Morgunblaðið - 26.03.1988, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 26.03.1988, Qupperneq 12
12___________________________ Jafnrétti milli landshluta: MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 Engin nauðsyn á sam- einingu sveitarfélaga Selfossi. „ÞAÐ MÁ ekki vera meginatriði Brynleifur gat þess að Jöfnunar- að sameina þurfi sveitarfélög til sjóður sveitarfélaga hefði verkað til þess að efla vald á landsbyggð- inni,“ sagði Hlöðver Þ. Hlöðvers- son bóndi og formaður Samtaka um jafnrétti milli landshluta á fundi Suðurlandsdeildar samtak- anna á Selfbssi. Hlöðver sagði þingmenn gera sér æ betri grein fyrir ólgu á lands- byggðinni. Þetta sagði hann koma fram í viðtölum hans við þingmenn. Hann minnti á að í sveitarfélögum úti á landi eru verðmæti úr sjó margfalt meiri á mann en er í Reykjavík. Aðrir sem framsögu höfðu á fundinum voru Brynleifur H. Steingrímsson forseti bæjarstjómar Selfoss, Magnús Finnbogason odd- viti, A-Landeyjum og Sigurður Helgason sýslumaður. I máli þeirra ailra kom fram að þeir töldu nauð- synlegt að efla sveitarfélögin. §ármagnsflutnings á höfuðborgar- svæðið og að forsvarsmenn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hefðu varið hagsmuni Reykjavíkur á kostnað landsbyggðarinnar. Hann sagði að rætt yrði um stofnun sér- stakra samtaka utan höfuðborgar- innar á aðalfundi Samtaka sunn- lenskra sveitarfélaga í apríl. Magnús Finnbogason oddviti sagði litla samstillta einingu geta gert meira en stóra ósamstillta ein- ingu og sagði engan ávinning að stækkun sveitarfélaga. Sigurður Helgason sýslumaður sagði nauðsynlegt að koma á fót lýðræðislega kjömum héraðsþing- um með sjálfstæðar tekjur. Slíkt hefði verið gert í Danmörku 1970 og 1976 í Noregi. Við þetta fengu ömtin og fylkin stóraukin verkefni. Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hlöðver Þ. Hlöðversson formaður í ræðustól, Gylfi Guðmundsson fundarstjóri, Sighvatur Eiríksson fundarritari, Brynleifur H. Steingr- ímsson og Sigurður Helgason sýslumaður. Morgunblaðið/S verrir Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, og Páll P. Pálsson, hljómsveitarstjóri, að nutningi píanó- konsertsins loknum. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Tönlist Jón Ásgeirsson Efnisskrá: Þorkell Sigurbjömsson, Ríma W.A. Mozart, Píanókonsert K.491 D.Shostakovitsj, Sinfónía nr. 1, op. 10 Einleikari: Anna Guðný Guð- mundsdóttir Stjómandi: Páll Pálsson Síðustu tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands fyrir páska voru ágætlega vel lukkaðir. Þeir hófust á ellefu ára gömlu verki eftir Þorkel Sigurbjömsson, sem hann nefnir Rímu ag að nokkru er byggt á tónhugmyndum sóttum í íslensk rímnalög. Hér er ekki um þjóðlegt verk að ræða, heldur, sé notuð smá líking, verk, sem eru eins og það sé sprottið af góðlátlegri hæðni eða jafnvel vor- kunnsemi, vegna þess hve þjóð- hátíðir séu hlægilegar. Þrátt fyrir alvörulaust yfirbragð er Ríma áheyrilegt verk. Anna Guðný Guðmundsdóttir er góður píanóleikari og á að baki margar góðar upptroðslur en það mun vera í fyrsta sinn sem hún kemur fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit íslands, það undirritaður man best. C-Moll píanókonsertinn, K491, má leika á miklum hraða og með krafti en hér var öllu stillt í hóf. Þrátt fyr- ir það var mikil reisn yfir leik Önnu og naut sín vel skýr og hrynfastur leikur hennar. Það væri sannarlega vel ráðið að fá Önnu Guðnýju til að leika fleiri af konsertum Mozarts, því frískur leikur hennar á einkar vel við „skáld lífsgleðinnar". Síðasta verkið á efnisskránni, „sú fyrsta" eftir Shostakovitsj, er glæsilegt verk og var ágætlega leikið undir stjóm Páls P. Pálsson- ar. í þessu verki getur að heyra margt af því sem tónskáldið náði að útfæra svo meistaralega í seinni verkum sínum, þó „sú fyrsta" sé samt talin með bestu verkum er Shostakovitsj samdi. UMBÚÐALAUST Létt strik og kímni í Galleríi Gangskör sýnir Lísbet Sveinsdóttir 30 litlar teikningar og stendur sýningin fram til 10. apríl. Lisbet er annars meira þekkt fyrir glerverk sín, en hún vinnur iðulega í margs konar efni og býr jafnvel til pappír og em þann- ig nokkrar myndanna á sýning- unni unnar á pappír gerðan af listakonunni sjálfri. Það er mikið líf og græskulaus kímni í þessum myndum Lísbet- ar, en þó virka þær meira sem myndlýsingar flestar hveijar en sem sjálfstæð verk og kalla þann- ig eiginlega á texta sér til full- tingis. Þetta em létt og lifandi strik, sem segja manni sitthvað af vettvangi lífsins og á stundum með ástþmngnu ívafí, en ekki á þann hátt að það hneyksli nokk- um heilbrigðan mann eða konu. Og að sjálfsögðu kemur fram sitthvað, sem maður kannast við úr nýlistum nútímans og sést hefur á íslenzkum listavettvangi t.d. í verkum Helga Friðjónsson- ar. En Lísbet á sér þó persónuleg- an streng sem víða bregður fyrir og hún fær vonandi tækifæri til að rækta enn betur í framtíð- inni. í þessum myndum er nefni- lega heilmikið af persónugerð hennar eins og hún kemur fyrir og því óþarfi fyrir hana að leita í mal annarra. Þetta em tilgerðarlaus og létt verk og ákaflega notaleg í við- kynningu. Lísbet Sveinsdóttir TEXTILVERK Myndllst Bragi Ásgeirsson í FÍM-salnum á homi Garða- strætis og Ránargötu sýnir Hall- dóra Thoroddsen 8 textílverk til 3. apríl. Verkin em unnin í blandaðri tækni og em mjög ólík innbyrðis og þó kennir maður vinnubrögð sömu persónunnar á bak við þau. Svona finnst mér þetta eiga að vera, að hvert viðfangsefni leysi úr læðingi nýja krafta, en séu ekki seríuafkvæmi, til þess að þau virki sem samstæðust hveiju sinni. Það em átök í þessum mynd- verkum Halldóm, en vel að merkja hljóðlát átök leitandi listakonu. Hún er að því leyti algjör and- stæða stallsystra sinna Sigrúnar og Lísbetar og fyrir vikið sennilega ekki eins spennandi við fyrstu kynni, en það er eins víst að mynd- imar leyna á sér. Þessi vinnubrögð era trúlega ekki heldur að öllu leyti í takt við hraða nútímans, en eiga fullkom- lega sama rétt á sér auk þess að vera mjög traustvekjandi. En vinnubrögð Halldóm sýna einnig, að hún mætti að ósekju auka við nám sitt í frjálsum lista- sköla erlendis, losa um og þróa hugmyndir og njóta um leið hinnar fullkomnustu vinnuaðstöðu. Hún er nefnilega að velta svo mörgu fyrir sér, sem þarf tíma og næði til að vinna úr, og þó nær hún sannfærandi árangri í ýmsum verkum svo sem „Svörtu götin" (2) og „Stigi" (3). Halldóra Thoroddsen við eitt verka sinna í FÍM-salnum. Þær em duglegar og framtaks- samar ungu konumar, sem em að hasla sér völl á myndlistarsviði um þessar mundir. í gamla daga létu ungir sér nægja að halda sýningar á þriggja til fimm ára fresti og þótti fyrra fallið til nokkurra af- reka, en nú em árlegar sýningar ungs listafólks næsta algengar og sumir láta það ekki einu sinni nægja. Gamla spakmælið, mnnið frá W. Somerseth Maugham, kemur þannig oft upp í hugann, en hann sagði á hátindi ferils síns: „Þegar ég var ungur, vildi ég helst skrifa bækur mínar beint á setningarvél- ina, en varð að láta mér nægja rit- vél, núna nota ég blýant...“ Maugham hefði vafalítið orði án- ægður, hefði hann haft tölvu til handargagns þegar hann var ung- ur, en þá er heldur ekki víst að heimurinn hefði eignast hinn eina, sanna og sérstæða rithöfund W. Somerseth Maugham. í dag skrifa ungir rithöfundar á tölvur, sem eykur afköstin til allra muna svo og gæði handrita, og ungum málurum liggur mörgum hveijum svo á, að varla hafa dyr skólastofnananna lokað, en þeir em famir að sýna út um allar trissur. Kannski er það af hinu góða að hrista upp í hugmyndum og birtast sem endurekapaður á hverri sýn- ingu og hæfir e.t.v. hraða nútímans og þeirri uppstokkun gilda, sem á sér hvarvetna stað í tækniheimin- um svo og á hinum alþjóðlega lista- markaði. En um leið er listin að vÍ8su marki orðin að flölþjóðlegum iðnaði, sem skírekotar ekki endi- lega til persónueinkenna og vilja til að gera hlutina öðmvísi en allir aðrir, heldur vera samkvæmur því sem aðrir em að gera og er í náð- inni f augnablikinu. Slíkar hugleiðingar einskorðast engan veginn við sýningu Sigrún- ar Harðardóttur í hinum glæsi- Sigrún Harðardóttir lega sýningarsal Nýhöfn í Hafnar- stræti, en þær þrengdu sér fast á við skoðun hennar. Sigrún málar af miklum þrótti og tjáir sig umbúðalaust. Þannig nær hún miklu lífi í útfærelu mynda sinna og er vafalítið skapmann- eskja af litameðferðinni að dæma. Áhrif sumra myndanna em sterk í fyrstu, en svo koma fljótlega fram andlitsform í þeim, sem á stundum leynast á yfirborðinu líkt og felu- myndir. Þau reynast svo vera hrá og ólöguleg í teikningu og em að mínu mati öldungis óþörf, vegna þess að litrænn krafturinn og hiynjandin bera myndimar fylli- lega uppi. Sigrún virðist neftiilega hafa pereónulega litaáferð og pepsil- skrift, sem er aðal mynda hennar, svo sem kemur fram í myndunum „í lífsins ólgusjó" nr. 2 á skrá, og enn frekar í stóm myndinni „Fúga“ (18). í þessum myndum, eins og raunar öðmm á sýningunni, hefur hún málað blautt I blautt á frískleg- an og allsérstæðan hátt. En þrátt fyrir þetta er eins og eitthvað vanti á sýninguna og í heildina virkar hún full hrá og létt- unnin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.