Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
Alþjóðleg matvælasýning
haldin hérlendis á næsta ári
FYRIRHIJGAÐ er að halda hér á
landi alþjóðlega matvælasýningu
dagana 6.-16. mai á næsta ári
einkum með þátttöku íslenskra
fyrirtælqa. Sýningin er haldin á
vegum breska fyrirtækisins Ind-
ustrial Trade Fairs Limited og
Alþjóðlegra vörusýninga sf. sem
áður hafa staðið fyrir tveimur
sjávarútvegssýningum og fiskeld-
issýningu hér á landi. Auk þess
hyggjast sömu aðilar halda hér á
landi þriðju sjávarútvegssýning-
una árið 1990 og fiskeldissýningu
1991.
Þórleifur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Alþjóðlegra vörusýninga, hefur
haft veg og vanda af undirbúningi
matvælasýningarinnar. í samtali við
Morgunblaðið sagði Þórleifur að við-
brögð við sýningunni hefðu til þessa
verið mjög góð og ýmsir aðilar sýnt
henni áhuga auk fjölmargra fyrir-
tækja. Samhliða sýningunni yrði
haldin sérstök hátíð, Iceland Seafood
Festival, á veitingastöðum og hótel-
um borgarinnar sem yrði vel kynnt
erlendis. Á sama tíma væri fyrir-
hugað að halda hér þing Norræna
matreiðsluklúbbsins sem ætti
fímmtíu ára afmæli á næsta ári. Þar
færi fram keppni milli norrænna
matreiðslumeistara og yrði sigur-
vegarinn krýndur á sýningunni jafn-
framt því sem gestum gæfíst kostur
á að skoða réttina.
Þórleifur sagði að rætt hefði verið
um að bjóða hingað til lands af þessu
tilefni heimsfrægum matsveinum og
matreiðslumönnun. Einnig væru
uppi hugmyndir um að bjóða hingað
fólki úr matvælaiðnaði hvaðanæva
úr heiminum. Á sýningunni myndu
verða sýndar allar helstu tegundir
íslenskra matvæla og drykkjarfanga
en einnig yrði erlendum matvælafyr-
irtækjum boðin þátttaka.
Þórleifur Ólafsson, framkvæmdastjóri Alþjóðlegra vörusýninga, og
John Legate, forstjóri Industrial Trade Fairs Limited, sem nýlega
var staddur hér á landi vegna undirbúnings alþjóðlegu matvælasýn-
ímrannnnr