Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
21
NORRÆNT TÆKNIÁR1988 / Umsjón Sigurður H. Richter
Samkeppni framhaldsskóla-
nema í tilefni Norræns tækniárs
Eitt af markmiðum Norræns
tækniárs er að efla þekkingu og
skilning ungs fólks á tækni. Ein
leiðin að þessu marki er sam-
keppi sem verið er að hefja um
þessar mundir og að henni stend-
ur Norrænt tækniár ásamt Fé-
lagi raungreinakennara.
Þátttökurétt I keppninni hafa
allir þeir sem stunda nám í
íslenskum framhaldsskólum á
árinu 1988 og eru undir 21 árs
aldri. Framlög mega vera í nafni
einstaklinga eða hópa. Þátttak-
endur halda höfundarrétti hver
á sínu framlagi.
Viðfangsefni samkeppninnar
skiptast í fímm flokka og geta
nemendur valið við hvaða flokk
eða flokka þeir vilja glíma:
1. Gerð myndbands um tækni-
þróun á islensku atvinnusviði
eða um tækni í nýrri atvinnu-
grein.
2. Hönnun líkans af sýningar-
bás með mjmdum, stuttum
upplýsingatextum og e.t.v.
fleiru. Efni sýningarinnar
verði tækniþróun á einhveiju
íslensku atvinnusviði, eða ein-
hver ný atvinnugrein.
3. Uppfinningasamkeppni.
Lýst er eftir nýtilegri upp-
götvun, annaðhvort hugmynd
að nýju tæki eða nýja beitingu
tækni, sem þegar er til. Fram-
lagið þarf ekki nauðsynlega
að fela í sér tilbúið tæki, en
verður að minnsta kosti að
lýsa hugmynd á skýran og
nákvæman hátt. Uppfínning-
in má vera á hvaða sviði sem
er, en sérstaklega er þó bent
á tækni eða tækni sem gerir
fötluðum lífið léttara, eða
tæki eða tækni er eykur ör-
yggi sjómanna.
4. Tölvutækni beitt til stýr-
ingar á einhveiju ótilteknu
ferli. Framlagið feli bæði í sér
tilbúið tæki og stýriforrit.
5. Forritunarverkefni á sviði
gervigreindar, til dæmis í
tölvumálinu PROLOG.
Framlög skulu send til Norr-
æns tækniárs, Hallveigarstíg 1,
101 Reykjavík, sími 91-27577.
Skilafrestur er til 21. nóvember
1988.
Öll framlög sem berast verða
metin af dómnefnd, og verða
þijú bestu framlögin verðlaunuð,
teíjist þau verðlaunahæf.
Verðlaunin verða úttekt á
tæknibúnaði að eigin vali, fýrir
upphæð sem hér segir:
1. verðlaun 75 þúsund krónur
2. verðlaun 50 þúsund krónur
3. verðlaun 50 þúsund krónur
Auk þess fylgja fyrstu verð-
laununum ferð á Nóbelshátíðina
í Svíþjóð í desember 1988, en
þar munu hittast verðlaunahafar
úr svipaðri samkeppni frá hinum
Norðurlöndunum.
Hugsanlega verður efnt til
sýningar á framlögum til keppn-
innar.
Raungreinakennarar eru sérs-
taklega beðnir um að vekja at-
hygli nemenda sinna á þessari
samkeppni.
Opin hús
Það er ekki hægt að segja ann-
að en hugmyndin um Opin hús í
tilefni Norræns tækniárs hafi fall-
ið í góðan jarðveg. Helstu stofnan-
ir og fyrirtæki, sem búa yfír at-
hyglisverðri tækni, hafa verið
fengin til að hafa opið hús einn
sunnudagseftirmiðdag hvert.
Nú þegar hefur fjöldi stofnana
og fyrirtækja opnað hús sín al-
menningi. Aðsókn hefur yfírleitt
verið mjög góð, eða frá nokkrum
hundruðum til nokkurra þúsunda.
Það er greinilegt að það eru marg-
ir er telja það vel til fallið á sunnu-
dagseftirmiðdögum, að fara í
kynnisferð og skoða þá fjölbreyti-
legu tækni, sem í notkun er á
ýmsum sviðum hér á landi.
Síðastliðna 10 sunnudaga hafa
verið opin hús á einum eða fleiri
stöðum, en nú verður stutt hlé
kringum páskahátíðina, því ekki
verða opin hús á pálmasunnudag
eða páskadag. Strax eftir páska
verður þó byijað á ný.
Fyrstu stofnanimar sem þá
opna hús sín eru Iðnskólinn, sem
verður með opið hús sunnudaginn
10. aprfl, ög rafmagnsveitumar,
sem verða með opið hús sunnu-
daginn 17. aprfl.
Ætlunin er að halda áfram með
Opin hús nær óslitið fram í júní.
Síðan verður hlé yfír hásumarið,
en í lok ágúst hefjast Opin hús á
ný.
Það er von aðstandenda tækni-
ársins, að sem flestir notfæri sér
það tækifæri er hér gefst, til að
kynnast stofnunum, fyrirtækjum
og þeirri tækni er þessir aðilar
búa yfír.
Lonica
UBIX
UÓSRITUNARVÉLAR
Eitt verka Gudbjarts Gunnarsson-
ar.
Guðbjartur
Guiuiarsson
sýnir fótó-
grafík
GUÐBJARTUR Gunnarsson
opnar sýningu á myndum unn-
um með blandaðri tækni, fótó-
grafík, í Listasafni ASÍ, Grens-
ásvegi 16, i dag laugardaginn
26. mars kl. 14.00
Guðbjartur lauk kennaraprófí
.1950 og síðar myndmenntakenn-
araprófí í Bandaríkjunum. Hann
stundaði kennslu um árabil og
kynnti sér sjónvarps- og kvik-
myndatækni í Bretlandi og Banda-
ríkjunum, þar sem hann lauk há-
skólaprófi í fjölmiðlafræðum.
Hann hóf störf sem dagskrár-
gerðarmaður hjá Sjónvarpinu,
þegar það tók til starfa og stjóm-
aði þar upptökum á ýmsu fræðslu-
efni. Fyrir tæpu ári voru t.d. end-
urdsýndir þættir um íslenskt mál,
sem hann sá um, og undanfarin
tvö ár hafa af og til birst á skján-
um þættir frá Rafmagnseftirliti
ríkisins, sem hann hefur haft
umsjón með. Guðbjartur starfaði
í Kanada um fjögurra ára skeið
að svipuðum verkefnum.
Guðbjartur hefur löngum feng-
ist við myndgerð í störfum sínum
og frístundum. Hann hefur tekið
þátt í samsýningu með FÍM og
haldið tvær einkasýningar.
Myndimar, sem Guðbjartur
sýnir að þessu sinni, em byggðar
upp á ljósmyndum, þrykktar á
mismunandi litan pappír og hand-
litaðar með pastellitum.
Sýningin verður opin virka daga
kl. 16-20, laugardaga og sunnu-
daga kl. 14-20, svo og skírdag og
annan í páskum. Föstudaginn
langa og páskadag verður opið kl.
15-20. Sýningunni lýkur 10. apríl.
(Úr fréttatilkynnmgu)