Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Foldaskóla í Grafar-
vogshverfi laugardag kl. 11 árdeg-
is. Fermingarguðsþjónusta í Ár-
bæjarkirkju pálmasunnudag kl.
10.30 og ki. 14. (Ath. Barnaguðs-
þjónusta fellur niður kl. 11 vegna
ferminga.) Organleikari Jón Mýr-
dal. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Útvarps-
guðsþjónusta kl. 11. Svanhildur
Sveinbjörnsdóttir og Vilborg Reyn-
isdóttir syngja tvísöng. Organisti
Daníel Jónasson. Á sama tíma
verður síðasta barnasamkoma
vetrarins í kjallara kirkjunnar, Sr.
Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11 í Bústöðum. (Ath.
breyttan stað). Elín Anna Antons-
dóttir og Guðrún Ebba Ólafsdóttir.
Fermingarguðsþjónustur kl. 10.30
og 13.30. Organisti Jónas Þórir.
Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL: Ferm-
ingarguðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 10.30. Barnasamkoma í
safnaðarheimilinu við Bjarnhóla-
stíg kl. 11. Sr. Þorbergur Krist-
jánsson.
DÓMKIRKJAN: Laugardag: Barna-
samkoma í kirkjunni kl. 10.30. Egill
Hallgrímsson. Sunnudag: Kl. 11.
Ferming, altarisganga. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Kl. 14. Ferming.
Altarisganga fermingarbarna sr.
Þóris Stephensen er á mánudag
kl. 20. Sr. Þórir Stephensen.
Þriðjudag 29. mars kl. 20.30.
Helgistund á föstu. Sr. Hjalti Guð-
mundsson.
ELLIHEIMILIÐ. Grund:Guösþjón-
usta kl. 10. Sr.'Árelíus Níelsson.
FELLA- og Hólakirkja: Á Pálma-
sunnudag kl. 16 vígir biskup ís-
lands hr. Pótur Sigurgeirsson
Fella- og HÓIakirkju. Að lokinni
vígslu fer fram guðsþjónusta og
altarisganga. Auk biskups annast
altarisþjónustu vígslubiskup og
sóknarprestar. Kirkjukór Fella- og
Hólakirkju syngur. Organisti og
söngstjóri Guðný Margrét Magn-
úsdóttir. Hljóðfæraleikarar: Jón
Sigurðsson, Lárus Sveinsson,
Guðrún Birgisdóttir og Martiaj
Nardeau. Einsöngvarar: Ragn-
heiður Guðmundsdóttir, Viðar
Gunnarsson og Helgi Maronsson.
Fyrir vígslu er leikið á hljóðfæri,
og Æskulýðsfélag Fella- og Hóla-
kirkju annast söng. Barnasam-
koma kl. 11. Umsjón Ragnheiður
Sverrisdóttir. Æskulýðsfélags-
fundur mánudagskvöld kl. 20.30.
Sóknarnefndir og sóknarprestar.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Ferming-
arguðsþjónusta og altarisganga kl.
Pálmasunnudagur
Guðspjall
dagslns:
Lúk. 19.:
Innreið Krists
í Jerúsalem
11. Organisti Pavel Smid. Sr.
Gunnar Björnsson.
GRENSÁSKIRKJA: Fermingar-
messa kl. 10.30 og fermingar-
messa kl. 14. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardag:
Samvera fermingarbarna kl. 10.
Sunnudag: Barnasamkoma og
messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Orgeltónleikar kl. 17. Ann
Toril Lindstad leikurog kynnirverk
eftir Georg Böhm og Vincent
Lubeck. Kvöldbænir með lestri
passíusálma mánudag, þriðjudag
og miðvikudag kl. 18.
LANDSPfTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Ferming kl.
10.30 og 14. Organisti Orthulf
Prunner. Prestarnir.
HJALLAPRESTAKALL í Kópavogi:
Barnasamkoma kl. 11 í messu-
heimilinu, Digranesskóla. Almenn
guðsþjónusta kl. 14. Sr. Magnús
Guðjónsson biskupsritari messar.
Sóknarfólk er hvatt til þátttöku.
Kirkjukórinn syngur. Orgelleikari
Friðrik V. Stefánsson. Sr. Kristján
Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11 árdegis. Fermingar-
guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl.
14. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna kl. 11. Söngur — sögur —
myndir. Þórhallur Heimisson og
Jón Stefánsson sjá um stundina.
Fermingarguðsþjónusta kl. 11.
Fermingarguðsþjónusta kl. 13.30.
Prestur sr. Sig. Haukur Guðjóns-
son. Organisti Jón Stefánsson.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL:
Laugardag: Guðsþjónusta í Hátúni
10b 9. hæð kl. 11. Pálmasunnu-
dag: Guðsþjónusta kl. 11. Guð-
laugur Gunnarsson kristniboði
prédikar. Helgileikur unglinga.
Barnastarf. Fermingarbörnin og
fjölskyldur þeirra sérstaklega hvött
til að koma. Mánudag: Æskulýðs-
starf kl. 18. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Laugardag: Æsku-
lýðsfundur fyrir 11—12 ára kl. 13.
Samverustund aldraðra kl. 15. Ing-
ólfur Guðmundsson talar og sýnir
litskyggnur. Friðbjörn G. Jónsson
syngur einsöng og barnakór kemur
í heimsókn. Pálmasunnudag:
Fermingarmessa kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. 31. vígsludagur
kirkjunnar. Kirkjukórinn flytur 5
gömul íslensk sálmalög í útsetn-
ingu Jakobs Hallgrímssonar. Orgel
og kórstjórn Reynir Jónasson.
Guðmundur Óskar Ólafsson. .
SELJAKIRKJA: Fermingarguðs-
þjónusta kl. 10.30 og kl. 14. Sókn-
arprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta laugardag kl. 11.
(Ath. breyttan tíma). Skólakór Mýr-
arhúsaskóla kemur í heimsókn og
syngur nokkur lög. Eirný og Sol-
veig Lára. Sunnudag: Ferming kl.
10.30 og 13.30. Sóknarprestur.
KIRKJA óháða safnaðarins: Ferm-
ingarguðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Heiðmar Jónsson. Þórsteinn
Ragnarsson safnaðarprestur.
DÓMKIRKJA Krists Konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl.
14. Rúmhelga daga er lágmessa
kl. 18 nema á laugardögum, þá kl.
14.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffla-
delffa: Sunnudagaskóli kl. 10.30.
Samhjálparsamkoma kl. 20.
Skírnarathöfn. Fjölbreytt dagskrá.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Völvu-
felli: Sunnudagaskóli kl. 11. Al-
menn samkoma kl. 16.30 með
þátttöku ungs fólks. Æskulýðskór-
inn Ljósbrot syngur.
KFUM & KFUK: Samkoma Amt-
mannsstfg. Almenn samkoma kl.
20.30. Upphafsorð: Jóhannes
Tómasson. Ræðumaður sr. Jónas
Gfslason. Bænastund kl. 20.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræð-
issamkoma og sunnudagaskóli kl.
17. Þar stjórna og tala foringjarn-
ir. Nk. mánudags- og þriðjudags-
kvöld kl. 20 verða fræðslufundir
um barna og unglingastarf í umsjá
majors Gilberts Ellis og frú, æsku-
lýðsleiðtoga frá Osló.
NÝJA Postulakirkjan: Messa kl.
11.
MOSFELLSPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Lágafellskirkju kl. 11
og messa þar kl. 14. Sr. Birgir
Ásgeirsson.
GARÐAKIRKJA: Barnasamkoma í
Kirkjuhvoli kl. 11. Fermingarguðs-
þjónustur í Garðakirkju kl. 10.30
og kl. 14. Altarisganga þriðjudag
29. mars kl. 20.30. Sr. Bragi Frið-
riksson.
KAPELLA St. Jósefssystra f
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
VÍÐIST AÐ AKIRKJ A: Fermingar-
guðsþjónustur kl. 10 og 14. Kór
Víðistaðakirkju syngur. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Sig-
urður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Ferm-
ingarmessur kl. 10.30 og kl. 14.
Sr. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN f Hafnarfirði: Barna-
og fjölskyldusamkoma kl. 11.
guðsþjónusta kl. 14. Fermd verður
Eg* er þjónn mannkyns,
tónlist mín er tileinkuð því
- segir Sri Chinmoy hugleiðslumeistari
HÓGVÆR Indveiji, 56 ára,
stendur hálfhuíinn af tjöldum
Háskólabíós. Kannski er hann að
virða fyrir sér salinn, fullan af
forvitnum áhorfendum, sem vita
fæstir við hverju er að búast.
Líldega er hugur hans þó viðs
fjarri. Hann heitir Sri Chinmoy,
New York búi og andlegur meist-
ari 1300 manna viðs vegar um
heim. Hann er hér staddur á tón-
leikaferðalagi en tónlistin sem
hann flytur hlýtur að teljast
nokkuð frábrugðin því sem áður
hefur borið á borð okkar íslend-
inga. Hann leikur á hátt á annan
tug hljóðfæra, flautur, strengi,
hljómborð, og ásláttarhljóðfæri.
Greinilegt er að tónlist hans fell-
ur ekki öllum í geð en Iangstærst-
ur hlutinn situr kyrr í sætum
sínum og hlýðir á. Að tónleikun-
um loknum er áhorfendum boðið
að sjá Chinmoy hugleiða og þigg-
ur fjöldi þeirra boðið
Er síðustu áhorfendumir hafa
yfirgefið Chinmöy er blaðamanni
boðið að setjast fyrir framan hann
og spyija. Allan tímann situr hann
grafkyrr og augun eru hálflukt
meðan hann svarar spurningunum.
„Tónlist mín er tileinkuð öllu mann-
kyni. Við töíum ekki hvers annars
mál en ég kann vel að meta þegar
þú leikur tónlist þína og vona að
þér líki mín einnig. Þessi velþóknun
gerir okkur eitt. Tónlistin er al-
þjóðlegt tungumál sem höfðar til
allra. Ég þjóna mannkyninu best
með því að leika tpnlist mína.
Tónlistin er ein leið til hugleiðslu.
A rokktónleikum t.d. skapast mikill
hávaði en í kvöld kom fjöldi fólks
á tónleikana og sat þögult í sætun-
nm. í þögn reyndu þessir áhorfend-
ur að læra að þekkja sjálfa sig.
Er tónlist þín spunnin af fingrum
fram eða getur hver sem er leikið
hana? „Ég hef aðeins spunnið tón-
verk á hljómborð og píanó, hin lög-
in geta geta aðrir leikið ef þeir vilja
læra þau.“
Hvers vegna leikur þú á svona.
mörg hljóðfæri? „Málarinn er ekki
ánægður með að máia aðeins eitt
verk, því fleiri verk sem hann mál-
ar og því'fleiri liti sem hann notar,
Sri Chinmoy
því fleirum líka verk hans. Ég leik
á yfir 100 hljóðfæri í þeitri von að
fleirum líki tónlist mfn, því ég er
þjónn mannkyns."
Chinmoy hefur hitt fjölmarga
þjóðarleiðtoga, þar á meðal forseta
Islands, auk forsætisráðherra og
biskups. Þá hefur hann einnig hitt
páfa að máli. „Jörðin er eins og
heimili. Ég var að hitta fjölskyldu-
meðlimi mína sem eru dreifðir um
alla jarðkringluna. Við erum öll ein
stór fjölskylda. Hvert land er eins
og herbergi í stóru húsi og því er
ég hér, til að syngja íslandi lofgjörð
af öllu hjarta mínu. Hvert og eitt
herbergi í þessu húsi er sérstakt
eins og til dæmis land ykkar. Þið
eruð friðelskandi þjóð og hafið ver-
ið um margra alda skeið. Þið berj-
ist ekki við aðrar þjóðir og óttist
þær ekki heldur. Hin mikla gest-
risni ykkar fyllir mig eíningartil-
fínningu og kærleik.
En hvað með Indland? „Sannleik-
ur og friður hefur ríkt í hinu innra
Indlandi um aldaraðir en hið ytra
er það hijáð af vandamálum og þar
ríkir öngþveiti."
Þú ert kallaður andlegur meist-
ari hvað felst í því? „Nemendur
mínir telja mig kennara en ég líka
bróðir þeirra, eldri og aðeins reynd-
ari bróðir. Ég hef hugleitt og þjálf-
að mig ösfítið lengur en þeir, tak-
mark mitt er að hjálpa þeim að
nálgast hinn sanna leiðtoga, Guð.
Ég er leiðbeinandi þeirra, ekki neinn
guð.“
Eru samtök þín trúarsamtök?
„Nei, þau eru lífsmáti, leið til betra
lífs. Ég ber djúpa virðingu fyrir
trúarbrögðum, sjálfur er ég fæddur
hindúi. Trúarbrögð eru greinar á
sama meiði, sá meiður en sannleik-
urinn. Kristur, Búdda og Krishna
voru kennarar, upplýstar sálir og
andlegir leiðtogar."
Setur þú nemendum þínum ein-
hver skilyrði? „Ég banna þeim ekki
neitt, þeir fínna sjálfir hjá sér hvöt
til að láta af óhollum og heimsku-
legum hlutum, eins og t.d. reyking-
um, drykkju og neyslu annarra
vímuefna. Geti þeir það ekki , eru
þeir ekki enn reiðubúnir til að iðka
andleg fræði. Vilji ég sjá ljós, fer
ég úr myrkrinu, það sama gildir
um óhollustu. Það er heimskulegt
að neyta þeirra efna sem eyðilegga
heilsuna.
íþróttir eru einnig leið að friði.
Við erum alltaf á hlaupum að ein-
hveiju marki og sé ekkert enda-
mark, hreyfum við okkur ekki. Sé
líkami minn ekki í góðu ásigkomu-
lagi, get ég ekki einbeitt mér og
hugleitt. Góð heilsa er því nauðsyn-
leg í hugleiðslu. Takmarkið er ekki
að verða bestur í einhverri íþrótt,
heldur að hver geri það sem honum
er mögulegt. Þegar ég lyfti tonni
með annarri hendi, var það ekki til
að sýna hvað ég get, heldur hvað
Guði er mögulegt. Ég er verkfæri
Guðs og gæti aldrei gert þetta án
náðar hans.“
U.G.