Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
77
SKEMMTANIR
Allt í gamni hjá Ríó í Broadway
. Morgunblaðið/Þorkell
Olafur, Ágúst og Helgi, ásamt Gunnari, i Allt í ganrni með Ríó í
Broadway.
Undirtektimar sem söng-
skemmtunin Allt i gamni
með Ríó fékk i Broadway síðast-
liðið laugardagskvöld sýna að
eitthvað hlýtur að vera til i aug-
lýsingu veitingahússins, að hún
sé hressasta söngskemmtun bæj-
arins. Stemmningin jókst þegar
á skemmtunina leið og undir lok-
in vom margir gestir veitinga-
staðarins famir að syngja með
og dansa uppi á stólum og borð-
um.
Söngskemmtunin Allt í gamni
með Ríó.hefur verið í veitingastaðn-
um Brodaway frá því rétt fyrir
síðustu mánaðarmót. Með þeim
Ríó-félögum, Ágústi Atlasyni,
Helga Péturssyni og Ólafi Þórðar-
sjmi, leikur „þriggja landa stór-
hljómsveit Broadway" undir stjóm
Gunnars Þórðarsonar og einnig
syngja með „Ríumar" Ema Þórar-
insdóttir, Eva Albertsdóttir og Guð-
rún Gunnarsdóttir. Dagskráin
stendur yfír í hálfan annan klukku-
tíma. Miðinn á skemmtunina ásamt
ágætum mat kostar 3.200 krónur.
Hvert sæti var skipað í Broadway
á laugardagskvölið þegar ég mætti
á staðinn til að skrifa umsögn um
skemmtunina. Ég var víst nokkuð
seinn að panta, en fékk þó sæti við
síðasta borðið. Var það innst inni
í homi til hliðar við sviðið og sást
því lítið framan í höfðingjana í hvítu
jakkafötunum í upphafi sýningar-
innar, það er á meðan þeir voru enn
í venjulegri tríóuppstillingu á svið-
inu. Sjónvarpsskjár sem átti að
hjálpa gestunum í þessum hluta
salarins að fylgjast með kom einnig
að litlum notum, fyrir mig að
minnsta kosti.
Ríó tríóið var í upphafi skemmt-
unarinnar kynnt á þann hátt að það
hafí aldrei verið hressara, aldrei
verið betra og væri allra tíma á
íslandi. Þrátt fyrir þessa kynningu
fór Ríóið hægt í sakimar í fyrstu
en jók smám saman kraftinn. Byij-
að var að klappa fyrir alvöm þegar
þeir fóru að syngja lög eins og
Sprengisand, Fyrr var oft í koti
kátt og Ég berst á fáki fráum. Á
milli spretta gáfu þeir sér tíma til
að kynna hljómsveitarmeðlimi, rifja
upp atburði úr sögu tríósins, tala
við fólkið og segja skemmtisögur.
Sumt af þessu fór þó fyrir ofan
garð og neðan vegna skvaldurs í
salnum.
Það er greinilega vinsælt hjá
samstarfsfólki á vinnustöðum að
fara saman í stómm hópum sem
litlum á Allt í gamni með Ríó.
Umrætt Iaugardagskvöld vom til
dæmis staddir í Broadway hópar
af ólíkum gerðum og stærðum:
Starfsfólk úr Iðnaðarbankanum og
áhöfnin á Víkingi AK, starfsfólk
Borgarbflasölunnar og Ljósvakans,
starfsfólk Svörtu pönnunnar og
Sijómunarfélags íslands, starfsfólk
Vélaverkstæðis J. Hinrikssonar og
Sparisjóðs Kópavogs, starfsfólk
Gámaþjónustunnar og sýsluskrif-
stofunnar í Vík í Mýrdal. Var mikið
§ör hjá þessum hópum, að minnsta
kosti Iðnaðarbankahópnum sem sat
næst mér.
Ríó tríóið söng nokkur gömul
lög, sögðust þurfa að fara í gegn
um „ritúalið“ sitt og síðan kom
Kópavogskafli þar sem sunginn var
Kópavogsbragur og sagðir brandar-
ar fyrir Kópavogsbúa sem sagðir
vora fjölmennir í salnum. Síðan
komu ýmis lög, svo sem Kvenna-
skólapían og Hver gerði Gerði...?
Og Iðnaðarbankinn var farinn að
sitja uppi á stólbökunum og klappa.
Einn besti kafli söngskemmtun-
arinnar var næstur. Þá mjmduðu
tríóin tvö, Ríó og Ríur, sextett og
sungu nokkra negrasálma. Sagði
Helgi P. að þetta væri gamall
draumur sem þeir væm að láta
rætast f þessari söngskemmtun.
Þeir væra að syngja þetta fyrir sig
sjálfa og góðir gestir yrðu að láta
það yfir sig ganga. Óþarfi var hjá
honum að afsaka negrasálmasöng-
inn fyrirfram, því þau sungu þetta
vel og fengu mjög góðar undirtekt-
ir hjá salnum.
Þá komu lög eins og Ég vil elska,
ekki rífast og öli Jó og andrúmsloft-
ið orðið eins og á góðu þorrablóti
uppi í Borgarfirði, svo tekin sé við-
miðun sem höfundur þekkir sæmi-
lega. Og lætin jukust enn í síðasta
kafla skemmtunarinnar. Þá tók
Ólafur framkvæðið, sem Helgi hafði
haft allan tímann, þreif hljóðnem-
ann og óð með hann eins og vitlaus
maður um allt sviðið svo tríóið leyst-
ist upp í frameindir sínar. Fór Óli
á kostum og fékk fólkið með. Nú
komu lög eins og Bimbó, bimbó og
Allir era að gera’ða gott og
skemmtunin náði hámarki. Iðnaðar-
bankinn og margir úr hinum hópun-
um vora komnir upp á borð eða
stóla og dönsuðu eða dilluðu sér
og stemmningin orðin eins og á
villtustu sveitaböllunum í Miðgarði
fyrir 15—20 áram.
Þegar skemmtuninni lauk var
öskrað Ríó, Rfó þangað til fólkið
fékk aukalagið sitt, Fröken
Reykjavík.
Allt í gamni er ágætis skemmtun
að mínu mati og enginn ætti að
þurfa að láta sér leiðast á henni.
Með góðri samvisku er hægt að
mæla með henni við fólk sem á
annað borð er að fara út að
skemmta sér, að minnsta kosti sem
áfanga á laugardagskvöldi.
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
ÁS-TENGI
\
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál - í - stál
StactœMgiuB' <JKarass®(rii S <S®
VESTURGÖTU 16 SIMAR 14680 P1480 «.
yy Kökubasar - Kökubasar
Kökusala SPOEX verður haldin
á morgun, sunnudaginn
27. mars, í Blómavali viö Sigtún
og hefstkl. 13.30.
Gerið góð kaup á góðum og
glæsilegum kökum.
Stjórnin.
LAUGARAS
FRUMSÝNING Á STÓRMYND RICHARDS ATTENBOROUGH
}
HRÓPÁFRELSll
“WONDERFUL!”
"Thrilling. One oltheyear's most inspirlng, wonderfui films. 001)1 miss itr
- Jeffrey Lyons, SNEAK PREVIEWS/INN
►
►
k
Myndin er byggð á reynslu Donalds Wood, ritstjóra, sem slapp naumlega frá S-Afríku undan ótrúleg-
um ofsóknum stjómvalda.
Umsagnir:
„Myndin hjilpar heiminum að skilja um hvað baráttan snýst."
Coretta King, ekkja Martins Luther King.
„Hróp á freisi er einstök mynd, spennandi, þróttmikil og heldur manni hugföngnum."
S.K. Newsweek.
Frumsýning laugardaginn 26.3 kl. 21.
Donald Woods verður vlðstaddur.
Forsala miða á frumsýningu frá kl. 16 daglega í Laugarásbiói. Miðaverð kr. 300,-
Ágóði affrumsýningu rennurtii AMNESTY INTERNATIONALá isiandi.
• Almennarsýningarhefjastsunnudaginn27.3íA-salkl.5og9ogíB-salkl. 7.
Miðaverð kr. 300,-