því að skattlagning
á versiun verði samræmd því,
sem gerist um aðra atvinnuvegi.
Bréfíð til forsætisráðherra er
svohljóðandi: „Við undirritaðir
samningsaðilar að kjarasamningum
verslunarmanna skorum á ríkis-
stjóm íslands að hún beiti sér nú
þegar fyrir því að skattlagning á
verslun verði samræmd þvi sem
gerist um aðra atvinnuvegi. Einkum
er hér átt við launaskatt og sér-
stakan skatt á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði.
Ljóst er að ofsköttun verslunar-
innar vinnur gegn kjörum þeirra
sem við verslun starfa og rýrir sam-
keppnishæfni hennar gagnvart iðn-
aði og erlendri verslun. Þess er fast-
lega vænst að viðeigandi ráðstafan-
ir verði gerðar á yfirstandandi Al-
þingi og geti komið til framkvæmda
eigi síðar en í byijun árs 1989.
Óskað er skriflegs svars svo fljótt
sem auðið er.“
Undir bréfíð rituðu fulltrúar fím
samtaka verslunarinnar, þ.e.
Landssambands íslenskra verslun-
armanna, Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, Vinnumálasambands
samvinnufélaganna, Samstarfsráðs
verslunarinnar og Félags verslunar-
og skrifstofufólks á Akureyri.
Fóstureyðingar og ófijó-
semi — Leiðrétting
f VIÐTALI við undirritaðan í
Morgunblaðinu 31. janúar sl. stóð
að tíu til fimmtán prósent kvenna
ættu við ófijósemi að striða siðar
á ævinni, jaJfnvel þótt fóstureyð-
ingaraðgerð hafi farið fram á
spítala. Vitnað hefur verið til
þessara talna síðan i öðrum fjöl-
miðli (sjónvarpi 22. mars).
Því miður höfðu tölur brenglast
í þessu tilviki. Skrifast það alfarið
á reikning undirritaðs og er nauð-
synlegt að það sem rétt er komi
fram, þar sem þessi villa hefur orð-
ið tiiefni tii frekari umræðu. Átt
var við tölur um ófijósemi eftir
eggjaleiðarabólgu, en á henni getur
verið hætta eftir fóstureyðingu. Tíu
til fímmtán prósent kvenna sem fá
eggjaleiðarabólgu eiga við ófijó-
semi að stríða síðar. Af konum, sem
fara í fóstureyðingu eru hinsvegar
fáar, sem fá eggjaleiðarabólgu,
m.a. vegna forvama sem beitt er
til að minnka áhættuna. Fjöldi
þeirra kvenna sem innlagðar voru
á ný á Landspítalann eftir fóstur-
eyðingu og eggjaleiðarabólga
greindist síðan hjá, var innan við
1%. Af þeim gætu um 10 til 15%
OÍTIROn
hafa orðið ófíjóar, eða 0,1—0,15%
af heildarfjöldanum. Þessar konur
eru því væntanlega fáar á íslandi.
Til viðbótar þurftu 5—7% kvenn-
anna meðferð vegna annarra líkam-
legra fylgikvilla, sem yfirleitt voru
auðlæknanlegir. Þetta er í samræmi
við reynslu frá nágrannalöndum
okkar, þar sem nýrri rannsóknir
hafa sýnt að tíðni ófijósemi eftir
fóstureyðingu er ekki verulega auk-
in1, gagnstætt því sem áður var
talið. Verði ekki sýking eftir fóstur-
eyðingu er ófijósemi ekki meiri hjá
þessum konum heldur en almennt
gerist í þjóðfélaginu (10% hjóna).
Þar sem fóstureyðingar hafa ekki
verið leyfðar og fjöldi ólöglegra
aðgerða farið fram, hafa eftirköst
fóstureyðinga hinsvegar oft reynst
mun alvarlegri og tölur um síðari
ófijósemi verið mun hærri.
Með þökk fyrir birtinguna.
Reynir Tómas Geirsson læknir,
kvennadeild Landspítalans.
1 Hogue CJR. Impaet of
abortion on subsequent fec-
undity. Clin Obstet Gynaecol
1986; 13: 95-103.
hjálpar
sérsjálf
5K!5SSS!?fi».
1 nrænmetiskvorn,
hrærivel, 9ræ Fiölhæfm
sett.
06571
blandari • spaði.
STORÚTSALA Á HEIMILISGÓLFDÚKUM
10 -50% atsláttur
Komið og gerið góð kaup. Útsalan stendur til 30. mars.
VAwv VECCFÓÐRARINN -
MÁLNINC & JÁRNVÖRUR
Síðumúla 4, Símar 687171 og 687272.
BIRGIR