Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
73
Minning:
Þórarinn Þórarins
son skólastjóri
Mér brá illa, þegar Ingveldur
Vilborg systurdóttir mín hringdi til
mín sunnudaginn 20. mars og til-
kynnti mér lát bróður síns, Þórarins
Þórarinssonar, sem hafði orðið
bráðkvaddur 17. mars sl.
Hann var sonur Guðnýjar Þórar-
insdóttur frá Kílakóti og Þórarins
Jóhannessonar frá Krossdal, þar
sem þau hjón höfðu áður búið um
langt skeið.
Krossdalur stepdur í miðri sveit
og er hið snotrasta býli. Á sínum
tíma var byggt í Krossdalslandi,
skóli og félagsheimili Keldhverf-
inga, sem er stór og vegleg bygg-
ing. Þá sýndu hjónin í Krossdal þá
rausn að gefa nokkra hektara lands
til byggingarinnar, úr landi sínu.
Þótt aldursmunur sé nokkur á
okkur Þórami frænda mínum eða
27 ár, urðum við fljótt samrýndir
og góðir vinir þegar honum óx vit
og þroski. Sú vinátta hélt svo lengi
sem hann lifði, enda stutt á milli
heimila okkar og samvinna og önn-
ur samskipti margvísleg.
Veiðimaður var hann á unga'aldri
og sérlega fengsæll og heppinn
veiðimaður.
En nú varð breyting á. Hann hóf
nám í Menntaskólanum á Akureyri
og lauk þaðan stúdentsprófi árið
1952, og guðfræðiprófi lauk hann
frá Háskóla íslands árið 1960.
Næstu ár var hann þjónandi prestur
í Suður-Þingeyjarsýslu og stundaði
jafnframt kennslu á ýmsum stöð-
um.
Hann var tvígiftur og var fyrri
kona hans Guðrún, dóttir Þórðar
Eyjólfssonar hæstaréttardómara,
mæt kona og merk og kennari að
mennt. Þau skildu en eignuðust
þrjú böm sem öll eru vel menntuð
og sómafólk. Seinni kona hans er
Rósa Jónsdóttir frá Mýri í Bárðar-
dal, góð kona og mikil húsmóðir.
Böm þeirra urðu tvö, sem stunda
nú bæði nám við Menntaskólann á
Akureyri.
Þórarinn hætti prestskap og var
þá skipaður kennari og skólastjóri
við bama- og unglingaskólann í
Skúlagarði. Var það ekki vonum
fyrr og hafði hugur hans löngum
staðið til kennslustarfa.
Kennsla og skólastjóm fórst hon-
um vel úr hendi og varð hann fljótt
vinsæll af nemendum sínum og
skólastjóm og umsjón öll í besta
lagi og snurðulaus.
Hann hafði óbeit á ströngum
fyrirmælum og valdboðum en laðaði
nemendur sína til starfa og náms
með lagni og skynsamlegum for-
tölum.
Þess vegna undu nemendur sér
vel í skóla hans, vom ánægðir og
glaðir og lögðu sig fram við námið
og allt gekk eins og sjálfkrafa og
fyrirhafnarlaust. Hinu má svo ekki
gleyma, að eiginkona hans, Rósa
Jónsdóttir, hefur staðið við hlið
hans og stutt hann í starfi svo sem
best má verða.
Allir þeir, sem ná háum aldri, fá
að reyna sannleiksgildi þessara
vísuorða Bólu Hjálmars: „Mínir vin-
ir fara fjöld, feigðin þessa heimtar
köld.“ Já, feigðin þessa heimtar
köld. En það er huggun harmi gegn,
að í tímanna rás munum við frænd-
ur og vinir Þórarins frá Skúlagarði
fá að hitta hann á einhveijum helg-
um stað, á feginsstundu fira. Þar
verður fagnaðarfundur og við mun-
um öll gleðjast og þakka liðnar
samverustundir, sem við áttum
margar á þeim liðnu árum.
Og nú vil ég votta öllum ástvinum
Þórarins frænda míns innilega sam-
úð okkar hjón og bama okkar. Við
biðjum Guð að blessa ykkur öll, en
þó einkum eftirlifandi eiginkonu
Þórarins, böm hans öll, aldna móð-
ur hans Guðnýju Þórarinsdóttur,
systkini hans og ekki síst níræða
föðursystur hans, Þórhildi Jóhann-
esdóttur.
Björn Þórarinsson frá Kílakoti
Þórarinn í Skúlagarði er látinn.
Ragnhildur dóttir mín hringdi í mig
og sagði mér þessi ótíðindi, að sá
góði drengur hefði crðið bráðkvadd-
ur á heimleið um Tjömes. Hann
hafði kennt sér meins fyrir hjarta
fyrir áramótin. Og svo féíl dómurinn
svo snöggt og svo skyndilega.
Ég rek ekki æviferil Þórarins
Þórarinssonar, það er af öðrum
gert. Þessi fáu orð eru vinarkveðja.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnSt Þórami og verið þiggjandi
í okkar skiptum. Hann var þeirrar
gerðar, að um leið og manni verður
hugsað til hans stendur hann ljóslif-
andi fyrir hugskotssjónum, rauð-
birkinn og stórskorinn, augun djúp
og röddin. Samræðurnar fóru víða.
Sérstaklega eru mér minnisstæðar
kvöldstundir þegar við ræddum trú-
mál og vandamál hversdagsins. Þá
leyndi sér ekki, að þar talaði
lífsreyndur maður, mikill mann-
þekkjari og mannvinur. Eða við
bmgðum á glens og kunni hann
þá af ýmsu að segja, ekki síst af
sveitungum sínum lífs og liðnum.
Þórarinn var mikill Keldhverfing-
ur og Norður-Þingeyingur og þegar
ég hugsa til hans nú á ég erfitt
með að ímynda mér að við hefðum
kynnst einhvers staðar annars stað-
ar en einmitt þar. Svo vænt þótti
honum um landið, hveija þúfu, og
fólkið sem býr þar . . . Hann þekkti
Litluána eins vel og lófana á sér,
vissi hvar helst væri silungs von.
Og hann sparaði sig ekki við veið-
amar og var sífellt að gæta þess
að félagi hans yrði ekki afskiptur.
En inn á milli skaut hann fróðleiks-
molum eða skemmtilegheitum. Og
síðan áttum við góðar stundir á
heimili þeirra Rósu, hlýju og vina-
legu.
Þórarinn var kennari af lífi og
sál. Það hefur oft komið upp í huga
minn hversu dýrmætt það er fá-
mennu byggðarlagi að með skóla-
stjórn fari hámenntaður maður,
fjölfróður og drenglyndur, sem snýr
aftur til heimahaganna og vinnur
þar vel með sínu fólki. Þeirri festu
fylgir ótrúlega mikið öryggi fyrir
bömin, en það sjáum við alltof víða
að ör kennaraskipti valda losi í
skólastarfínu með þeim afleiðingum
sem slíku fylgir.
Þórarinn var mikill fjölskyldu-
maður og undi sér best með sínum
og var það gagnkvæmt.
Þungur harmur er nú kveðinn
að Rósu og bömunum, aldraðri
móður og ástvinum öllum. Þórarinn
fór of snemma. En það er huggun
harmi gegn að þar fór góður dreng-
ur sem hann var og söknuðurinn
er sárastur hjá þeím sem þekktu
hann best. Megi hann í friði hvíla,
þess biðjum við hjón og fjölskylda
okkar, megi guð blessa minningu
hans og þá, sem nú eiga sárast um
að binda.
Halldór Blöndal
t
Eiginmaður minn,
ÞORBJÖRN SIGURGEIRSSON,
prófessor,
lést í Landspítalanum að morgni fimmtudagsins 24. mars.
Fyrir hönd móður hins látna, sona minna og tengdadætra. •
Þórdís Aðalbjörg Þorvarðardóttir.
t
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Kleppsvegi 68,
fer fram mánudaginn 28. mars kl. 13.30 í Fossvogskirkju.
Bára Guðmundsdóttir,
Alda Guðmundsdóttir,
Jón Ægir Guðmundsson,
Guðjón Guðmundsson,
Sigurður Leifsson,
Svanhlldur Erlingsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
t
Kveðjuathöfn um móður okkar og fósturmóður,
MARGRÉTI GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Á í Skarðshreppi,
Dalasýslu,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. mars kl. 15.00.
Jarðsett verður að Skarði á Skarðsströnd þriöjudaginn 29: mars
kl. 1 5.00. Bílferð veröur frá BSÍ þriðjudagsmorgun kl. 8.00.
Jón Bjarnason,
Ástvaldur Bjarnason,
Trausti Bjarnason,
Svanhildur Valdimarsdóttir
og fjölskyldur.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð, hjálp og vináttu við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÞÓRARINS HAFBERG,
Réttarholtsvegi 77,
Reykjavfk.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Ó. Hafberg,
Ingibjörg Þ. Hafberg, Leifur Núpdal Karlsson,
Ólafur Þ. Hafberg, Þóra Júlfusdóttir,
Engilbert Þ. Hafberg, Auður S. Einarsdóttir,
Sigurður Þ. Hafberg, Auður Magnúsdóttir
og barnabörn.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Kópavogur - spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi verður í Sjálfstæðishús-
inu, Hamraborg 1, 3. hæð, þriöjudaginn 29. mars kl. 21.00 stundvis-
lega. Mætum öll.
Stjórnin.
Selfoss
Fiskeldi á Suðurlandi
Kjördæmisráð Sjálf-
stæðisflokksins
boöar til opinnar
ráöstefnu um fisk-
eldismöguleika á
Suðurlandi. Fundur-
inn veröur í Hótel
Selfossi þriðjudags-
kvöldiö 29. mars nk.
kl. 20.30.
Framsögumenn: I
Árni Mathiesen,
dýralæknir, Þorvaldur Garðarsson, framkvæmdastjóri, Jón Hjartars-
son, skólastjóri Kirkjubæjarklaustri, Gisli Hendriksson, Hallkelshólum
og Aðalbjörn Kjartansson, Hvolsvelli.
Að loknum framsöguræðum verða almennar umræöur.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins i Suðurlandskjördæmi.
50 ára afmæli
Málfundafélagsins Óðins
Málfundafólagið Óðinn verður 50 ára þriöjudaginn 29. mars nk.
Óðinn mun halda afmælishátiö í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á 1. hæð.
Við bjóðum Óðinsfélögum og sjálfstæðisfólki i kaffi og kökuhlaðborð
um kvöldið kl. 20.00 í tilefni dagsins.
Stjórnin.
Flúðir:
Sóknarmöguleikar í landbúnaði -
fullvinnsla i héraði - .
styrkari staða til sveita
Kjördæmisráð Sjálf-
stæðisflokksins i
Suðurlandskjör-
dæmi boðar til al-
menns fundar um
möguleika i land-
búnaði, fullvinnslu
og eflingu byggðar í
sveitum. Fundurinn
veröur í Félags-
heimilinu á Flúðum
mánudagskvöldið
28. mars nk. kl.
21.00.
Framsögumenn:
Kolbeinn Ingi Kristinsson, framkvæmdastjóri.
Birgir Guðmundsson, mjólkurbússtjóri.
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna.
Sigmar B. Hauksson.
Jónas Þór Jónasson, kjötiönaöarmaður.
Eggert Haukdal, alþingismaður.
Að loknum framsöguræöum verða almennar umræður.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Suðuriandi.
Ahugafólk um skattamál
Boöað er til fundar
í skattanefnd Sjálf-
stæðisflokksins
þriðjudaginn 29.
marskl. 17.15 íVal-
höll. Þeir, sem hafa
skráð hafa sig til
málefnastarfs í
skattanefnd, eru
sérstaklega boðaðir
svo og annað
áhugafólk. Um-
ræðuefni fundarins verður: Skattbreytingarnar 1987 og skattamálin
1988. Málshefjendur verða formaöur skattanefndar Sigurður B. Stef-
ánsson, hagfræðingur, og fulltrúi þingflokks i nefndinni Geir H. Ha-
arde, alþingismaöur.
Stjórn skattanefndar.
Frá húsnæðismálanefnd
Sjálfstæðisflokksins
Hver verður framtíðar-
skipan húsnæðismála?
Fundur verður hald-
inn mánudaginn 28.
mars nk. kl. 17.00 i
Valhöll.
Rætt verður um
endurskoðun hús-
næðislaganna,
kaupleigufrumvarp-
ið o.fl.
Allt áhugafólk vel-
komið.
Geir H. Haarde, alþingismaður.
Maria E. Ingvadóttir, formaður nefndarinnar.