Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
Háskólakórinn frumflytur Dísneyrímur:
VÍSIR AÐ ÓPERU
EÐA ALLISTAVERK?
Guðmundur Stefánsson;
„Rímurnar hafa skapast á mjög
stuttum tíma.“
Morgunblaðið/Sverrir
Ami Harðarson, semur og
stjórnar flutningi Disneyríma.
í Háskólakórnum eru menn allt í senn; söngvarar, leikarar og leiktjöld.
HÁSKÓLAKÓRINN frumflutti
í gær í Tjarnarbíói Disneyrímur
Þórarins Eldjáms við tónlist
eftir Áma Harðarson, stjóm-
anda kórsins. Rímurnar em
fluttar í heild sinni en auk kórs-
ins kemur fram Halldór Bjöms-
son leikari. Aðeins em fimm
sýningar áætlaðar. Þeim sem
að uppfærslunni standa hefur
reynst örðugt að staðsetja hana
þar sem kórfélagar em allt í
senn; söngvarar, leikarar og
leiktjöld. I uppfærslunni em í
raun aðeins tveir leikarar; kór-
inn og Halldór Björasson.
„Kannski er þetta allistaverk.
Uppfærslan minnir mig oft á
griskan harmleik, einn leikari
leikur og segir frá; kórinn teng-
ir atriðin síðan saman. Svo er
þetta líka visir að ópem,“ sagði
leikstjóri sýningarinnar, Kári
Halldór.
Kári sagði einfaldleikann ráða
ríkjum í sýningunni. „Fyrst og
fremst eru það aðstæðumar sem
gera það að verkum. Ég valdi þá
leið sem er viðráðanlegust.
Þessi sýning er fyrst og fremst
höfundarverk Áma. Reynsla mín
sem leikhússmanns kemur síðan
til góða við útfærsluna. Hér á það
sama við og í óperunni, að leik-
stjóri og tónlistarstjóri þurfa að
vinna mjög vel saman. í rímunum
eru einstök einsöngs og tvísöngsat-
riði en dramatísk spenna er ekki
til staðar hér eins og í leikhúsi.
Það er mjög spennandi að vinna
með svona stóra heild sem syngur
vel og fá fólkið til að koma fram
á annan hátt en það er vant.
í nóvember var
ekkerttil
37 kórfélagar taka þátt í upp
færslunni. Tveir félaganna, Elísa-
bet Vala Guðmundsdóttir á ijórða
ári í kómum og Guðmundur Stef-
ánsson, sem byijaði í kómum í
haust, sögðu sýninguna líklega þá
viðamestu sem kórinn hefði sett
upp en hún er 2 tímar í flutningi.
„Sýningin hefur skapast á mjög
stuttum tíma, í nóvember var ekk-
ert til,“ sagði Guðmundur. Fyrstu
lögin sögðust þau hafa heyrt í lok
síðasta árs og síðan þá hefði stjóm-
andinn verið að smáreyta þau í
kórinn. „Síðustu rímumar heyrð-
um við fyrir um 2 vikum og síðan
hafa verið strangar æfíngar því
við vinnum allt sjálf í kringurn
þessa sýningu."
Ekki sagðist Elísabet hafa leikið
áður en Guðmundur sagðist lítil-
lega hafa komið nálægt leiklist.
Þau sögðu óneitanlega erfitt að
syngja rímumar. „Tónlistin er
kraftmikil og við þurfum að syngja
alveg út, í nærri tvo tíma.“
Kórinn hefur tjármagnað upp-
færsluna með rækju- og blómasölu
auk þess sem félagar söfnuðu
styrktarlínum í sýningarskrá og
fengu styrk frá Háskólaráði. Kór-
inn fer í tónleikaferð á ári hverju
en að þessu sinni hefst hún og
lýkur í Tjamarbíói. „Það er góður
áfangastaður," sagði Elísabet.
Elísabet Vala Guðmundsdóttir
segir Tjarnarbíó góðan áfanga-
stað.
Þau sögðust ekki' hafa lesið Dis-
neyrímur áður en sögðu þær mjög
skemmtilegar og þá tónlistina ekki
síður.
Tilviljun að Disneyrímur
urðu fyrir valinu
Ámi Harðarson hefur stjómað
kómum á fimmta ár en hann tók
við af honum af Hjálmari Ragnars-
syni. Ástæðu þess að Disneyrímur
urðu fyrir valinu sagði Ámi helst
vera tilviljun. „Ég var að leita að
efni sem mjmdi passa vel í ein-
hvers konar „músikleikhús". Mér
finnst dálítið spennandi að láta
kórinn gegna öðru hlutverki en
eingöngu að syngja á sviði.
Rímumar eru mjög skemmtilegt
verk og gefa möguleika á að
byggja á þjóðlegum grunni, vera
hefbundinn í tónlistinni og daðra
um leið við aðrar tónlistarstefnur.“
Kári Halldór leikstjóri allista-
verksins.
Ami segist stórhuga og ekki hafí
annað komið til greina én að setja
þær upp í heild sinni. Rímumar
eru 6 og á milli 50 og 60 vísur í
hverri.
Hann stundaði nám í tónsmíðum
í London og hefur samið jafnhliða
kórstarfinu. Háskólakórinn hefur
flutt nokkur minni verk eftir hann.
„Það er mjög gaman að stjóma
eigin tónverki og sjá það verða
til. Því það tekur heilmiklum breyt-
ingum á meðan á æfingum stend-
ur. Krafturinn og áhuginn í kórfé-
lögum er mikill og gefur tónlist-
inni líf. Ég hef verið að semja lög-
in á milli þess sem ég hef verið
að reyta þær í kórinn. Þær eru því
glænýjar. En það að stjóma þeim
sjálfur gefur mér möguleika á að
prófa hugmyndir mínar á kómum,
sleppa þeim ef þær eru einskis
nýtar og fara nýjar leiðir."
Reykhólar:
Dvalarheimilið Barma-
hlíð tekið til starfa
Hið nýja dvalarheimili á Reykhólum sem nú hefur tekið til starfa.
Reykhólum.
NÝTT dvalarheimili aldraðra á
Reykhólum, sem hlotið hefur
nafnið Barmahlíð, var vígt
sunnudaginn 13. mars s.l.
Hinn 16. júní 1979 kom Sigur-
bjöm Sveinsson heilsugæslulæknir
frá Búðardal hingað að Reykhólum
og hélt hér fund um öldrunarmál,
en hann er mikill áhugamaður um
það, að þegar Elli kerling fer að
taka fólk fangbrögðum verði glíman
því sem léttust. Á þessum fundi var
kosin undirbúningsnefnd og skip-
uðu þá nefnd sóknarpesturinn okk-
ar, Valdimar Hreiðarsson, Reyk-
hólum, Eiríkur Ásmundsson, kaup-
félagsstjóri, Króksijarðamesi, Ingi-
björg Kristjánsdóttir, hjúkruna-
rfræðingur, Garpsdal, og Sveinn
Guðmundsson, Miðhúsum.
Valdimar tók strax við forustu
og stóð fyrir könnun á þörfum á
húsnæði fyrir aldraða hér í byggð
og kom þá á daginn að þörfin var
meiri en ætlað hafði verið.
Nú var hafist handa um að stofna
sjálfseignarfélag um byggingu og
rekstur á dvalarheimili á Reyk-
hólum og stóðu að þeirri stofnun
flest félög hér í byggð. Formaður
var kosinn Valdimar Hreiðarsson
sóknarprestur.
Arkitekt að húsinu var Bjami
Óskarsson, Laufási, Borgamesi, og
var grunnur steypur haustið 1983
og var grunnflötur hússins 850 fer-
metrar.
Fólk gaf mikla vinnu og má geta
þess að öll ýtuvinna og malarakstur
svo og öll steypuvinna var gefin.
Verkið var unnið undir stjóm Sigur-
vins Ólafssonar frá Stað á Reykja-
nesi.
Loftorka í Borgamesi byggði svo
húsið úr steypueiningum, en það
er ein hæð og ris og grunnfiötur
alls um 1400 fermetrar og var það
byggt 1984.
Nú kemur tími sem byggingin
stöðvast vegna fjárskorts og sókn-
arprestur flyst með rjölskyldu sinni
úr byggðarlaginu. Ný stjóm er svo
kosin 1986 og tekur hún upp þráð-
inn sem frá var horfíð.
Stjómina skipa nú: María Björk
Reynisdóttir hjúkrunarfræðingur
formaður og er hún jafnframt for-
stöðumaður heimilisins, Bragi
Benediktsson sóknarprestur Reyk-
hólum ritari, Ingibjörg Kristjáns-
dóttir hjúkrunarfræðingur Garpsdal
gjaldkeri. Aðrir í stjóm em: Halldór
Kristjánsson bóndi Skerðingsstöð-
um, Þórunn Játvarðardóttir starfs-
kona Reykhólum, Grímur Amórs-
son bóndi Tindum, Indiana Ólafs-
dóttir starfskona við mötuneyti
Reykhólaskóla og Guðbjörg Karls-
dóttir, húsfreyja Gautsdal.
Innanhússarkitekt að Barmahlíð
er Jón ólafsson kennari Reykhóla-
skóla. Málaavinnu annaðist Friðrik
Runólfsson málarameistari
Hólmavík. Raflagnir hefur annast
Sigurður Lárusson rafvirkjameist-
ari Tjaldanesi í Saurbæ í Dalasýslu.
Allar pípulagnir hefur annast Lárus
Magnússon pípulagningameistari
Tjaldnesi í Saurbæ. Um tréverk
hefur annast Rejmir Bergsveinsson
frá Gufudal.
Miklar og góðar gjafir hafa bor-
ist heimilinu og ómæld sjálfboða-
vinna lögð fram frá upphafí. Til
dæmis má geta þess að enginn í
stjóm dvalarheimilisins hefur þegið
krónu í þóknun fyrir störf sín. Um
allar gjafímar sem Dvalarheimilinu
Barmahlíð hafa borist verður ekki
talað hér, en stjómin biður fyrir
þakklæti til allra velunnara Barma-
hlíðar sem hér með er komið á fram-
færi.
Nú er Dvalarheimilið tilbúið fyrir
8 vistmenn og ein íbúðin hefur ver-
ið tekin fyrir eldhús og borðstofu
ðg önnur fyrir setustofu og vinnu-
aðstöðu.
Fyrstu vistmennimir fluttu inn
föstudagskvöldið 11. mars og em
það Játvarður Jökull Júlíusson rit-
höfundur Miðjanesi og Herdís Zak-
aríasdóttir, fyrrv. húsfreyja frá
Djúpadal f Gufudalssveit.
Þó hér sé stómm áfanga náð er
mikið verk enn óunnið, en það verð-
ur að bíða betri tíma.
Hér á Reykhólum fer að fjölga
fólki sem þarf á læknishjálp að
halda, en hana þarf að sælq'a til
Búðardals. Þess vegna er meðal
annars nauðsynlegt að það sé eitt
af forgangsverkefnum sem þing-
menn verða að vinna að og er það
samdóma álit allra að koma þurfi
á læknisþjónustu á Reykhólum,
bæði þeirra sem þjónustunnar þurfa
að njóta og þeirra sem þjónustuna
veita, það er læknanna í Búðardal.
Að lokinni guðsþjónustu í Reyk-
hólakirkju sunnudaginn 13. mars
gengu kirkjugestir úr kirkju að
Dvalarheimilinu Barmahlíð og þar
vígði sóknarprestur okkar, Bragi
Benediktsson Reykhólum, heimilið
og sfðan bauð stjómin öllum gestum
að þiggja veitingar.
— Sveinn