Morgunblaðið - 26.03.1988, Side 1

Morgunblaðið - 26.03.1988, Side 1
96 SIÐUR MEÐ FERÐABLAÐI STOFNAÐ 1913 72. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Forsetakosning- arnar í Frakklandi: Mitterr- and hefur mest fylgi París, Reuter. FRANCOIS Mitterrand, forseti Frakklands, nýtur mesta fylgis frambjóðenda í forsetakosning- um sem fram fara þann 24. apríl. Þetta kemur fram í skoð- anakönnun sem Louis Harris- stofnunin gerði í vikunni. 38% aðspurðra sögðu ætla að kjósa hinn 71 árs gamla forseta í fyrstu umferð. Jacques Chirac for- sætisráðherra nýtur fylgis 21,5% kjósenda. Fylgi Raymonds Barres, fyrrum forsætisráðherra, hefur verið á hraðri niðurleið og var hon- um spáð 18% fylgi í skoðanakönn- uninni. Áður voru menn sammála um að Barre væri líklegur til að velta Mitterrand úr sessi. Stjóm- málaskýrendur segja að Barre hafi orðið að lúta í lægra haldi fyrir líflegri kosningabaráttu Chiracs og hæfíleikum Mitterrands til að höfða til miðjumanna meðal kjós- enda. Sumir ganga svo langt að segja að Chirac og Mitterrand séu famir að „beijast yfír jarðneskum leifum Barres". Öllum skoðanakönnunum ber saman um að Mitterand muni leggja hvom hinna sem er í ann- arri umferð kosninganna sem fram fer þann 8. maí ef enginn fær yfír 50% atkvæða í fyrri umferðinni. Stuðningsmenn Mitterrands beij- ast nú undir kjörorðinu „Kjósum forsetann til forseta". Þrátt fyrir aldurinn segist Mitt- errand vera við hestaheilsu. í við- tali í gær sagðist hann þó vera fylgjandi því að kjörtímabilið yrði stytt úr sjö ámm í fímm. Sjá grein um frönsku forseta- kosningarnar á miðopnu. Tékkóslóvakía: Fjölmenn mót- mæli kaþólikka Rratisla vn Rputer Bratislava, Reuter. Óeirðalögregla í borginni Brat- islava í Tékkóslóvakíu leysti í gær upp friðsamleg mótmæli kaþó- likka. Mörg þúsund manns kröfð- ust aukins trúfrelsis og voru þetta fjölmennustu mótmæli í landinu í áraraðir. Yfírvöld höfðu bannað mótmælin en skipuleggjendur þeirra virtu orð stjómvalda að vettugi. Eftir að margir höfðu kveikt á kertum og hafíð sálmasöng fyrir framan Þjóð- leikhús Bratislava beitti lögregla vatnsslöngum gegn fólkinu. Þegar ljóst var að það hefði ekki áhrif var sprautað úr kraftmiklum vatns- dælum á mannfjöldann og vopnuð lögregla ruddi torgið fyrir framan leikhúsið með hjálp sérþjálfaðra hunda. Að sögn vitna voru nokkrir handteknir. Fyrr um daginn hafði útvarpsstöð ríkisins útvarpað áskorun til almenn- ings um að taka ekki þátt í mótmæl- unum og var hún sögð vera komin frá kaþólsku kirkjunni. Talsmenn kirkjunnar neita því að hafa gefíð út slíka áskorun. Kaþólska kirkjan í Tékkóslóvakíu hefur í vaxandi mæli krafist aukins trúfrelsis í landinu. Frantisek Tom- asek kardináli hefur hvatt lands- menn til að skrifa undir áskorun til stjómvalda um aukna trúarlega menntun í skólum landsins og um rétt til þess að gagnrýna marx- lenínismann.' Að sögn kirkjunnar manna hafa a.m.k. 300.000 manns skrifað undir áskomnina. Reuter Palestínumaður slöngvar steinvölu í átt til ísraelskra hermanna í bænum Hebron á vesturbakka Jórdanár. Tveir Palestínumenn féllu í átökum við ísraelsher i gær. + Israel: Blóðug átök á her- numdu svæðunum Ramallah á vesturbakkanum, Washington, ÍSRAELSKIR hermenn felldu tvo Palestínumenn, særðu 26 og handtóku 80 manns í hörð- um átökum nærri bænum Hebron á vesturbakka Jórdan- ár í gær. Hinir látnu, sem voru um tvítugt, féllu þegar her- menn skutu á hundruð Pal- estínumanna sem vörpuðu Noregur: Algert hrun í þorsk- veiðunum við Lófót Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara HEITA má, að þorskveiðarnar við Lófót hafi brugðist algjör- lega og er það alvarlegt áfall fyrir norska bátaflotann. Fram að þessu hafa aðeins veiðst 4.500 tonn en í fyrra var aflinn 18.000 tonn. Enn lifa að vísu fimm vikur af vertíðinni í Lófót en Asbjörn Rasch, ráðuneytisstjóri í sjávar- útvegsráðuneytinu, segir, að ástandið sé „mjög alvarlegt" og í Lófót er almennt talað um al- gert hrun í veiðunum. Til þessa hefur þorskveiðin við Lófót aldrei verið minni en 1986. Þá var hún 14.000 tonn en augljóst er, að aflinn verður miklu minni nú. í blaðinu Dagens Næringsliv sagði, að til að bæta gráu ofan Morgunblaðsins. á svart fengist nú helmingi minna fyrir fiskinn en í fyrra. Þá var heildarverðmæti vertíðaraflans í Lófót 276 milljónir nkr., rúmlega 1,7 milljarðar ísl. kr., en fram að þessu hafa aðeins fengist fyr- ir hann 40 millj. nkr., 247 millj. ísl. Hlutur sjómannanna 2.200 er heldur rýr eða aðeins 20.000 nkr., 124.000 ísl., til jafnaðar það, sem af er vertíðinni. Var mörg útgerðin, einkum í Norður- Noregi, illa stödd fyrir en nú tek- ur steininn úr. Sem dæmi um ástandið má nefna, að í Statens Fiskarbank nema aðeins vextir af skuldum, sem gjaldféllu í fyrra, 140 millj, nkr., 864 milljón- um ísl. kr. Reuter. steinum að þeim. Að minnsta kosti 107 manns hafa iátist í óeirðunum síðan þær hófust þann 9. desember. Samkvæmt skoðanakönnun dagblaðs í Israel sem gerð var fyrr í vik- unni eru 72% ísraela fylgjandi harðari aðgerðum gegn upp- þotum Palestínumanna á her- numdu svæðunum. Einungis 6% aðspurðra fannst viðbrögð hersins of harkaleg og afgang- urinn var sáttur við núverandi stefnu. í sömu skoðanakönnun kemur fram að meirihluti ísraela styður friðaráætlun Bandaríkjamanna um hvemig koma megi á friði í Mið-Austurlöndum. í dag hittir George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tvo Bandaríkja- menn að máli, sem eru að sögn utanríkisráðuneytisins nátengdir palestínskum stjómmálaöflum. Israelar líta á mennina, sem heita Edward Said og Ibrahim Abu Lughod, sem félaga í Þjóðarráði Palestínu, „útlagaþingi“ Pal- estínumanna, sem er nátengt Frelsissamtökum Palestínu, PLO. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, sagðist í gær hafa þungar áhyggjur af fundi Shultz með mönnunum tveimur. Hann vísaði til þess að Bandaríkjastjóm hét því árið 1975 að ræða ekki við fulltrúa PLO nema samtökin við- urkenndu Ísraelsríki, skrifuðu undir ályktanir Öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna númer 242 og 338 og létu af hryðjuverkum. í gær lauk fímm daga ráðstefnu ríkja múhameðstrúarmanna í Amman í Jórdaníu. Niðurstaðan var einróma stuðningur við mót- mæli Palestínumanna á hemumdu svæðunum. í lokaályktun fundar- ins er heitið stuðningi við „upp- reisn palestínsku þjóðarinnar uns óvinurinn, ísrael, er farinn frá landi Palestínumanna". Stjórnar- kreppa í Færeyjum Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Færeyj- um. KOSNINGAR eru á næsta leití í Færeyjum, eftir að upp úr samstarfi flokkanna, sem myndað hafa landstjómina, slitnaði í fyrrinótt. Það var ágreiningur um frumvörp til jafnréttislaga og um staðfest- ingu greinar um kynþáttamis- munun i dönsku hegningarlög- unum sem leiddi til stjórnar- slita af hálfu Kristilega þjóð- arflokksins. Atli Dam, lögmaður, sagði í gær að ekki væri búið að ákveða kjördag en þó yrði örugglega kosið fyrir 8. nóvember, en þá líkur yfírstandandi kjörtímabili lögþingsins. Á fundi landstjómarinnar í fyrrakvöld höfnuðu hinir stjóm- arflokkamir kröfu Kristilega þjóðarflokksins um að frumvörp- in tvö, sem lögð höfðu verið fram í lögþinginu, yrðu dregin til baka. Eftir fundinn rituðu leiðtogar flokksins bréf til Atla Dams og sögðust ekki lengur bundnir af stjómarsáttmálanum. Lestrekstá skólabíl Reuter Lest ók á skólabíl í Katalóníu á Spáni í gær með þeim afleiðing- um að 15 létu lífið þar af 12 ung börn. Orsök slyssins var að hlið við brautarteina stóð á sér og lokaði ekki veginum yfir þá eins og venjulega þegar lest fer hjá. Börnin voru úr barnaskóla í nágrenninu og voru á leið í skoðunarferð er slysið varð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.