Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 42
42
1
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
Evrópubandalagið:
Samkomulag um regl-
ur við opinber útboð
Brussel, frá Krístófer M. Krístinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
A FUNDI þeirra ráðherra sem
fjalla sérstaklega um málefni
EB-markaðarins í vikunni voru
samþykktar tillögur frá fram-
kvæmdastjórn bandalagsins um
fyrirkomulag útboða vegna vöru-
kaupa á vegum opinberra aðila
innan EB.
Samþykktin gerir ráð fyrir að öll
útboð hærri en tíu milljónir íslenskra
Noregur:
V-þýskir
hermenn
velkomnir
Bonn. Reuter.
NORÐMENN hafa gefið í skyn,
að þeir hafi ekkert á móti því,
að Vestur-Þjóðveijar taki þátt í
heræfingum Atlantshafsbanda-
lagsins í Noregi árið 1990 og verð-
ur það þá í fyrsta sinn, sem þý-
skir hermenn koma til landsins
eftir stríð.
Talsmaður norska varnarmála-
ráðuneytisins sagði, að Jörgen Holst,
vamarmálaráðherra Noregs, hefði
rætt þetta mál á fundi með Manfred
Wömer, vestur-þýskum starfsbróður
sínum, en Wömer mun síðar á árinu
taka við af Carrington lávarði sem
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins. Vildi talsmaðurinn
ekki skýra nánar frá viðræðum
þeirra en heimildamenn innan Nato
segja, að Norðmenn setji sig ekki
lengur á móti því, að þýskir hermenn
taki þátt í heræfingum í landinu.
króna verði boðin út innan banda-
lagsins í heild. Ákvæði eru um að
útboð af þessu tagi skuli birta með
góðum fyrirvara í stjómartíðindum
bandalagsins. Sérstaklega verður
fylgst með því að fyrirtækjum verði
ekki mismunað eftir heimalandi.
Ráðherramir höfnuðu hugmyndum
um að stjómvöldum verði heimilt
að umbuna fyrirtækjum sem hefðu
sýnt sérstaka frammistöðu á sviði
jafnréttismála, aðbúnaðar á vinnu-
stað o.s.frv. Samkomulagið undan-
þiggur útboð vegna vamarmála,
vatnsveitna, almenningsflutninga
og íjarskiptaþjónustu. Búist er við
tillögum um þessa þætti frá fram-
kvæmdastjóminni innan skamms,
að sama skapi er von á tillögum um
reglur hvað varðar útboð opinberra
framkvæmda.
Á sama fundi höfnuðu ráðhejr-
amir tillögum sem miða að því að
auðvelda dreifingu sjónvarpsefnis
um Evrópu. Samkvæmt tillögunum
átti nú þegar að taka frá 30% af
öllum útsendingartíma sjónvarps-
stöðva innan EB fyrir „heimatil-
búið" efni og á þremur árum átti
þetta hlutfall að fara upp í 60%.
Jafnframt var gert ráð fyrir því að
5% alls dagskrárgerðarkostnaðar
yrði ráðstafað til óháðra framleið-
enda innan EB með það fyrir augum
að það hlutfall yrði 10% árið 1991.
Lagt var til að auglýsingar yrðu
bannaðar í dagskrá sem væri
skemmri en 45 mínútur og eins að
auglýsingar mættu ekki fara fram
úr tólf mínútum til að hafa skaðleg
áhrif á böm. Framkvæmdastjóm-
inni til skapraunar lýstu Bretar því
yfír á fundinum að þeir hyggðust
styðja þá viðleitni sem fram fer á
vegum Evrópuráðsins til samræm-
ingar á reglum um sjónvarpsútsend-
ingar en að þeim munu standa 21
ríki.
„ Allra veðrahjól “
Reiðhjól eins og það sem hér getur að líta og framleiðendumir kalla
„allraveðrahjól", var kynnt á sérstökum útivistar- og ferðamarkaði,
sem nú stendur yfír í Essen í Vestur-Þýskalandi. Hjól-„hýsið“ má
nota á allar gerðir reiðhjóla. Það vegur átta kíló og kostar 1000 vest-
ur-þýsk mörk (ríflega 23.000 ísl. kr.).
E1 Salvador:
Varað við hnútukasti
stj ómmálamannanna
San Salvador. Reuter.
YFIRMAÐUR heraflans í E1
Salvador hefur varað leiðtoga
stjórnmálaflokkanna við og beðið
þá um að hætta að deila um kosn-
ingaúrslitin. í kosningunum báru
hægrimenn sigurorð af kristileg-
um demókrötum og Jose Napo-
leon Duarte forseta, sem naut
stuðnings Bandaríkjanna.
Adolfo Blandon, yfírmaður hers-
Moskva:
„Tsjemobyl sovéskr-
ar menningarsögu“
400.000 fágætar bækur eyðilögðust í bruna í Leníngrad
Moskvu. Reuter.
KUNNUR, sovéskur fræðimað-
ur sagði á þriðjudag, að eldur-
inn, sem upp kom í einu bóka-
safna sovésku vísindaakade-
míunnar í Leníngrad 15. febrú-
ar sl., hefði eyðilagt hundruð
þúsunda ómetanlegra bóka.
Sagði hann, að kalla mætti elds-
voðann „Tsjernobyl sovéskrar
menningarsögu".
Dmítríj Líkasjov, formaður sov-
éska menningarsjóðsins, sagði í
viðtali við tímáritið Moskvutíð-
indi, að starfsmenn bókasafnsins
hefðu vitandi vits farið á bak við
yfírvöldin og kallað til menn með
jarðýtur til að ýta burt rústunum,
þar á meðal bókum, sem eldurinn
og vatnið höfðu ekki alveg eyði-
lagt.
„Eldsvoðann, sem geisaði í 19
klukkustundir, má með sanni
kalla Tsjemobyl sovéskrar menn-
ingarsögu," sagði Líkasjov og
upplýsti, að í brunanum hefðu
eyðilagst 400.000 bækur, þar af
188.000 erlendar; safíi læknis-
fræðilegra skrifa allt frá 17. öld
hefði tortímst og fjórðungur dag-
blaðasafnsins, sem þótti einstakt
í sinni röð.
Ekki urðu allar bækumar eldin-
um að bráð. Líkasjov sagði, að
allan tímann, sem eldurinn geis-
aði, hefði vatni úr 25 slökkvibflum
verið ausið yfír húsið og hefði það
eyðilagt mjög fágætar rússneskar
4i/l, V
'
Reuter
Barist við brunann í bókasafninu í Leníngrad 15. febrúar sl.
Eldurinn logaði alla nóttina og fram undir miðjan næsta dag.
og austurlenskar bækur og allt
uppsláttarritasafnið. Sagði hann,
að forráðamenn safnsins hefðu
lofað flokknum, borgaryfírvöldum
og blöðunum, að safnið yrði opnað
aftur á mettíma og því hefðu jarð-
ýtur verið notaðar til að hreinsa
rústimar.
„Mig svíður að hugsa til þess,
að einu sinni var Rússland gull-
kísta fágætra, evrópskra bóka en
nú verða séfróðir menn um rúss-
neskar bækur að fara til Hels-
inki,“ sagði Líkasjov og sakaði
yfírvöld um að vanrækja önnur
kunn bókasöfn í landinu. Skoraði
hann ennfremur á Unesco, menn-
ingarmálastofnun Sameinuðu
þjóðanna, að hjálpa til við viðgerð-
ir á bókum, sem skemmdust í
brunanum í Leníngrad, og við
endurbætur á öðrum söfnum.
ins, sagði í fyrradag, að hnútukast-
ið renndi aðeins stoðum undir þá
fullyrðingu vinstrisinnaða skæru-
, liða, að ekkert væri að marka kosn-
ingamar. Heimildamenn innan hers-
ins segja, að herforingjamir séu
orðnir óþolinmóðir vegna tafa við
talningu og ásakana um kosninga-
svindl. Ekki er þó talin mikil hætta
á, að þeir reyni að taka völdin í sínar
hendur.
Arena-bandalagið eða hægri-
menn fengu eins og fyrr segir meira
fylgi en kristilegir demókratar en
vegna tafa við talninguna, sem
meðal annars stöfuðu af skemmdar-
verkum vinstrimanna á raforkukerf-
inu, höfðu hinir síðamefndu uppi
ásakanir um kosningasvik. Alfredo
Cristiani, formaður Arena, segir
aftur, að flokkur sinn hafí unnið 36
sæti af 60 á þingi en sakar kristi-
lega demókrata um að reyna að
breyta úrslitunum og koma í veg
fyrir, að Arena fái hreinan meiri-
hluta.
E1 Salvador hefur fengið rúmlega
45 milljónir dollara frá Bandaríkjun-
um í mánuði hveijum og Banda-
ríkjastjóm dregur enga dul á, að
henni geðjast betur að kristilegum
demókrötum en Arena-bandalagi
hægrimanna. Heiðursforseti þess er
Roberto D’Aubuisson en hann er
talinn bera meginábyrgð á dauða-
sveitunum, sem myrt hafa þúsundir
manna.
Um 10.000 bændur, námsmenn,
verkamenn og fólk, sem flosnað
hefur upp vegna styijaldarinnar í
landinu, gengu í gær um götur San
Salvador og minntust þess, að átta
ár eru liðin síðan Oscar Amulfo
Romero erkibiskup var drepinn fyrir
altari í kirkju sinni í borginni. Du-
arte hefur sakað D’Aubuisson um
að hafa skipað fyrir um morð Rome-
Danmörk:
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
LÖGREGLAN á Borgundarhólmi
og danska ríkislögreglan rann-
saka nú mál, sem varðar ólöglegar
laxveiðar í Norður-Atlantshafi, að
sögn Danska ríkisútvarpsins.
Þrír sjómenn á Borgundarhólmi,
tveir frá Hundested og einn frá Es-
bjerg liggja undir grun um að hafa
veitt lax á ákveðnu svæði á Norður-
Atlantshafí, þar sem bannað var að
stunda þessar veiðar árið 1985 í kjöl-
far alþjóðlegrar ráðstefnu,_ sem hald-
in var í Kaupmannahöfn. Átti bannið
að stuðla að varðveislu og viðgangi
laxastofnsins.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar hefur mestum hluta hins ólög-
lega afla verið landað í höfnum utan
Danmerkur.
Nýtt færeyskt flugfélag:
Fljúga daglega á milli Fær-
eyja og Kaupmannahafnar
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
DANSKA flugfélagið Danair fær
brátt samkeppni á áætlunarleið-
inni milli Kaupmannahafnar og
Færeyja. Hinn 28. mars næst-
komandi hefur færeyska flugfé-
lagið Atlantic Airways, sem
stofnað var nýlega, daglegar
ferðir á þessari áætlunarleið.
Danair er með vélar frá Mærsk-
flugfélaginu, af gerðinni Boeing
fréttaritara Morgunblaðsins.
737-200, í þessu flugi, sem er alla
daga vikunnar og tvisvar á mánu-
dögum. Færeyska félagið ætlar
einnig að fljúga á hveijum degi og
nota til þess vélar af gerðinni Brit-
ish Aerospace BA-146, en þær taka
83 farþega.
Yfír sumarmánuðina ætlar fær-
eyska félagið að fjölga ferðunum í
14 á viku hverri.